Síða 1 af 1

Xubuntu

Sent: Lau 25. Apr 2015 22:35
af Tóti
Fann þessa inn í hillu. Smá tilraun.

Er að prófa setja upp Xubuntu á þessa http://www.cnet.com/products/ibm-thinkpad-a21e-2628-15-c-win2000-64-mb-ram-10-gb-hdd-series/
Átti stærri harðan disk setti hann í og annað geisladrif lika annað vinnsluminni 256 MB sem er max :)
Mundi hún ráða við þetta?
Er búinn að vera mjög mjög lengi að keyra þetta inn og er enn að vinna.

Re: Xubuntu

Sent: Lau 25. Apr 2015 22:53
af Skari
Flott vél, sérstaklega það að hún hafi komið með W2K

annars http://xubuntu.org/getxubuntu/requirements/ :)

Re: Xubuntu

Sent: Lau 25. Apr 2015 23:10
af Tóti
Ok :)

Eitthvað annað Linux sem hún mundi ráða við?
Hún kom með WIN 98 Second Edition :)

Re: Xubuntu

Sent: Sun 26. Apr 2015 00:18
af jólnir
http://www.everydaylinuxuser.com/2014/0 ... y-old.html

Það vantar líklegast inn í þennan lista LXLE sem er líklegast léttari útgáfa af Lubuntu sem er á listanum.

Þú gætir líka athugað Bodhi sem er ubuntu afleiða.

Eða leitað frekar á netinu.

Re: Xubuntu

Sent: Sun 26. Apr 2015 00:35
af Tóti
jólnir skrifaði:http://www.everydaylinuxuser.com/2014/08/5-linux-distributions-for-very-old.html

Það vantar líklegast inn í þennan lista LXLE sem er líklegast léttari útgáfa af Lubuntu sem er á listanum.

Þú gætir líka athugað Bodhi sem er ubuntu afleiða.

Eða leitað frekar á netinu.

Er að prófa þetta http://lubuntu.net/

Re: Xubuntu

Sent: Sun 26. Apr 2015 01:44
af gorkur
Pabbi er með vél ekkert ósvipaðri þessari og er að nota antiX á hana

http://antix.mepis.org/index.php?title=Main_Page

Getur tékkað á því.

Re: Xubuntu

Sent: Þri 21. Júl 2015 20:49
af Rabcor
Mundi halda að Lubuntu mundi virka á þessu. Síðasta tilraunin þín if all else fails er að finna distro sem kemur með openbox (einsog crunchbang; því miður er samt ný hætt að developa það) eða xmonad eða awesome eða eitthvað, og ef hún er ekki einu sinni að runna það, kemuru til með að þurfa að horfa aftur í tímann, einsog Gnome 1. Gætir ábyggilega pullað ratpoison líka.

Held að eitt aðal trikki ð sé samt að hafa ekki compositing.

Ó já og það má ekki gleyma reyndar tinycore. Smá tæpt með 64mb ram þar sem bare minimumið er 46mb ram, en ef þú getur látið það virka er það lightning fast þó að þú sért á svona gamalli vél, það keyrir nefnilega á raminu þínu, miklu hraðara en ssd, þó það sé bara ddr-200. Sniðugt þar sem vélin er væntanlega með PATA disk sem er hægari en snigill.

Tiny Slitaz á að vera ennþá léttara, væri hörku gott choice ábyggilega, þó það sé með soldið dated 2.6 kernel, þá á það officially að geta keyrt á 8mb af ram.

Væri ábyggilega geðveikt að vera með tinycore eða (ekki tiny) slitaz á svona drasl chromebook sem allir eru að selja í dag.

Re: Xubuntu

Sent: Þri 21. Júl 2015 23:33
af arons4
Ef þú ert til í það geturu örugglega keyrt hvaða distro sem án GUI, þaes command line bara. Var lengi vel með sickbeard, sab og plex á slíkri vél.

Re: Xubuntu

Sent: Lau 01. Ágú 2015 03:11
af marijuana
Þú gætir líklegast sett upp Crunchbang.. Það kemur frekar barebone og í stað þess að hafa Desktop Environment þá er það með Window Manager sem er léttara í keyrslu enda mun minna.