Síða 1 af 1

Næ ómögulega yfir 25mb/s transfer yfir á NAS.

Sent: Sun 09. Jan 2022 15:55
af peturthorra
Er með Legion 5 2020 módelið sem er með WIFI 6 netkorti.
Er svo með Xiaomi AX3600 Wifi 6 router.
Er svo með Zyxel326 beintengdan við routerinn með 1000mbps snúru.

Ég næ að downloada af netsíðum á 60mb/s en næ aðeins að færa gögn yfir á NAS-inn á 25mb/s (stoppar þar).

Er búinn að reyna allann fjandann og er ráðlaus

Næ sem dæmi sama hraða á Winscp og Windows copy (sem er mjög sérstakt)

Re: Næ ómögulega yfir 25mb/s transfer yfir á NAS.

Sent: Sun 09. Jan 2022 17:13
af peturthorra
Næ að flytja gögn og sækja af Nas-inum frá Iphone 12 á 75mb/s... Þetta er stórundarlegt

Re: Næ ómögulega yfir 25mb/s transfer yfir á NAS.

Sent: Sun 09. Jan 2022 17:31
af peturthorra
Afsakið spammið.
Vandamál leyst eftir 100 leiðir.
Þá var vandamálið ofureinfalt, en það er galli í þessum vélum "Allow the computer to turn off this device to save power", afhaka við það í power management í Device managernum yfir Wifi kortið.
Voila, hraðinn að slá í 90mb/s

Re: Næ ómögulega yfir 25mb/s transfer yfir á NAS.

Sent: Sun 09. Jan 2022 17:32
af krummo
Getur verið að tölvan sé af einhverjum ástæðum tengd við 2.4ghz wifi?

Re: Næ ómögulega yfir 25mb/s transfer yfir á NAS.

Sent: Sun 09. Jan 2022 19:50
af peturthorra
krummo skrifaði:Getur verið að tölvan sé af einhverjum ástæðum tengd við 2.4ghz wifi?


Heyrðu nei, routerinn býður upp á tvær tengingar (2.4 og 5Ghz) og ég passaði einmitt upp á það :)

Re: Næ ómögulega yfir 25mb/s transfer yfir á NAS.

Sent: Sun 09. Jan 2022 21:17
af L0ki
Ef þú ert með hið víðfræga Realtek RTL8852AE Wifi-6 netkort í Lenovo vélinni þá er það ekkert nema til endalausra vandræða, hvort sem er packet drops, lélegur link hraði, connection strength eða stability.
Þeir kunna annaðhvort ekki að skrifa vandaða rekla (eða nenna því ekki) eða þá að það er innbyggður design galli í þessum kortum.

Ef þú ert með þetta Realtek rusl mæli ég hiklaust með að skipta því út fyrir Intel AX200

https://www.ebay.com/itm/193585143793

Re: Næ ómögulega yfir 25mb/s transfer yfir á NAS.

Sent: Mán 10. Jan 2022 07:49
af peturthorra
L0ki skrifaði:Ef þú ert með hið víðfræga Realtek RTL8852AE Wifi-6 netkort í Lenovo vélinni þá er það ekkert nema til endalausra vandræða, hvort sem er packet drops, lélegur link hraði, connection strength eða stability.
Þeir kunna annaðhvort ekki að skrifa vandaða rekla (eða nenna því ekki) eða þá að það er innbyggður design galli í þessum kortum.

Ef þú ert með þetta Realtek rusl mæli ég hiklaust með að skipta því út fyrir Intel AX200

https://www.ebay.com/itm/193585143793


Lukkulega þá er ég með Ax200 netkort í vélinni :D