Eitt gíg plús og IPv6


Höfundur
DanniFreyr
Fiktari
Póstar: 55
Skráði sig: Mið 20. Apr 2011 00:14
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Eitt gíg plús og IPv6

Pósturaf DanniFreyr » Sun 17. Okt 2021 14:42

Sælir vaktarar og þá sérstaklega starfólk eða þeir með þekkingu í fjarskiptageiranum. Eru einhver plön um (tilraunir í gangi) að bæta við IPv6 til heimilisnotenda og svo að í boði verði eitthvað meira en eitt gíg hraði þá til dæmis 2.5G eða 10G ?
Veit að þetta er algjört first world problem er bara skemmtilegt fyrir okkur nördana og langaði að athuga hvort þetta væri orðin hugmynd hér á klakanum?



Skjámynd

Revenant
</Snillingur>
Póstar: 1031
Skráði sig: Fim 24. Jún 2004 12:36
Reputation: 132
Staða: Ótengdur

Re: Eitt gíg plús og IPv6

Pósturaf Revenant » Sun 17. Okt 2021 15:30

Það er hægt að fá IPv6 á ljósleiðaratengingu frá Nova (þ.e. /56 úthlutun) en gallin er sá að þú ert settur á bak við CGNAT fyrir IPv4 í staðin (engin public IPv4 tala heldur úthlutað úr 100.64.0.0/10 neti).
Mér skilst að það sé sami "prófíll" og er á 4G/5G netinu þeirra.




dandri
Ofur-Nörd
Póstar: 297
Skráði sig: Fim 22. Sep 2011 23:00
Reputation: 6
Staða: Ótengdur

Re: Eitt gíg plús og IPv6

Pósturaf dandri » Sun 17. Okt 2021 15:52

Myndi algjörlega vilja fá native ipv6 tengingu til heimila, hef verið að routa /48 núna í að verða 3 ár yfir tunnels.

Eina sem við getum gert er basicly að spyrja fjarskiptafélögin reglulega hvenær þeir ætli að innleiða native ipv6 til heimila og segja þeim að það sé eftirspurn fyrir því.


AMD FX-4100 | ASRock 990FX Extreme3 | G.Skill Ripjaws 1600 8gb | 2x MSI Cyclone R6850 OC Version | Corsair HX750

Skjámynd

hfwf
Vaktari
Póstar: 2018
Skráði sig: Sun 16. Okt 2011 20:29
Reputation: 78
Staða: Ótengdur

Re: Eitt gíg plús og IPv6

Pósturaf hfwf » Sun 17. Okt 2021 15:59

Hef séð það minnst á að 10gbit er í prufu til neytanda.
En býst ekki við að það verði fáanlegt í nokkur ár í viðbót.
Síðast breytt af hfwf á Sun 17. Okt 2021 16:00, breytt samtals 1 sinni.



Skjámynd

oliuntitled
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 318
Skráði sig: Mán 29. Jún 2009 15:56
Reputation: 103
Staða: Tengdur

Re: Eitt gíg plús og IPv6

Pósturaf oliuntitled » Sun 17. Okt 2021 17:48

Er ekki að sjá mikla þörf fyrir meira en 1gbit til einstaklinga, ISP's þurfa að hugsa um 99 prósentin og það að catera á 1%-ið er ekki mjög fjárhagslega viable :)
Við erum með takmarkaða bandvídd útúr landinu og það þarf í raun að scale-a soldið með því.
Hef sjálfur verið að gæla við að fara uppfyrir 1gbit lan heima en ég get ekki sagt að það sé útaf bandvíddarþörf heldur meira fyrir nöllaþörfina mína :D



Skjámynd

Revenant
</Snillingur>
Póstar: 1031
Skráði sig: Fim 24. Jún 2004 12:36
Reputation: 132
Staða: Ótengdur

Re: Eitt gíg plús og IPv6

Pósturaf Revenant » Sun 17. Okt 2021 20:58

Svona til gamans þá býður Fiber7 í Sviss upp á allt að 25Gbit/sec hraða til heimila (sama verð á 1/10 og 25Gbit/s hraða á mánuði en mismunandi uppsetningarkostnaður).
Þeirra handoff til viðskiptavina er LC ljósleiðaratengi (enginn ljósleiðaraendabúnaður eins og á Íslandi) sem þýðir að tengingin í routerinn er í gegnum SFP, SFP+, SFP28 merkjabreytu eða í gegnum media converter.

Þeir hafa verið að selja router með SFP+ tengi (10Gbit/s) á 333CHF (u.þ.b. 46 þús) + 99CHF fyrir BiDi merkjabreytuna (~14þús).




Höfundur
DanniFreyr
Fiktari
Póstar: 55
Skráði sig: Mið 20. Apr 2011 00:14
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Eitt gíg plús og IPv6

Pósturaf DanniFreyr » Sun 17. Okt 2021 22:25

Já fyrir 99.99% heimila er eitt gíg meira en nóg en hitt væri gaman fyrir okkur nöllana. Svo gæti hugsast að það gæti gengið upp sem aukaþjónusta, kannski nógu margir nöllar sem eru tilbúnir í þetta :)

Annars er þetta flott hjá Fiber7, smá nölla öfund á þá í Sviss :)




jonfr1900
Vaktari
Póstar: 2351
Skráði sig: Mán 25. Sep 2017 13:07
Reputation: 272
Staðsetning: Ísland (Danmörk, 2024/2025)
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Eitt gíg plús og IPv6

Pósturaf jonfr1900 » Sun 17. Okt 2021 22:51

Þessi 10Gbps netkort eru ekki ódýr. Ég á engan svona búnað sem gengur að þessum tengjum.

Sjá á Amazon.



Skjámynd

olihar
spjallið.is
Póstar: 420
Skráði sig: Mán 13. Ágú 2007 13:23
Reputation: 85
Staða: Ótengdur

Re: Eitt gíg plús og IPv6

Pósturaf olihar » Sun 17. Okt 2021 23:49

Er ekki mikið frekar að vinna í því að fá nothæfan hraða til og frá útlöndum áður en við förum að eyða púðri í 10Gb innanlands. Maður er stundum alveg geðveikur á þeim hraða sem maður fær út og til baka. 30Mb á mörgum þjónustum væri útlanda hraðinn alveg sama hvort maður er með 1Gb eða 10Gb tengingu.