Heims server


Höfundur
Durzo_Blint1990
Nýliði
Póstar: 6
Skráði sig: Mán 25. Maí 2020 20:57
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Heims server

Pósturaf Durzo_Blint1990 » Mið 05. Maí 2021 15:24

Er að búa til heima server í fyrsata skifti til að geima og back up efni sem ég hef verið að taka upp og er að pæla hvaða kerfi væri best fyrir það. Það eina sem ég veit um er trueNAS en sá að sumir voru ekki að mæla með því er eitthvað annað sem er líka frítt eða er trueNAS bara málið ?




Uncredible
Nörd
Póstar: 131
Skráði sig: Mið 01. Júl 2020 18:48
Reputation: 34
Staða: Ótengdur

Re: Heims server

Pósturaf Uncredible » Mið 05. Maí 2021 16:27

Ég nota Unraid til að keyra Plex server, Minecraft server og Valheim server.

Einnig nota ég Unraid til að geyma myndir og annað sem ég vill ekki glata.

Góða við Unraid er að þú getur fengið frítt trial til að prófa það. Ég byrjaði á trialinu og prófaði mig áfram.

Annars kostar það 59$ fyrir minnsta pakkann. Mér finnst það vel þess virði.

Hefur virkað mjög vel fyrir mig, allt mjög einfailt og helling af leiðbeiningum online ef maður stoppar einhver staðar.



Skjámynd

oliuntitled
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 318
Skráði sig: Mán 29. Jún 2009 15:56
Reputation: 103
Staða: Ótengdur

Re: Heims server

Pósturaf oliuntitled » Mið 05. Maí 2021 18:05

Getur skoðað OpenMediaVault líka, ég endaði á að velja það fyrir mínar þarfir.
Er að keyra plex ásamt öllu aukadótinu á því og network shares ... er samt ekki að keyra redundancy þar sem ég þarf ekki slíkt fyrir mitt use case.




TheAdder
Tölvutryllir
Póstar: 667
Skráði sig: Mið 09. Des 2020 11:22
Reputation: 187
Staða: Ótengdur

Re: Heims server

Pósturaf TheAdder » Fim 06. Maí 2021 09:42

Ég er að keyra TrueNAS hjá mér, Plex, leikjaserverar og backup. Líkar mjög vel við það.


NZXT 710i - Ryzen 7 5800X - 32GiB 3200 M/T RAM - X570 Aorus Ultra - PowerColor Radeon RX 7900 XTX - 1TB Samsung 970 Pro, 2TB Samsung 970 Evo

Skjámynd

Sydney
1+1=10
Póstar: 1108
Skráði sig: Lau 29. Mar 2008 19:26
Reputation: 55
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Heims server

Pósturaf Sydney » Mán 10. Maí 2021 12:20

Ég er að keyra serverinn minn á nokkuð standard Debian stýrikerfi með RAID6 í gegnum mdadm, 6x4TB diskar. Old school, en svín virkar. Nota hann aðallega fyrir Plex og gagnageymslu.
Síðast breytt af Sydney á Mán 10. Maí 2021 12:21, breytt samtals 1 sinni.


Gigabyte X570 Aorus Ultra | Ryzen 9 5900X | Corsair Vengeance RGB Pro 32GB 3200MHz CL16 | Fractal Design Define S
Aorus Xtreme RTX 2080 Ti | 500GB Samsung 980 Pro | Corsair AX860 | ROG Swift PG279Q
Ducky YOTM | Glorious Model O | Sennheiser HD650 | Thrustmaster Warthog HOTAS
Thinkpad X1 Yoga 2nd Gen OLED

Skjámynd

Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3090
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 522
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Heims server

Pósturaf Hjaltiatla » Mán 10. Maí 2021 18:28

Truenas er flóknara að læra á en er mjög gott. Undraid er mjög gott kerfi en er með leyfi á bakvið kerfið sem ég persónulega fýla ekki.
Hægt er að setja upp linux file server (lendir þá í að þurfa að edita config skrár fyrir SMB share og þess háttar) sem er líka þrusu fínt.
Windows 10/windows server vél sett upp sem file server er eflaust einfaldasta lausnin. Þarft ekki meira en flakkara eða innværa diska tengda við vélina og getur notað GUI til að stilla File share og NTFS réttindi fyrir notendur.Gætir síðan sett upp Rclone og keyrt reglulega Scheduled task og bakkað upp mikilvægustu gögnin þín í eitthvað af þessum skýjaþjónustum.

https://rclone.org/overview/


Edit: Til ansi margar File backup hugbúnaðalausnir sem henta við mismunandi aðstæður (fer líka eftir því hvaða stýrikerif þú ert að afrita).
Síðast breytt af Hjaltiatla á Mán 10. Maí 2021 18:48, breytt samtals 1 sinni.


Just do IT
  √