Síða 1 af 1

Er einhver sem vinnur hjá Ljósleiðaranum á vaktinni?

Sent: Fös 25. Nóv 2022 20:32
af russi
Nú eru allir í stigaganginum sambandslausir, allavega eru þeir sem hafa látið vita allir hjá Ljósleiðaranum. Búið að vera svona síðan í kringum hádegið dag. Auðvitað kemur engin heim fyrr uppúr fjögur á daginn og þá er búið að loka þjónustuverinu. Klasískt.
Þar sem fólk er kannski litið til í að vera sambandslaust fram á mánudag þá er ég kanna hvort einhver sé hér sem vinnur hjá Ljósleiðaranum og gæti komið þessu áfram á einhverja bakvakt. Finn ekkert símanúmer sem gæti tæklað það.
Mögulega er bara slit einhversstaðar á leiðinni, hef bara ekki hugmynd. Eða eitthvað klúður ef það var einhver uppsetning í dag.
Þannig ég segi bara HJÁLP!

Re: Er einhver sem vinnur hjá Ljósleiðaranum á vaktinni?

Sent: Fös 25. Nóv 2022 22:57
af arnarj
Þeir eru með símann 516-7777, ég er nokkuð viss um að eftir dagtíma þá fer síminn á kvöld/helgarvakt.