Síða 1 af 1

Torrent skyndilega hætt að virka - solved

Sent: Mið 10. Feb 2021 00:15
af Siggihp
Halló
Ég er með ubuntuserver sem keyrir nokkra docker containers
Lenti í því í gær og í dag að qbittorrent nær ekki að downloada torrentum. Búinn að prófa að sækja ubuntu.iso en það stallar líka. Prófaði að setja upp transmission docker sem hegðaði sér eins. Á eftir að prófa deluge á ubuntu servernum.
Sabnzb docker sem ég nota líka, tekst að downloada frá sama server. Ég er búinn að restarta servernum 2x.
Ég prófaði að setja transmission upp á borðtölvunni minni og sækja ubtunu.iso skránna og það downloadaðist hratt á desktop vélinni.
Routerinn minn er XR-500 Netgear og ég er hjá Vodafone. Ég á reyndar eftir að restarta routernum.
Hvað gæti verið vandamálið?

Re: Torrent skyndilega hætt að virka

Sent: Mið 10. Feb 2021 07:40
af rapport
Cap hjá ISP?

Re: Torrent skyndilega hætt að virka

Sent: Mið 10. Feb 2021 12:00
af Siggihp
Getur það tengst bara 1 tölvu? Torrent download virkar á öðrum tölvum

Re: Torrent skyndilega hætt að virka

Sent: Mið 10. Feb 2021 12:02
af nonesenze
prufaðu að breyta download folder í eitthvað annað

Re: Torrent skyndilega hætt að virka

Sent: Mið 10. Feb 2021 13:22
af Siggihp
Prófaði að breyta download folder, það virkar ekki
Prófaði að restarta router, það virkar ekki.
setti upp deluge docker og náði að koma einu torrent í gegn, en hætti svo að virka

Sabnzb download virkar frá servernum

Re: Torrent skyndilega hætt að virka

Sent: Mið 10. Feb 2021 15:04
af Siggihp
Hafði líka samband við Vodafone, þau sögðu að þau væru ekki að blocka þetta

Re: Torrent skyndilega hætt að virka

Sent: Mið 10. Feb 2021 16:30
af Hjaltiatla
Spurning hvort það sé einfaldlega port vesen á containerum.
Skv documentation á docker hub notar sabnzbd port 8080 og 9090 default en qbittorrent 6881,6881udp og 8080.
Ættir að geta tékkað á hvaða port eru í State "Listen" og ahtugað hvort "Program Name" hjá qbittorrent sé þarna á listanum með port í stöðunni "Listen".

Kóði: Velja allt

netstat -ntlp

Ef þu villt eitthvað skoða nánar með netstat þá er þetta sniðug skipun til að fá upplýsingar um valmöguleika

Kóði: Velja allt

curl cheat.sh/netstat

Re: Torrent skyndilega hætt að virka

Sent: Mið 10. Feb 2021 17:38
af Siggihp
Ég skoða þessar skipanir í kvöld
Skrítið samt að 3 mismunandi dockerar tengdir torrentum lendi í þessu á sömu vél.
Búinn að keyra docker compose upp nokkrum sinnum þannig að það ætti að initializast

Re: Torrent skyndilega hætt að virka

Sent: Mið 10. Feb 2021 17:42
af Hjaltiatla
Ekki nema hdd diskur sé fullur :)

Re: Torrent skyndilega hætt að virka

Sent: Mið 10. Feb 2021 17:56
af Siggihp
600gb laus og Sabnzb nær að downloada svo að ég held að það sé ekki málið. En ætla að prófa að taka til og hreinsa smá pláss. Getur alveg komið til greina að það sé eitthvað limit á þessu þannig

Re: Torrent skyndilega hætt að virka

Sent: Mið 10. Feb 2021 18:00
af depill
Þetta gerist hjá mér þegar

1. Mappan er ekki til sem er veirð að vista í
2. Skrifréttindi eru ekki rétt í möppuna sem er verið að vista í

Re: Torrent skyndilega hætt að virka

Sent: Mið 10. Feb 2021 19:02
af ElGorilla
Kannski DNS, ég myndi fara inn í containerana og prófa nokkur lén með nslookup.

Re: Torrent skyndilega hætt að virka

Sent: Mið 10. Feb 2021 20:52
af Siggihp
Fór inní qbittorrent containerinn og gerði nslookup á torrent.ubuntu.com og fékk svar:
root@b85257c2a74b:/# nslookup torrent.ubuntu.com
Server: 127.0.0.11
Address: 127.0.0.11#53

Non-authoritative answer:
Name: torrent.ubuntu.com
Address: 91.189.95.21

prófaði að búa til skrá í downloads möppuna og það tókst, þannig að hún er til og skrifréttindi til staðar

netstat -ntlp skilaði þessu
root@b85257c2a74b:/# netstat -ntlp
Active Internet connections (only servers)
Proto Recv-Q Send-Q Local Address Foreign Address State PID/Program name
tcp 0 0 172.18.0.21:33793 0.0.0.0:* LISTEN -
tcp 0 0 127.0.0.1:36673 0.0.0.0:* LISTEN -
tcp 0 0 127.0.0.11:37669 0.0.0.0:* LISTEN -
tcp6 0 0 :::8111 :::* LISTEN -

Re: Torrent skyndilega hætt að virka

Sent: Mið 10. Feb 2021 21:01
af Hjaltiatla
Siggihp skrifaði:Fór inní qbittorrent containerinn og gerði nslookup á torrent.ubuntu.com og fékk svar:
root@b85257c2a74b:/# nslookup torrent.ubuntu.com
Server: 127.0.0.11
Address: 127.0.0.11#53

Non-authoritative answer:
Name: torrent.ubuntu.com
Address: 91.189.95.21

prófaði að búa til skrá í downloads möppuna og það tókst, þannig að hún er til og skrifréttindi til staðar

netstat -ntlp skilaði þessu
root@b85257c2a74b:/# netstat -ntlp
Active Internet connections (only servers)
Proto Recv-Q Send-Q Local Address Foreign Address State PID/Program name
tcp 0 0 172.18.0.21:33793 0.0.0.0:* LISTEN -
tcp 0 0 127.0.0.1:36673 0.0.0.0:* LISTEN -
tcp 0 0 127.0.0.11:37669 0.0.0.0:* LISTEN -
tcp6 0 0 :::8111 :::* LISTEN -


Betra að gera netstat -ntlp réttum meginn þ.e ekki inní Containernum heldur á Ubuntu servernum (Docker hostinum)

Re: Torrent skyndilega hætt að virka

Sent: Mið 10. Feb 2021 22:44
af Siggihp
Factory resettaði routerinn til að haka við það. Ekkert breyttist.

Fann qbittorrent loggana inní docker containernum undir config/qbittorrent/logs og skoðaði latest logginn með cat qbittorrent.log og sé þar permission error. þannig að ég þarf að skoða eitthvað hvernig torrent mappan er stillt og hvernig docker notendurnir nota hana. skrítið að þetta byrji allt í einu
--
(W) 2021-02-10T22:21:51 - File error alert. Torrent: "ubuntu-20.10-desktop-amd64.iso". File: "/incomplete-downloads/ubuntu-20.10-desktop-amd64.iso". Reason: ubuntu-20.10-desktop-amd64.iso mkdir (/incomplete-downloads/ubuntu-20.10-desktop-amd64.iso) error: Permission denied

Fann útúr því hvaða mappa átti að vera í staðinn fyrir /incomplete-downloads/ og lagaði það í qbittorrent web ui og endurkeyrði torrentin aftur inn og búmm allt virkar einsog blómstrið eina. :happy
Þá þarf ég bara að finna rót vandans hvaðan sem hún kom og stilla rétta möppu á réttum stað. líklega hefur slegið saman einhversstaðar .

Takk allir fyrir hjálpina, lærði helling um netstat og details um dockerana :)