Síða 1 af 1
Gervigreind ai chatbot
Sent: Mið 18. Des 2024 19:50
af jardel
Hvaða forrit fyrir windows, vefsíður mælið þið með sem ekki þarf að greiða áskrift mánaðarlega.
Re: Gervigreind ai chatbot
Sent: Fim 19. Des 2024 14:59
af geesle
Chatgpt 4o er sennilega sá besti núna eftir að claude hættu að veita þjónustu sína frítt.
En að öðru, miðað við þá vinnslu sem er á bakvið hvert prompt þá er ekkert skrýtið að þetta kosti eitthvað mánaðarlega.
Ef þú vilt algjörlega nörda þig í gang geturu hýst þína eigin gervigreind á home-server og reynt að þjálfa hann sjálfur en það er spurning um hvort það sé tímans virði
Re: Gervigreind ai chatbot
Sent: Fim 19. Des 2024 18:33
af halipuz1
geesle skrifaði:Chatgpt 4o er sennilega sá besti núna eftir að claude hættu að veita þjónustu sína frítt.
En að öðru, miðað við þá vinnslu sem er á bakvið hvert prompt þá er ekkert skrýtið að þetta kosti eitthvað mánaðarlega.
Ef þú vilt algjörlega nörda þig í gang geturu hýst þína eigin gervigreind á home-server og reynt að þjálfa hann sjálfur en það er spurning um hvort það sé tímans virði
Einhversstaðar sá ég að þú getur sett upp ChatGPT 4o á tölvuna þína bara, þarf þá að þjálfa þann botta eða? Eða er hægt að fá hann "tilbúinn"?
Re: Gervigreind ai chatbot
Sent: Fim 19. Des 2024 21:11
af Hjaltiatla
ChatGPT er ljómandi fínt (borga reyndar fyrir pro áskrift) , mæli með að skoða Search GPT það er einnig í boði á fríu ChatGPT áskriftinni. Nota einnig Claude og Microsoft Copilot fríu áskriftinar til að bera saman output og mér finnst ChatGPT henta mér best en alltaf gott að fá annað álit og bera saman svör.
Er mjög ánægður með fríu Github Copilot í VS code , notar GPT 4.0 (Claude 3.5 preview er einnig í boði).
Re: Gervigreind ai chatbot
Sent: Fös 20. Des 2024 10:23
af Stutturdreki
Einhversstaðar sá ég að þú getur sett upp ChatGPT 4o á tölvuna þína bara, þarf þá að þjálfa þann botta eða? Eða er hægt að fá hann "tilbúinn"?
Kannski ekki chatgpt en ..
https://ollama.com/.
Þeir eru svo með helling af tilbúnum modelum sem þú getur sótt og prófað, td. llama frá Meta
https://ollama.com/library/llama3.3. Hef verið að prófa þetta heima með
https://github.com/open-webui/open-webui og helsta vesenið er að ég er náttúrulega ekki með heilt gagnaver á bakvið svo það keyrir örlítið hægt (12 core, 32gb, quadro t2000).