Síða 1 af 1
Internet niður í geymslun á blokk
Sent: Fim 14. Nóv 2024 23:50
af Dizzydwarf
Heil og sæl.
Mig vantar aðstoð hvernig er best fyrir mig að kloma góðu neti viður í geymslu hjá mér.
Eins og er þá er ég með internet í gegnum rafmagn og er ekki nóg og ánægður með það. Ég er með 1gb internet hjá vofaphone og það sem tengist í gegnum rafmagns hjá mér er TP/link sem segist vera 1gb en ég er að fá 3megabyte á sek við download...
hvað er best fyrir mig að gera, ég er á fyrstu hæð en íbúðin er ekki beint fyrir neðan heldur eru nágranar okkar fyrir ofan geymsluna mína.
Það er nánast full 5G net hérna niðri og var ég að hugsa fara bara í 5G ráder hérna niðri þar sem ég eyði miklum tíma hérna niðri í tölvunni.
allar ábendingar eru vel þegnar

Re: Internet niður í geymslun á blokk
Sent: Fös 15. Nóv 2024 15:13
af Vaktari
Ertu eiginlega ekki bara búinn að svara spurningunni?
Fara bara í 5g eða fá aðra tengingu niður?
Ekki nema þú þekkir einhvern til að draga ljós gegnum rafmagnið alla leið niður og fá þér breytur. En eflaust þarftu mögulega leyfi frá öðrum til að gera það.
Ég er nú bara hissa að þú fáir 3 meg á powerline búnaðinn miðað við sendinguna frá íbúð og niður í geymslu rými.
Bora gat gegnum gólf fra router og leggja með loftinu inn í geymslu? Háð þá eflaust leyfi frá öðrum
Re: Internet niður í geymslun á blokk
Sent: Fös 15. Nóv 2024 15:49
af rapport
Er með allan pakkann hjá Nova og bætti við einu auka korti fyrir klink og er með 5G í "skúrnum"
Re: Internet niður í geymslun á blokk
Sent: Fös 15. Nóv 2024 16:39
af halipuz1
Ég hringdi í mílu og spurði hvort þeir gætu græjað seinni línuna inn til min i geymsluna mina, þeir gerðu það!
Re: Internet niður í geymslun á blokk
Sent: Fös 15. Nóv 2024 17:15
af Dizzydwarf
Ég svaraði jú eiginlega minni eigin spurningu, prófaði að heyra í Vodafone og athuga með 5G ráder hjá þeim, basically 5.000kr á mánuði og netið er svona 10x betra nuna eða eins gott að það verður hérna niðri, ég veit ekki hvernig það myndi vera að fá mílu/ljósleiðarann til þess að setja línu niður í geymsluna en það er alveg eins hægt að skoða það ef að þetta gengur ekki í vetur mun spurja að því þegar ég man eftir því (: en download á Steam er Peak 54 MB/S sem ég tel ágætt bara hérna niðri geymslu.
Re: Internet niður í geymslun á blokk
Sent: Fös 15. Nóv 2024 20:52
af EinnNetturGaur
staðinn fyrir að nota ljósleiðara þá myndi ég kanna hversu auðvelt það væri að fara með netkapli í gegnum símalagnirnar niður í sameign og þaðan yfir í geymsluna, gerir það bara sjálfur meðan allir eru heima
Re: Internet niður í geymslun á blokk
Sent: Þri 26. Nóv 2024 21:49
af Benz
EinnNetturGaur skrifaði:staðinn fyrir að nota ljósleiðara þá myndi ég kanna hversu auðvelt það væri að fara með netkapli í gegnum símalagnirnar niður í sameign og þaðan yfir í geymsluna, gerir það bara sjálfur meðan allir eru heima
Eða loftnetslagnirnar, sennilega enginn er að nota þær - þ.e. ef þær ná niður í geymsluna

Re: Internet niður í geymslun á blokk
Sent: Lau 30. Nóv 2024 00:54
af EinnNetturGaur
Benz skrifaði:EinnNetturGaur skrifaði:staðinn fyrir að nota ljósleiðara þá myndi ég kanna hversu auðvelt það væri að fara með netkapli í gegnum símalagnirnar niður í sameign og þaðan yfir í geymsluna, gerir það bara sjálfur meðan allir eru heima
Eða loftnetslagnirnar, sennilega enginn er að nota þær - þ.e. ef þær ná niður í geymsluna

Ef hann getur notað loftnet þá er enn auðveldara að nota símastrengina, þar sem loftnetskaplarnir myndu ekki virka í þessu tilfelli nema allir séu með sínar eigin lágspennu og smáspennu lagnir inn til sín, áður fyrr var síminn að koma frá jarðhæð eða kjallara og loftnet akkúrat öfugt.
Re: Internet niður í geymslun á blokk
Sent: Þri 03. Des 2024 13:16
af Benz
EinnNetturGaur skrifaði:Benz skrifaði:EinnNetturGaur skrifaði:staðinn fyrir að nota ljósleiðara þá myndi ég kanna hversu auðvelt það væri að fara með netkapli í gegnum símalagnirnar niður í sameign og þaðan yfir í geymsluna, gerir það bara sjálfur meðan allir eru heima
Eða loftnetslagnirnar, sennilega enginn er að nota þær - þ.e. ef þær ná niður í geymsluna

Ef hann getur notað loftnet þá er enn auðveldara að nota símastrengina, þar sem loftnetskaplarnir myndu ekki virka í þessu tilfelli nema allir séu með sínar eigin lágspennu og smáspennu lagnir inn til sín, áður fyrr var síminn að koma frá jarðhæð eða kjallara og loftnet akkúrat öfugt.
Ég átti nú við
að nota lagnaleiðina, alls ekki Coax-inn
Ég hef skipt út coaxlögnunum í mínu húsi og sett Ethernet streng í staðinn. Fyrst dróg ég cat 5e (sem er í lagi fyrir 1Gb/s) og svo er að skoða að skipta út fyrir cat 6 sem er betra upp á framtíðina að gera
Loftnetslagnirnar liggja fyrir að sjónvarpinu og því oft þægilegra að nota þær en símalagnirnar sem voru t.d. ekki til í stofunni hjá mér
En auðvitað er hægt að nota símalagnaleiðina til að leggja cat streng í staðinn
