Síða 1 af 1

Netflix að blokka Expressvpn

Sent: Mið 25. Mar 2020 00:12
af tRyx
Hef verið með ExpressVPN nokkuð lengi og skyndilega í dag kom "You seem to be using an unblocker or proxy" á Netflix og ég hef reynt allt en ekkert virkar.. þetta er á AppleTV. LG sjónvarp og net hjá Nova

Re: Netflix að blokka Expressvpn

Sent: Mið 25. Mar 2020 06:57
af Viktor
Hvað þýðir “ég hef reynt allt”?

Ertu búinn að hafa samband við þá?

Re: Netflix að blokka Expressvpn

Sent: Mið 25. Mar 2020 10:31
af tRyx
Sallarólegur skrifaði:Hvað þýðir “ég hef reynt allt”?

Ertu búinn að hafa samband við þá?


Lokað hjá þeim vegna Covid kom hjá mér. Breytti DNS. Ip. Restartaði öllu. Gafst upp og resetaðði appletv og sætti mig við íslenska netflix í bili.

Re: Netflix að blokka Expressvpn

Sent: Mið 25. Mar 2020 10:35
af Porta
Skrítið, US Netflix í gegnum ExpressVPN virkar hjá mér :/

Re: Netflix að blokka Expressvpn

Sent: Mið 25. Mar 2020 12:21
af agust1337
Virkar fyrir mig.
Notaði USA Washington DC

Re: Netflix að blokka Expressvpn

Sent: Mið 25. Mar 2020 13:42
af dezeGno
Sendi þeim support email í gær og athugaði þetta. Það er sem sagt vesen með MediaStreamer hjá þeim, as in DNS-inum sem maður notar á t.d. AppleTV, virkar samt fínt ef að maður notar ExpressVPN appið í símanum eða tölvunni... Þeir vissu af þessu og er víst verið að vinna í því að laga þetta.

Re: Netflix að blokka Expressvpn

Sent: Mið 25. Mar 2020 14:27
af ZoRzEr
Lenti sjálfur í bölvuðu basli með ExpressVPN og VIPDNSCLUB þegar ég fékk 2019 LG sjónvarp. Hafði virkað fínt á 2016 módelinu sem ég var með á undan en snarhætti þegar nýja tækið var tekið í notkun. Það er reyndar innbyggða Netflix appið í sjónvarpinu sjálfu, ekki AppleTV.

Þetta virkar ekki enn þann dag í dag og engin skýr svör að fá.

Re: Netflix að blokka Expressvpn

Sent: Mið 25. Mar 2020 16:01
af GullMoli
ZoRzEr skrifaði:Lenti sjálfur í bölvuðu basli með ExpressVPN og VIPDNSCLUB þegar ég fékk 2019 LG sjónvarp. Hafði virkað fínt á 2016 módelinu sem ég var með á undan en snarhætti þegar nýja tækið var tekið í notkun. Það er reyndar innbyggða Netflix appið í sjónvarpinu sjálfu, ekki AppleTV.

Þetta virkar ekki enn þann dag í dag og engin skýr svör að fá.


Hefur það ekki eitthvað með localið á sjónvarpinu að gera? Tækið er stillt á Ísland eða og þú þarft að stilla það yfir á BNA? Býst við því að Netflix appið athugi bæði..

Getur verið alveg meiriháttar vesen, stundum þarf að flasha öðru firmware'i ef það er í boði. Lang auðveldast að nota bara Apple TV við svona stúss.

Re: Netflix að blokka Expressvpn

Sent: Mið 25. Mar 2020 19:11
af Stuffz
aldrei lent í veseni hér

nota bara plain vanilla netflix ;P

Re: Netflix að blokka Expressvpn

Sent: Lau 04. Apr 2020 15:21
af haraldurkarls
Þetta hefur virkað smooth hjá mér síðan 2016

https://medium.com/@HaraldurKarls/hvern ... ffde333dd5

Re: Netflix að blokka Expressvpn

Sent: Lau 04. Apr 2020 21:51
af ellertj
Þetta á bara við ef þið eruð ekki að fara í gegnum appið.

Appið virkar fínt, það er bara á tækjum sem nota dns breytingu (eins og appletv) sem eru í veseni. Þetta gerðist fyrir nokkrum mánuðum hjá þeim og það tók þá nokkra daga að laga þetta þá.