Síða 1 af 1
Major bilun hjá Vodafone?
Sent: Mið 09. Apr 2025 21:14
af gRIMwORLD
Bæði mobile network og internet a ljósleiðarajum hjá mér er úti
Vodafone.is liggur niðri og td visir.is
Er hotspottaður Nova 5G hjá dótturinni.
Einhver með meira insight?
Re: Major bilun hjá Vodafone?
Sent: Mið 09. Apr 2025 21:17
af Hallipalli
Sama hja mer rétt í þessu en virðist i lagi nuna
Re: Major bilun hjá Vodafone?
Sent: Mið 09. Apr 2025 21:17
af gunni91
Er í nákvæmlega sömu stöðu... Síminn og ljósleiðarinn bæði out!
Er á Hotspot Nova.
Edit, 5g var að detta inn.
Re: Major bilun hjá Vodafone?
Sent: Mið 09. Apr 2025 21:18
af robbi553
Sama hér, ljósleiðari frá Nova
Re: Major bilun hjá Vodafone?
Sent: Mið 09. Apr 2025 21:20
af calibr
Sama hér. Það var allt úti en núna kemst ég bara á íslenskar síður.
Re: Major bilun hjá Vodafone?
Sent: Mið 09. Apr 2025 21:22
af Krissi013
Man einhver eftir síðu sem sýnir stöðu sæstrengjana og þess háttar?
Re: Major bilun hjá Vodafone?
Sent: Mið 09. Apr 2025 21:23
af halipuz1
Krissi013 skrifaði:Man einhver eftir síðu sem sýnir stöðu sæstrengjana og þess háttar?
https://www.submarinecablemap.com/Fann þetta á netinu.
Re: Major bilun hjá Vodafone?
Sent: Mið 09. Apr 2025 21:29
af zaiLex
Já netið var niðri í gegnum snúru og 5g í símanum er hjá Vodafone, þetta var frekar crazy man ekki eftur að þetta hefur gerst . Allt komið í gang aftur núna snúra og 5g í símanum. vodafone.is komið upp

Re: Major bilun hjá Vodafone?
Sent: Mið 09. Apr 2025 21:35
af agnarkb
Re: Major bilun hjá Vodafone?
Sent: Mið 09. Apr 2025 21:38
af gRIMwORLD
Veit einhver hvort Vodafone er með eitthvað eins og statuspage.io ?
Finnst glatað að vera svona in the dark.
Nú þegar vodafone.is er komin í loftið þá er ekki einu sinni banner eða frétt á síðunni þeirra.
Re: Major bilun hjá Vodafone?
Sent: Mið 09. Apr 2025 21:40
af kjartanbj
Ætlaði að taka Olíu áðan og allt í rugli á Olís þannig fékk ekki olíu, ætlaði svo að kaupa mér að éta og þá var ekkert hægt að kaupa inni, mjög spes að svona fyrirtæki séu ekki með neitt backup internetsamband
Re: Major bilun hjá Vodafone?
Sent: Mið 09. Apr 2025 21:47
af gunni91
Hlýtur að vera netárás, hvernig detta 5G/4G sendar og ljósleiðarar út á sama tíma?
Re: Major bilun hjá Vodafone?
Sent: Mið 09. Apr 2025 21:48
af ragnarok
https://www.visir.is/g/20252712818d/bil ... -voda-foneBilun varð í netsambandi Vodafone í kvöld sem og 5G neti fyrirtækisins. Samkvæmt upplýsingum frá Vodafone varð bilun í ljósleiðara sem tók út megnið af kerfum Vodafone og netsambandi.
Bilunin varði í nokkrar mínútur og hafði mikil áhrif á þjónustu fyrirtækisins.
Fréttin verður uppfærð þegar frekari upplýsingar liggja fyrir um bilunina.
-- Mörg erlend net ennþá óaðgengileg á Vodafone tengingu, sem betur fer er maður með Símann líka
Re: Major bilun hjá Vodafone?
Sent: Mið 09. Apr 2025 21:51
af gunni91
ragnarok skrifaði:https://www.visir.is/g/20252712818d/bilun-i-netsambandi-voda-fone
Bilun varð í netsambandi Vodafone í kvöld sem og 5G neti fyrirtækisins. Samkvæmt upplýsingum frá Vodafone varð bilun í ljósleiðara sem tók út megnið af kerfum Vodafone og netsambandi.
Bilunin varði í nokkrar mínútur og hafði mikil áhrif á þjónustu fyrirtækisins.
Fréttin verður uppfærð þegar frekari upplýsingar liggja fyrir um bilunina.
-- Mörg erlend net ennþá óaðgengileg á Vodafone tengingu, sem betur fer er maður með Símann líka
Skuggalegt hvað innviðirnir eru viðkvæmir!
Re: Major bilun hjá Vodafone?
Sent: Mið 09. Apr 2025 23:45
af YellowSuB
gRIMwORLD skrifaði:Veit einhver hvort Vodafone er með eitthvað eins og statuspage.io ?
Finnst glatað að vera svona in the dark.
Nú þegar vodafone.is er komin í loftið þá er ekki einu sinni banner eða frétt á síðunni þeirra.
Þeir eru með póstlista með tilkynningum, hef enga hugmynd hvernig á að komast inn á þann lista samt. Erum skráðir fyrir tilkynningar í vinnunni hjá mér.
EDIT: Kíkti á póstinn að gamni, og jú það var umfangsmikil bilun hjá þeim á landsvísu virðist vera.
Re: Major bilun hjá Vodafone?
Sent: Mið 09. Apr 2025 23:53
af Hizzman
gunni91 skrifaði:ragnarok skrifaði:https://www.visir.is/g/20252712818d/bilun-i-netsambandi-voda-fone
Bilun varð í netsambandi Vodafone í kvöld sem og 5G neti fyrirtækisins. Samkvæmt upplýsingum frá Vodafone varð bilun í ljósleiðara sem tók út megnið af kerfum Vodafone og netsambandi.
Bilunin varði í nokkrar mínútur og hafði mikil áhrif á þjónustu fyrirtækisins.
Fréttin verður uppfærð þegar frekari upplýsingar liggja fyrir um bilunina.
-- Mörg erlend net ennþá óaðgengileg á Vodafone tengingu, sem betur fer er maður með Símann líka
Skuggalegt hvað innviðirnir eru viðkvæmir!
Já, fékk hland fyrir hjartað. Óttaðist að það væri búið að rjúfa alla sæstrengina!
Re: Major bilun hjá Vodafone?
Sent: Fim 10. Apr 2025 13:57
af brain
Allavega auðvelt fyrir þann sem er að pæla í því. :p
"agnarkb
https://www.submarinecablemap.com/"
Re: Major bilun hjá Vodafone?
Sent: Fim 10. Apr 2025 14:20
af rapport
Ég hef það sterklega á tilfinningunni að þetta hafi verið mannleg mistök, einhver einn að vinna frameftir því að það er sko bannað að uppfæra á föstudögum :-)
Re: Major bilun hjá Vodafone?
Sent: Fim 10. Apr 2025 17:25
af GuðjónR
Er reyndar hjá NOVA en netið var hrikalega slow í gærkvöldi, 12.9 GB update á PUBG tók forever....var að fá 2-6 MB/s. Er venjulega að toppa 90MB/s.
Re: Major bilun hjá Vodafone?
Sent: Fös 11. Apr 2025 21:10
af Starman
Þegar það kemur frétt um "bilun í neti" þá er það 99% mannlegur harmleikur.
Það er sárasjaldan sem það er skipt um eitthvað hardware.
Þetta eru breytingar og svo er "úps, ég sá þetta ekki fyrir" og svo tekur það tíma að rúlla til baka.
Re: Major bilun hjá Vodafone?
Sent: Lau 12. Apr 2025 10:30
af GuðjónR
Starman skrifaði:Þegar það kemur frétt um "bilun í neti" þá er það 99% mannlegur harmleikur.
Það er sárasjaldan sem það er skipt um eitthvað hardware.
Þetta eru breytingar og svo er "úps, ég sá þetta ekki fyrir" og svo tekur það tíma að rúlla til baka.
Mannleg mistök myndi ég frekar kalla það, mannlegur harmleikur er full dramatíkst oðralag fyrir netleysi í nokkrar mínútur.

Re: Major bilun hjá Vodafone?
Sent: Lau 12. Apr 2025 13:42
af raggos
Það sem mér þykir áhugavert í þessari sögu er hvað Vodafone er illa viðbúið lélegu viðhaldi af hálfu gagnaveitunnar eins og virðist hafa gerst þarna. Gagnaveitan viðurkennir að búnaðurinn hafi verið kominn langt fram yfir eðlilegan notkunartíma og það veldur því að Vodafone missir allt sitt net út og virðast ekki hafa haft neinar varaleiðir tiltækar. Virðist benda til mjög mikillar single point of failure uppsetningu hjá Vodafone og skort á góðum rekstri hjá Gagnaveitunni
Re: Major bilun hjá Vodafone?
Sent: Lau 12. Apr 2025 14:33
af GuðjónR
raggos skrifaði:Það sem mér þykir áhugavert í þessari sögu er hvað Vodafone er illa viðbúið lélegu viðhaldi af hálfu gagnaveitunnar eins og virðist hafa gerst þarna. Gagnaveitan viðurkennir að búnaðurinn hafi verið kominn langt fram yfir eðlilegan notkunartíma og það veldur því að Vodafone missir allt sitt net út og virðast ekki hafa haft neinar varaleiðir tiltækar. Virðist benda til mjög mikillar single point of failure uppsetningu hjá Vodafone og skort á góðum rekstri hjá Gagnaveitunni
Fúsk?
Re: Major bilun hjá Vodafone?
Sent: Lau 12. Apr 2025 16:06
af Revenant
Svona bilanir eru sjaldnast on/off bilanir (t.d. þegar rafmagnið fer af) heldur getur ákveðinn hluti af tækinu bilað en samt verið lifandi. "Algengt" dæmi er minnisleki í hugbúnaðinum og þegar minnið klárast þá virkar keepalive/heartbeat milli tækja en tækið er alveg stopp að öðru leiti.
Í svoleiðis tilfellum þarf oft að einangra tækið með öðrum hætti eða taka rafmagnið af því til að peer-inn fatti að taka yfir keyrslu.
Það getur alveg verið að þetta tæki hafi verið gamalt og á útskiptilista hjá Ljósleiðaranum en það þýðir ekki að hann hafi ekki verið í fullu supporti frá framleiðanda. Framleiðandi gefur oft upp
MTBF upp á tugi ára þannig það er ekki óeðlilegt að búnaður sé keyrður í 5-10+ ár ef framleiðandinn er ennþá með support fyrir hann (og fyrirtækið tilbúið að borga support kostnaðinn).
Í flóknari netkerfum getur líka verið mjög erfitt og tímafrekt að módel-a sviðsmyndir fyrir bilanir.
Re: Major bilun hjá Vodafone?
Sent: Lau 12. Apr 2025 16:44
af raggos
„Það varð bilun í einum af eldri búnaði í kjarnanum hjá okkur sem stendur til að útleiða og stillingar í kjarnabúnaði voru ekki með fullnægjandi hætti hjá okkur. Þessi tiltekni eldri búnaður sem bilaði er á viðhaldsáætlun og það stendur til að skipta honum út. Ég get ekki sagt alveg til um það af hverju hann bilaði en uppsetningin er ekki eins og hún á að vera,“ segir Einar Þórarinsson framkvæmdastjóri Ljósleiðarans við mbl.is."