Síða 2 af 2

Re: Vivaldi segir nei hvað varðar crypto

Sent: Þri 18. Jan 2022 12:01
af pattzi
Fínt að fjárfesta í crypto en ekki kannski gott að fara all in ....

Mun aldrei sækja vivaldi v þessara fordóma og aðra hluta.

Re: Vivaldi segir nei hvað varðar crypto

Sent: Þri 18. Jan 2022 15:27
af Dropi
pattzi skrifaði:Fínt að fjárfesta í crypto en ekki kannski gott að fara all in ....

Mun aldrei sækja vivaldi v þessara fordóma og aðra hluta.

Ekki til að reyna að verja vivaldi, en skilgreining á fordómum er að þeir séu ekki rökstuddir, en hér er einmitt verið að bera rök fyrir því af hverju rafmyntir séu ekki af hinu góða, sérstaklega hvað varðar orkunotkun, og hvaða neikvæðu afleiðingar rafmyntir hafa á samfélagið.

Í orðabók er orðið fordómar skilgreint sem: „harður dómur með óvild, t.d. gagnvart ákveðnum hópi manna, eða málefni“ og orðið fordómur sem „afstaða, sem er fast skorðuð, óhagganleg og verður ekki frjálslega rædd með rökum“.

Re: Vivaldi segir nei hvað varðar crypto

Sent: Þri 18. Jan 2022 17:32
af GuðjónR
JónSvT skrifaði:Sumir keppinautar okkar eru hrifnir af crypto. Það er ekki ég og þannig varð þessi blog til. Hvað finnst ykkur?

https://vivaldi.com/blog/why-vivaldi-will-never-create-thinkcoin/

Mjög vel skrifuð grein!
Ég er 1000% sammála hverju orði og hefði ekki getað orðað þetta betur. :happy

Re: Vivaldi segir nei hvað varðar crypto

Sent: Þri 18. Jan 2022 19:17
af pattzi
Dropi skrifaði:
pattzi skrifaði:Fínt að fjárfesta í crypto en ekki kannski gott að fara all in ....

Mun aldrei sækja vivaldi v þessara fordóma og aðra hluta.

Ekki til að reyna að verja vivaldi, en skilgreining á fordómum er að þeir séu ekki rökstuddir, en hér er einmitt verið að bera rök fyrir því af hverju rafmyntir séu ekki af hinu góða, sérstaklega hvað varðar orkunotkun, og hvaða neikvæðu afleiðingar rafmyntir hafa á samfélagið.

Í orðabók er orðið fordómar skilgreint sem: „harður dómur með óvild, t.d. gagnvart ákveðnum hópi manna, eða málefni“ og orðið fordómur sem „afstaða, sem er fast skorðuð, óhagganleg og verður ekki frjálslega rædd með rökum“.



Gæti vel verið nenni bara alls ekki að spá í þessu.....


Hefði allavega grætt slatta að hafa keypt bitcoin þarna í byrjun hehe


Ég á engar rafmyntir eða hlutabréf í dag..... enda bara alltof stressvaldandi heimur.....

Re: Vivaldi segir nei hvað varðar crypto

Sent: Þri 18. Jan 2022 20:25
af mikkimás
Fullt af fólki græðir og hefur grætt haug af seðlum á fjárfestingarbólum hvers konar í gegnum tíðina. Þess vegna hefjast þær og viðhaldast svo lengi áður en þær hrynja.

Gerir þær samt ekkert heilbrigðari eða æskilegri fyrir vikið.