En nú hafa árin liðin og það sem pirrar mig svolítið er að það vantar texta og engir kaflar þegar ég er að spila þetta. Allir diskarnir ennþá til hérna í kössunum.
Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þetta gerðist og MKV var ekki svona stór eins og hann er í dag. Gerðar voru tilraunir um að skipta um container snið á þessu s.s. efnið er ennþá MPEG-2 en sett í MKV container s.s. engin umbreyting á myndefninu. Bara ílátið ef svo má segja. Þetta gekk vel og kaflar og texti skilar sér.
Þegar föndrið byrjaði hérna í vetur og henti fjórum DVD drifum í Chieftec Dragon kassa. Prófaði mig áfram með að nota Windows og gera þetta í höndum. Það gekk ágætlega. Sjá mynd "Ripper útgáfa eitt."
Fókusinn var á DVD diska eingöngu í þessari tilraun. CD kemur síðar. Verst að lýsi gögnin (metadata) af Tonlist.is sem var og hét er að mér sýnist týnt. Ég átti öll cover í hæstu upplausn sem þeir buðu uppá, skriptaði og sótti þetta einhvern tíma í fyrndinni. Möguleiki að þetta sé til á IDE disk hérna heima.
Það var ekkert farið í alvöru að rippa á græjunni en hún var skilin eftir þannig að hægt væri að ræsa hana og fara í Remote Desktop og græja sig. En núna átti ég einn auka frídag og ákvað að henda í útgáfu númer tvö og ákvað að fara í átta DVD drif. Sjá mynd "Ripper útgáfa tvö."
Einnig prófaði ég ARM, Automatic Ripping Machine. Þetta er samansafn af verkfærum sem keyrir í Docker, getur rippað, transkóðað o.fl. sjá nánar hérna:
https://github.com/automatic-ripping-machine/automatic-ripping-machine
Þessi uppsetning var sett á Arch Linux sem lá hérna full uppsettur s.s. ARM varð ofaná að sinni sökum þess hversu einfalt þetta er í uppsetningu og öllu stýrt í gegnum vefviðmót. Öllum gögn eru skrifað á NFS drif sem situr á annari Linux vél (Unraid 7.1.0) (Ultra Scary Raid, efni í annað innlegg sko, uppsóf af ónýtum diskum).
Ripper útgáfa eitt.

Ripper útgáfa tvö.

*Uppfæri þetta innlegg mögulega eftir því sem við á.
p.s. Ef einhver á DVD SATA drif handa mér fyrir lítið eða ekkert væri það vel þegið. Það er svigrúm til að stækka of fara í fleiri drif til að flýta vinnunni.
Arch setup skriptan, þessu var breytt úr Debian skriptu sem er á github hjá verkefninu:
Kóði: Velja allt
#!/usr/bin/env bash
set -eo pipefail
RED='\033[1;31m'
NC='\033[0m' # No Color
FORK=automaticrippingmachine
TAG=latest
function usage() {
echo -e "\nUsage: docker_setup.sh [OPTIONS]"
echo -e " -f <fork>\tSpecify the fork to pull from on DockerHub. \n\t\tDefault is \"$FORK\""
echo -e " -t <tag>\tSpecify the tag to pull from on DockerHub. \n\t\tDefault is \"$TAG\""
}
while getopts 'f:t:' OPTION; do
case $OPTION in
f) FORK=$OPTARG ;;
t) TAG=$OPTARG ;;
?) usage; exit 2 ;;
esac
done
IMAGE="$FORK/automatic-ripping-machine:$TAG"
function install_reqs() {
echo -e "${RED}Installing required packages...${NC}"
sudo pacman -Sy --noconfirm curl lsscsi sudo docker
}
function add_arm_user() {
echo -e "${RED}Adding arm user${NC}"
if ! getent group arm > /dev/null; then
sudo groupadd arm
else
echo -e "${RED}arm group already exists, skipping...${NC}"
fi
if ! id arm > /dev/null 2>&1; then
sudo useradd -m -g arm -G optical,video arm
echo -e "${RED}Set password for 'arm' user${NC}"
sudo passwd arm
else
echo -e "${RED}arm user already exists, skipping...${NC}"
fi
}
function launch_setup() {
echo -e "${RED}Enabling and starting Docker service${NC}"
sudo systemctl enable --now docker
echo -e "${RED}Adding user arm to docker group${NC}"
sudo usermod -aG docker arm
}
function pull_image() {
echo -e "${RED}Pulling image from $IMAGE${NC}"
sudo -u arm docker pull "$IMAGE"
}
function setup_mountpoints() {
echo -e "${RED}Creating mount points${NC}"
for dev in /dev/sr?; do
[ -e "$dev" ] && sudo mkdir -p "/mnt$dev"
done
sudo chown -R arm:arm /mnt/dev/sr* 2>/dev/null || true
}
function save_start_command() {
url="https://raw.githubusercontent.com/automatic-ripping-machine/automatic-ripping-machine/main/scripts/docker/start_arm_container.sh"
sudo -u arm bash -c "
cd ~arm
if [ -e start_arm_container.sh ]; then
echo 'Backing up existing start_arm_container.sh...'
mv start_arm_container.sh start_arm_container.sh.bak
fi
curl -fsSL '$url' -o start_arm_container.sh
chmod +x start_arm_container.sh
sed -i \"s|IMAGE_NAME|$IMAGE|\" start_arm_container.sh
"
}
# Start here
install_reqs
add_arm_user
launch_setup
pull_image
setup_mountpoints
save_start_command
echo -e "${RED}Installation complete. A template command to run the ARM container is located in: $(eval echo ~arm)${NC}"