Síða 1 af 1

Android app sem mælir alla senda?

Sent: Lau 16. Okt 2021 13:29
af Hizzman
Finnst app fyrir Android sem getur séð signal og styrk frá öllum símafélögunum. Td ef ég er með sim frá Símanum, gæti ég séð hvort Voda eða Nova eru með gott gott signal á staðnum.

Re: Android app sem mælir alla senda?

Sent: Sun 17. Okt 2021 01:40
af jonfr1900
Ég nota cellmapper en það virkar ekki á öll símafélög nema að þú sért með kort frá þeim öllum. Þar sem 3G, 4G og 5G eru aðgangskerfi og því þarf að vera með sim kort frá þessum símafélögum til að sjá sendi, tíðni og styrk sem síminn notar.