Síða 1 af 1

Vesen með að setja upp stýrikerfi

Sent: Mið 17. Apr 2019 17:54
af tomas52
Daginn vaktarar
Ég er í frekar miklu veseni með að setja upp stýrikerfi á tölvuna mína það kemur bara blár skjár þegar allt er búið að loadast skelli mynd í viðhengi. Kannast eitthver við þetta
Er með Windows 10 á lykli sem ég keypti í kisildal
Mynd

Re: Vesen með að setja upp stýrikerfi

Sent: Mið 17. Apr 2019 18:50
af jonfr1900
Náðu í "Download Tool Now" og búðu til þinn eigin uppsetningar disk ef þú hefur ekki gert það nú þegar. Þetta er líklega skemmd skrá í uppsetningar kerfinu hjá þér. Settu Windows 10 fyrst upp án þess að nota serial lykil.

https://www.microsoft.com/en-us/softwar ... /windows10

Re: Vesen með að setja upp stýrikerfi

Sent: Fim 18. Apr 2019 12:20
af Theraiden
Sammála síðasta ræðumanni, gætu verið corrupt skrár. Náðu í official Windows 10 ISO á microsoft.com og settu það á Disc/usb lykil og prófaðu að reinstalla, ef þú færð sömu niðurstöðu eftir það þá er hreinlega að athuga með vélbúnaðinn með útilokunaraðferðinni.