Síða 1 af 1

Flott tónlistarforrit?

Sent: Fös 28. Okt 2005 15:12
af Veit Ekki
Getur einhver bent mér á tónlistarforrit sem er kannski svipað og Amarok sem er fyrir Linux.http://amarok.kde.org/index.php?set_alb ... _photo.php
Eða bara eitthvað flott forrit með skemmtilegum fídusum.

Er orðinn soldið leiður á Winamp. :P

Sent: Fös 28. Okt 2005 16:55
af hilmar_jonsson
Ég nota WMP.

Sent: Fös 28. Okt 2005 16:56
af Veit Ekki
hilmar_jonsson skrifaði:Ég nota WMP.


Hef líka notað það eitthvað en var bara að spá hvort að það væri til eitthvað mjög flott. :P

I tunes

Sent: Lau 29. Okt 2005 15:53
af @Arinn@
I tunes finnst mér vera langþægilegasta forritið :lol:

Re: I tunes

Sent: Lau 29. Okt 2005 16:21
af Veit Ekki
@Arinn@ skrifaði:I tunes finnst mér vera langþægilegasta forritið :lol:


En convertar það ekki alla tónlistana ef maður setur eitthvað inní forritið?

Sent: Lau 29. Okt 2005 17:40
af Pandemic
Nei ekki nema hún sé á einhverju örðu formati en það sem hún skilur.

Sent: Lau 29. Okt 2005 18:15
af Snorrmund
itunes wmp og winamp eru öll fín forrit að mínu mati en mér finnst itunes og wmp éta of mikið af minni hjá mér :?

Sent: Lau 29. Okt 2005 22:43
af Pandemic
Foobar 2000 er nokkuð advanced.
Edit: Í rauninni eitt flottasta tónlistar forrit sem ég hef séð. Og gefur langbesta hljómin.

Re: Flott tónlistarforrit?

Sent: Sun 30. Okt 2005 00:01
af Hawley
Veit Ekki skrifaði:Getur einhver bent mér á tónlistarforrit sem er kannski svipað og Amarok sem er fyrir Linux.http://amarok.kde.org/index.php?set_alb ... _photo.php
Eða bara eitthvað flott forrit með skemmtilegum fídusum.

Er orðinn soldið leiður á Winamp. :P


http://www.musikcube.com/

Sent: Sun 30. Okt 2005 00:43
af SolidFeather
Foobar er coolað.

Sent: Sun 30. Okt 2005 00:46
af ICM
Hættið að bulla um að Foobar sé með lang flottasta hljómin :roll:
Winamp t.d. býður upp á ASIO og allskonar önnur output plug-in

Sent: Sun 30. Okt 2005 00:53
af Pandemic
Hætti nú að nota Winamp vegna þess að það er hrillilega lélegt í því að flokka tónlist og crashaði alltof oft og ekki má gleyma því að AOL á það.

Sent: Sun 30. Okt 2005 01:00
af CendenZ
Pandemic skrifaði:Hætti nú að nota Winamp vegna þess að það er hrillilega lélegt í því að flokka tónlist og crashaði alltof oft og ekki má gleyma því að AOL á það.



virkar samt fyrir mig.

sama hver á það eða rúnkar sér yfir source codeinum, þá virkar það best fyrir mig.

Sent: Sun 30. Okt 2005 01:43
af ICM
Winamp er með lang besta extension support sem nokkurntíman hefur verið hannað og hundruðir viðbóta hægt að nota til að stilla hann að sínum þörfum.

Hann er að verða nokkuð góður fyrir video líka og hægt að nota hann sem mplayer front-end.


Annars persónulega nota ég Windows Media Player 10 býð spenntur eftir 11 tengist flestum DAP í dag out of the box (MTP Plays for sure) jafnvel með Windows XP x64.

Sent: Sun 30. Okt 2005 16:22
af Vilezhout
foobar skilar besta hljóminum í skrám sem eru yfir 192kb/s

Sent: Sun 30. Okt 2005 20:05
af hilmar_jonsson
Snorrmund skrifaði:itunes wmp og winamp eru öll fín forrit að mínu mati en mér finnst itunes og wmp éta of mikið af minni hjá mér :?


Ég lenti í þessu sama vandamáli þegar ég var að láta wmp fylgjast með shared folders á annarri tölvu sem innihéldu video. Þá fór hann vel upp að peak level minnisins (400-500MB) eftir langa spilun (það tók hann smá tíma að ná upp í þetta). Núna er hann yfirleitt í kringum 10MB.

Ég tek það samt fram að ég nota hann ekki fyrir video.

Sent: Sun 30. Okt 2005 21:03
af Gandalf
sjálfur hef ég notað deliplayer (http://www.deliplayer.com) og líkað bara vel.
Fullt af stillingar fídusum og hann spilar mjög mörg formats.
Reyndar hefur hann verið töluvert lítið uppfærður nýlega, en hann höndlar stóra play-lista mjög vel og hefur þessvegna verið minn kostur.

Sent: Sun 30. Okt 2005 21:05
af viddi
ég nota bara foobar, mjög þægilegt forrit sem étur ekki minnið hjá manni og líka mjög mikið hægt að stilla það :8)

Sent: Mið 02. Nóv 2005 13:01
af Vilezhout
viddi skrifaði:ég nota bara foobar, mjög þægilegt forrit sem étur ekki minnið hjá manni og líka mjög mikið hægt að stilla það :8)


+auðvitað að geta auðveldlega verið með 10.000+ laga playlist

Sent: Þri 08. Nóv 2005 17:57
af Vortex
hvar fær maður foobar ?

Sent: Þri 08. Nóv 2005 18:06
af urban
Vilezhout skrifaði:
viddi skrifaði:ég nota bara foobar, mjög þægilegt forrit sem étur ekki minnið hjá manni og líka mjög mikið hægt að stilla það :8)


+auðvitað að geta auðveldlega verið með 10.000+ laga playlist


hmm bara vegna þess að þú sagðir þetta, þá ákvað ég að skella öllum mínum lögum (ca 11.000) í playlist í Winamp
það virkaði fínt

en ég sé samt ekki tilganginn við að vera með svona stóra playlista

Sent: Þri 08. Nóv 2005 18:12
af Vilezhout
urban- skrifaði:
hmm bara vegna þess að þú sagðir þetta, þá ákvað ég að skella öllum mínum lögum (ca 11.000) í playlist í Winamp
það virkaði fínt

en ég sé samt ekki tilganginn við að vera með svona stóra playlista


sjálfur þá er ég bara með allt tónlistarsafnið mitt í gangi og á random enda mun skemmtilegra enn að hlusta á einhvern fastann playlist sem er með 20-100 lögum

wmp, winamp og itunes hökkta allir og valda hökkti þegar ég er að spila þunga leiki þannig að það er meginástæðann :)