Síða 1 af 1

Kaupa legit Win 10 Pro lykla ódýrt ?

Sent: Fim 05. Ágú 2021 18:49
af hagur
Nú er ég búinn að raða saman nýrri tölvu og mig vantar Windows 10 Pro activation key. Það er víst hægt að kaupa þetta online á ýmsum stöðum, auðvitað frá MS sjálfum, eins líka á Amazon og Newegg sem dæmi, en þar er þetta frekar dýrt.

Svo á að vera hægt að kaupa þetta líka hjá ýmsum öðrum aðilum og þá oftast töluvert ódýrara, t.d hér:
https://www.kinguin.net/category/19429/ ... al-oem-key

Hafið þið einhverja reynslu af því að kaupa lykil af einhverjum svona 3rd party aðilum? Getið þið mælt með einhverjum?

Re: Kaupa legit Win 10 Pro lykla ódýrt ?

Sent: Fim 05. Ágú 2021 18:52
af GuðjónR
Ég hef keypt nokkra á eBay ... yfirleitt á $2-$3
Þeir virkuðu allir.

Re: Kaupa legit Win 10 Pro lykla ódýrt ?

Sent: Fim 05. Ágú 2021 18:55
af oliuntitled
Ég hef verslað á ebay, hef í nokkrum tilfellum þurft að hringja í MS númerið og fá activation key en yfirleitt þá annaðhvort virka þeir eða nýja troubleshooting dótið reddar því

Re: Kaupa legit Win 10 Pro lykla ódýrt ?

Sent: Fim 05. Ágú 2021 19:26
af darkppl
Hef í gegnum tíðina verið að nota https://cjs-cdkeys.com/ og hef keypt örugglega í kringum 10 leyfi þaðan og alltaf virkað.
kemur yfirleitt frekar fljótt líka.

Re: Kaupa legit Win 10 Pro lykla ódýrt ?

Sent: Fim 05. Ágú 2021 19:32
af hagur
Maður kemur ekki að tómum kofanum hér frekar en venjulega :)

Ég ætla að checka á Ebay og þessari cjs-cdkeys.com síðu. Takk takk!

Re: Kaupa legit Win 10 Pro lykla ódýrt ?

Sent: Fim 05. Ágú 2021 19:51
af brain
https://pixelcodes.com/

bæði keypt Windows 10 Server 2019 og office 2019.

Allt 100 % færð email eftir 1 mín

Re: Kaupa legit Win 10 Pro lykla ódýrt ?

Sent: Fim 05. Ágú 2021 21:44
af Zethic
Hef keypt nokkrum sinnum af Kinguin Windows lykla. Alveg staðist en þetta er vissulega shady

Re: Kaupa legit Win 10 Pro lykla ódýrt ?

Sent: Fim 05. Ágú 2021 21:49
af hagur
Keypti lykil af cjs-cdkeys.com á 9.99 pund. Allt lookar vel, fékk lykilinn strax. Á eftir að prófa hann, fer fljótlega í að klára að setja nýju vélina upp.

Re: Kaupa legit Win 10 Pro lykla ódýrt ?

Sent: Fim 05. Ágú 2021 21:52
af Klemmi
Hef prófað Kinguin, eBay og fleira, en eftir að einhver benti hér á PixelCodes hef ég keypt þaðan. Lent í oftar en einu sinni að eBay kóði virkaði ekki, og eBay reynir að loka á þessa aðganga, svo seljandi getur ekki svarað og þú þarft að fara í gegnum eBay support til að fá endurgreitt... sem maður þarf að gera upp við sig hvort maður nennir fyrir 500kall.

Hef einu sinni lent í biluðum kóða frá PixelCodes en fékk þá same day support, báðu mig um að senda 2 skjáskot af activation villunni og kóðanum, og sendu mér svo nýjan:
https://pixelcodes.com/product/windows- ... wholesale/

Re: Kaupa legit Win 10 Pro lykla ódýrt ?

Sent: Fim 05. Ágú 2021 22:03
af kornelius
Hef reyndar talað um þetta á fleiri þráðum hér á spjallinu þegar þessi mál ber á góma.

Þá sjaldan sem ég hef þurft að setja upp win 8/8.2/10 fyrir aðra sem nota windows (nota Linux í allt) þá hef ég aldrei keypt lykla vegna þess að það er til urmull af myndböndum um það á youtube og allslags greinum ef maður googlar að það er nóg að setja inn gamlan win 7 key og þeir virka allir :)

K.

Re: Kaupa legit Win 10 Pro lykla ódýrt ?

Sent: Fös 06. Ágú 2021 01:51
af Hrotti
Ég fékk notaðan lykil hjá cjs-cdkeys.com og þeir voru ekki með neitt customer support. Reyndu að senda mig í gegnum allskonar sjálfvirka prósessa til að ég myndi bara gefast upp og hætta. Venjulega væri mér nokkuð sama um 10 pund en þetta fór í taugarnar á mér að svo að ég reportaði þá til paypal og fékk endurgreitt þar.

Re: Kaupa legit Win 10 Pro lykla ódýrt ?

Sent: Fös 06. Ágú 2021 02:58
af emmi
Þó að þú getir keypt lykil á $2 og Windows activatast með honum þýðir ekki endilega að hann sé legit.

Þessi fyrir neðan er hinsvegar pottþétt 100% legit. :)

viewtopic.php?f=11&t=88180