Síða 1 af 1

öruggasti vafrari og leitarvél

Sent: Fös 09. Maí 2025 10:29
af gotit23
Smá pæling...

Hvað finnst ýkkur vera mest prívat og öruggasti vafrari til að hafa bæði í tölvum og símum
Og hvaða leitarvél eru menn að nota?

Og nei er ekki að tala um að fara nota Laukinn :-]

Ég hef lengi notað Firefox með duckduckgo en það virðist ekki alveg vera það öruggasta
Og ég fílaði aldrei leitarniðirstöðunar.
[Sem eru byggd upp á Bing ]

Re: öruggasti vafrari og leitarvél

Sent: Fös 09. Maí 2025 18:52
af rostungurinn77
Hvaða vafra eru menn að nota og hvaða vafri er öruggur eru oft tvær ólíkar spurningar.

Það eru hins vegar til afleiður af Firefox sem eiga að stíla meira inn á friðhelgi.

Waterfox er einn þeirra. Í boði bæði fyrir windows og android.

Aðrir eru Librewolf og Pale Moon. Ekki í boði fyrir síma að því er ég best veit.

Hvað leitarvélar varðar þá hef ég ekki verið að rekast mikið á það að duckduckgo sé ekki nógu góð hvað friðhelgi varðar.

Hvað nákvæmlega er vandamálið þar?

Re: öruggasti vafrari og leitarvél

Sent: Fös 09. Maí 2025 21:59
af Omerta
Firefox og DuckDuckGo hér. Eina sem betur mætti fara er HDR stuðningur. Bæði Brave og Edge (hah!) hafa það en báðir eiga til að keyra tölvuna mína í kaf, hún verður alveg ónothæf þar til að mér tekst að slökkva á process, þá verður allt normal aftur. Vandamál sem kemur aftur hjá mér þrátt fyrir fresh W11 install, nýtt ram, nýr bios, nýr M.2 system disk. Fyrir og eftir. Er með hardware acc enabled í Firefox en engin vandræði þar. Gafst bara upp á Brave útaf þessu. Ekki það, komst aldrei langt.

Re: öruggasti vafrari og leitarvél

Sent: Fös 09. Maí 2025 22:40
af agnarkb
Startpage er almennt talin nokkuð góð. Hollensk vél sem skrapar Google og Bing en encryptar allt hef notað hana í ca. mánuð núna og virkar vel. Líka notað Qwant, sem er frönsk en skrapar Bing. Þeir og Ecosia minnir mig eru svo að vinna í sínum eigin search index sem er snilld.

Re: öruggasti vafrari og leitarvél

Sent: Lau 10. Maí 2025 07:58
af gotit23
rostungurinn77 skrifaði:Hvaða vafra eru menn að nota og hvaða vafri er öruggur eru oft tvær ólíkar spurningar.

Það eru hins vegar til afleiður af Firefox sem eiga að stíla meira inn á friðhelgi.

Waterfox er einn þeirra. Í boði bæði fyrir windows og android.

Aðrir eru Librewolf og Pale Moon. Ekki í boði fyrir síma að því er ég best veit.

Hvað leitarvélar varðar þá hef ég ekki verið að rekast mikið á það að duckduckgo sé ekki nógu góð hvað friðhelgi varðar.

Hvað nákvæmlega er vandamálið þar?


Mér skilst að duckduckgo eru að selja persónuupplysongar á Microsoft.
Og þar sem ég tók ákvörðun að fara úr Microsoft umhverfi einmitt vegna þess að mér þýkir vænt um
Mínar upplýsingar,þá ætla ég nú ekki að nota einhvern vafra sem gerir nákvæmlega það "að gambla með vafrasöguna mína.

Og ég þoli ekki hvað Bing leitarníðurstöðunar eru leiðinlegar.

Ég held heild ýfir mun maður aldrei fá að bera laus við þessi vandamál og því skíptir þetta öruglega öllu í heiminum en bara gaman pæla í þessu :-)

Re: öruggasti vafrari og leitarvél

Sent: Lau 10. Maí 2025 08:00
af gotit23
agnarkb skrifaði:Startpage er almennt talin nokkuð góð. Hollensk vél sem skrapar Google og Bing en encryptar allt hef notað hana í ca. mánuð núna og virkar vel. Líka notað Qwant, sem er frönsk en skrapar Bing. Þeir og Ecosia minnir mig eru svo að vinna í sínum eigin search index sem er snilld.


Já var að íhuga Startpage,en endaði í Ecosia

Mér finnst hún meira snappy en firefox

Re: öruggasti vafrari og leitarvél

Sent: Lau 10. Maí 2025 08:09
af rostungurinn77
U.S. search engine DuckDuckGo eliminated a gap in its ability to block Microsoft-owned tracking scripts on third-party websites in August 2022, but an outdated headline is being recirculated to suggest that a DuckDuckGo deal exists with Microsoft co-founder Bill Gates to track search-engine users.


https://www.reuters.com/article/fact-ch ... L1N3792HE/

Re: öruggasti vafrari og leitarvél

Sent: Lau 10. Maí 2025 15:35
af GuðjónR
Kíktu á þessa á TicTok. Hún er með slatta af clips sem hún kallar „Battle of the browsers“. Hún er líka að fara að skoða leitarvélar. Hér skoðar hún Vivaldi og gefur honum einkun:
https://vm.tiktok.com/ZNdMF1Rt8/

Re: öruggasti vafrari og leitarvél

Sent: Lau 10. Maí 2025 18:53
af gotit23
GuðjónR skrifaði:Kíktu á þessa á TicTok. Hún er með slatta af clips sem hún kallar „Battle of the browsers“. Hún er líka að fara að skoða leitarvélar. Hér skoðar hún Vivaldi og gefur honum einkun:
https://vm.tiktok.com/ZNdMF1Rt8/


Takk fyrir þetta innlegg,góð þessi :-)

Þessi lætur mann næstum því fara aftur ýfir í Firefox haha.
Vivaldi er geggjaður vafrari en því miður aðeins of svangur fyrir mig.