Síða 1 af 1
Óþekkt netföng í autofill (firefox)
Sent: Þri 08. Apr 2025 16:08
af falcon1
Þegar ég er að fara að logga mig inná BH-PhotoVideo þá kemur upp mitt netfang en líka nokkur netföng sem ég þekki ekki neitt. Hvað er í gangi með það?
Er þetta eitthvað öryggismál sem þarf að hafa áhyggjur af?
Re: Óþekkt netföng í autofill (firefox)
Sent: Þri 08. Apr 2025 17:38
af rostungurinn77
Óljóst hvort þetta er öryggisbrestur. Þú ert ekki sá eini sem hefur lent í þessu. Hefur mögulega eitthvað með vefsíðuna sjálfa að gera að hreinsa ekki burt innskráningar annara. Vafrinn þinn sér netföng eða notendanöfn og stingur upp á þeim. Ekki herma þessa skýringu upp á mig.
Þú átt að geta fundið hvaðan þetta kemur ef þú ferð í stillingar í vafranum. Getur líka eytt þessu úr skyndiminni vafrans til að losna við þetta.
Re: Óþekkt netföng í autofill (firefox)
Sent: Fös 11. Apr 2025 23:01
af gilli666
Loggaðiru þig inn á browserinn í annarri tölvu en þú ert vanur að nota? Ég myndi hafa áhyggjur