Ubuntu á sér SSD, good or bad?

Skjámynd

gardar
Besserwisser
Póstar: 3111
Skráði sig: Mán 11. Ágú 2008 02:49
Reputation: 12
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Ubuntu á sér SSD, good or bad?

Pósturaf gardar » Lau 21. Maí 2011 12:08

Leiðbeiningarnar þarna eru basically að stytta þér leið í að bæta við repositories og setja upp pakka.

Í staðin fyrir að opna nano og líma slóðina á repoin þar inn

Þessi skipun:

Kóði: Velja allt

sudo nano /etc/apt/sources.list


Þá geturðu farið í System>Administration>Software Sources

Og smellt þessum línum þangað inn:

Kóði: Velja allt

deb http://ppa.launchpad.net/directhex/monoxide/ubuntu maverick main
deb-src http://ppa.launchpad.net/directhex/monoxide/ubuntu maverick main


Þá ættirðu að vera beðinn um "reload"

Þá áttu að vera kominn alla leið á skrefið "Update mono libraries and forms:"


Skoðaðu línurnar sem eru svona:

Kóði: Velja allt

sudo apt-get install libmono-system-runtime2.0-cil


skoðaðu partinn fyrir aftan sudo apt-get install, þetta eru nöfn á forritum sem þú ert að setja upp.

Getur farið í
System>Administration>Synaptic Package manager

Og notað leitina þar, slegið inn nöfnin forritunum þar og sett þau upp handvirkt, hvert og eitt fyrir sig.


Þegar það er komið þá geturðu farið og sótt hfm.
http://hfm-net.googlecode.com/files/HFM ... .2.336.zip

Getur hægrismellt á zip skránna og valið "extract"

Þegar þú ert búinn að extracta, búðu þá til textaskjal í sömu möppu sem inniheldur þennan texta

Kóði: Velja allt

gksudo mono HFM.exe


Hægrismelltu á textaskrána og gerðu hana executable.

Getur þá tvísmellt á textaskrána og þá ætti hfm að keyra



Þetta er eflaust hrikalega illa skrifað hjá mér og ekki endilega víst að öll nöfn séu nákvæmlega eins, er að skrifa þetta eftir minni. Er ekki með ubuntu fyrir framan mig. Láttu mig vita ef þú strandar einhverstaðar.