BGP og IPsec - Pfsense

Skjámynd

Höfundur
Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3107
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 527
Staðsetning: ::1
Staða: Tengdur

BGP og IPsec - Pfsense

Pósturaf Hjaltiatla » Lau 06. Jan 2024 13:12

Smá vangaveltur varðandi að setja upp BGP á Pfsense router/eldvegg sem ég keyri heima.

Ég er að spá að setja upp IPsec tunnel og BGP peer tengingu á heimavellinum við Global Secure Access lausn hjá Microsoft. Er með M365 Business premium í áskrift.

How to create a remote network
https://learn.microsoft.com/en-us/entra/global-secure-access/how-to-create-remote-networks?tabs=microsoft-entra-admin-center

Get ekki sagt að ég sé mikill reynslubolti í BGP uppsetningu því spyr ég er þetta ekki sirka þessi basic BGP uppsetning í pfsense sem ég gæti nýtt mér til að tengjast sem BGP peer við Global Secure Access lausn Microsoft ? Geri mér grein fyrir því að það er ekki verið að skilgreina IPsec VPN tunnel uppsetninguna í video-inu, það er eitthvað sem ég kann nú þegar.

Basic BGP Configuration on pfSense
https://www.youtube.com/watch?v=jXG8fuJ-fUI&t
Síðast breytt af Hjaltiatla á Lau 06. Jan 2024 13:13, breytt samtals 1 sinni.


Just do IT
  √