Síða 1 af 1

Er einhver með reynslu af 4,5g neti nova í kef city

Sent: Mið 19. Ágú 2020 15:07
af vesi
Er að flytja til kef, og vegna ljósleiðara leysis er ég að skoða lausnir þar til bætt verði úr því.

Gott/Slæmt Eithvað

Let me know.

kv. v

Re: Er einhver með reynslu af 4,5g neti nova í kef city

Sent: Mið 19. Ágú 2020 15:21
af dogalicius
Mæli með kapalvæðingu ef hún er þar sem þú verður. Hafði heyrt misgóða hluti um þá en er núna búinn að vera hjá þeim í 3 vikur og ekkert nema
gott um þá að segja.

Re: Er einhver með reynslu af 4,5g neti nova í kef city

Sent: Mið 19. Ágú 2020 15:31
af ColdIce
4.5 virkaði mjög vel fyrir mig þar síðasta vetur

Re: Er einhver með reynslu af 4,5g neti nova í kef city

Sent: Mið 19. Ágú 2020 23:51
af dori
Fer rosalega mikið eftir staðsetningu. Prófaðu bara að gera speedtest á símann þinn sirka þar sem routerinn myndi vera. Það gefur rosalega góða hugmynd. Ef það er eitthvað tæpt er hægt að fá router með utanáliggjandi loftneti sem er hægt að staðsetja á hentugri stað.

En svo er farsímanet alltaf verra en ljósleiðari bara af því að ef það eru óvenju margir á svæði miðað við venjulega traffík þá lækkar hraðinn hjá öllum (ólíklegt að slíkt gerist í íbúðahverfi en þú getur ímyndað þér stórar samkomur eins og útihátíðir, tónleika eða sumarhúsahverfi á þessum stærstu helgum).

Re: Er einhver með reynslu af 4,5g neti nova í kef city

Sent: Fim 20. Ágú 2020 09:11
af Póstkassi
Tek undir með dogalicius varðandi Kapalvæðingu. Hef verið hjá þeim frá áramótum og er með 500/50 og hefur það verið frekar stabílt.

Re: Er einhver með reynslu af 4,5g neti nova í kef city

Sent: Fim 20. Ágú 2020 10:14
af vesi
Já okey, vissi ekki að kapalvæðing væri til. En gatan sem ég er að fara í er á áætlun 2021, og ætlaði að græja þetta með nova þangað til.

Re: Er einhver með reynslu af 4,5g neti nova í kef city

Sent: Fim 20. Ágú 2020 10:20
af jonsig
Mordor of Iceland, including cellular coverage.