Síða 1 af 1
Vodafone net
Sent: Fös 24. Jan 2025 23:51
af jack-1127
Er einhvern að lenda i nettruflanir eða það se mjög hægt sem er að nota Vodafone þjónustu? Var hjá símanum gegnum mílu og allt var 100% ,núna er kominn með vodafone og ljósleiðaran og þetta er annað dagur í röð um kvöldið að netið byrja hanga

P.s taka
bara ljósleiðara boxið ur sambandi og í samband aftur lagar hlutina i einhvern tíma …
Re: Vodafone net
Sent: Lau 25. Jan 2025 00:51
af Narinn
Hvernig truflunum ? Afhverju hefuru ekki samband við þá og serð hvaða svör þú færð… ef þau eru ekki nægileg afhverju ekki að heyra i ljosleiðaranum og fa að vita hvaða möguleikar eru í boði
Re: Vodafone net
Sent: Lau 25. Jan 2025 01:00
af jack-1127
já þetta var nuna fimmtudags og föstudags kvöldið... grunnar smá það er eitthvað með boxið þeirra.. ætla heyra í þeim á mánudaginn, pæla hvort einhvern var að lenda einhverju svipuðu
en truflanir lýsa ser bara ,ekkert net eða mjög mjög hægt
Re: Vodafone net
Sent: Lau 25. Jan 2025 11:55
af GullMoli
Getur beðið þau um að kveikja á vöktun á línunni, er annars hjá Voda og hef ekki tekið eftir neinu.
Re: Vodafone net
Sent: Lau 25. Jan 2025 12:46
af EinnNetturGaur
er hjá voda og hef ekki tekið eftir neinu sjálfur en heyrðu í vodafone og settu tengingu þína í vöktun. gangaveitan er vanalega með betri tengingu en míla.
Re: Vodafone net
Sent: Lau 25. Jan 2025 13:42
af Vaktari
Ekkert net þá bara á kvöldin?
Erum við að tala um ekkert net á þráðlausu?
Eða er verið að tala um snurutengt líka. Eða kannski bæði í einu? Hvar er router staðsettur og hve stórt er húsnæðið?
Ertu að nota einhverja framlengingu á netinu? Semsagt einhvern punkt.
Getur sent mér PM með nafni og ég get skoðað deyfingu og sett boxið í vöktun.
Re: Vodafone net
Sent: Lau 25. Jan 2025 19:56
af raggos
Ég er búinn að upplifa áberandi verra netsamband á kvöldin hjá Vodafone upp á síðkastið.
Ég er með mjög góðan netbúnað frá Unifi og allt innanlandssamband virkar 100% en erlend umferð virðist alltaf hægjast á kvöldin.
Download gagnvart Vodafone speglum í UK fer niður í 1-5mbps á sama tíma og upload er mörg hundruð mbps. Svo eru tölurnar fínar á dagtíma.
Re: Vodafone net
Sent: Lau 25. Jan 2025 22:30
af Hizzman
var mæla til uk kl 22:30 fæ 420/410 Mb/s er hjá voda
Re: Vodafone net
Sent: Sun 26. Jan 2025 11:32
af 2ndSky
Aldrei nokkurn tíman dytti mér í hug að vera með internet þjónustu hja Vodafone ... eða bara einhversskonar þjónustu yfir höfuð
Re: Vodafone net
Sent: Sun 26. Jan 2025 12:23
af jack-1127
Vaktari skrifaði:Ekkert net þá bara á kvöldin?
Erum við að tala um ekkert net á þráðlausu?
Eða er verið að tala um snurutengt líka. Eða kannski bæði í einu? Hvar er router staðsettur og hve stórt er húsnæðið?
Ertu að nota einhverja framlengingu á netinu? Semsagt einhvern punkt.
Getur sent mér PM með nafni og ég get skoðað deyfingu og sett boxið í vöktun.
Er með nýjan 10g router enginn framlenging, sama var í gær datt aftur út og þurfti taka ljósleiðara boxið úr sambandi og setja aftur í samband til að laga það

Re: Vodafone net
Sent: Fös 31. Jan 2025 09:29
af Benz
Varstu með "10x" tengingu hjá Símanum líka?
Re: Vodafone net
Sent: Fös 31. Jan 2025 10:07
af halipuz1
Þetta eru alvöru first world problems!
P.s er bara að gantast.
Re: Vodafone net
Sent: Fös 31. Jan 2025 13:55
af jack-1127
herðu þetta endaði þanning að vodafone endurstilti ljósleiðara boxið og þetta hefur haldið kjafti siðan þá

Re: Vodafone net
Sent: Fös 31. Jan 2025 13:57
af jack-1127
Benz skrifaði:Varstu með "10x" tengingu hjá Símanum líka?
var með 2.5 hjá simanum en þú færð á sama verð 10x hjá vodafone