Síða 1 af 1

Ubiquiti - Unify ?

Sent: Mið 17. Okt 2018 09:37
af svavaroe
Góðan dag.
Ég þarf að huga að því að skipta út OpenMesh kerfi sem ég er með í rekstri.
Hvar hafa menn verið að versla sér á besta verðinu Ubiquiti unify access pointa ?

Er kominn einhver reynsla á UAP-nanoHD ?

Ætli ég þurfi ekki 4x senda eða svo. Hver þeirra með um sirka 50 devices allt í senn.
Svo flakkar fólk á milli í húsinu.

Takk fyrir.

Re: Ubiquiti - Unify ?

Sent: Mið 17. Okt 2018 09:40
af Benzmann
ég mæli með https://www.eurodk.com/

hef verslað við þá mikið, sendingartíminn er innan við viku minnir mig.

Re: Ubiquiti - Unify ?

Sent: Mið 17. Okt 2018 09:56
af Cascade
Staðfesti þetta með eurodk

Langódýrast. Shipping ekki dýrt, er samt 2-3 daga UPS shipping, eins og hann sagði, undir viku (mín reynsla 3-4 dagar)

Re: Ubiquiti - Unify ?

Sent: Mið 17. Okt 2018 09:59
af svavaroe
Takk fyrir þetta kærlega.
Er ekki allveg að skilja admin kerfið og hugbúnaðinn.
Þarf ég þennan Unify CloudKey gæja til að admin'a sendana?
Eða er nóg fyrir mig að vera með unify hugbúnað á makkanum til að admina access pointana þegar ég þarf?

Þetta er ekki mörg hús, heldur bara eitt. þannig að single site.

Re: Ubiquiti - Unify ?

Sent: Mið 17. Okt 2018 10:04
af Njall_L
svavaroe skrifaði:Takk fyrir þetta kærlega.
Er ekki allveg að skilja admin kerfið og hugbúnaðinn.
Þarf ég þennan Unify CloudKey gæja til að admin'a sendana?
Eða er nóg fyrir mig að vera með unify hugbúnað á makkanum til að admina access pointana þegar ég þarf?

Þetta er ekki mörg hús, heldur bara eitt. þannig að single site.

Getur keyrt controllerinn beint af tölvu eða af CloudKey. Setti sjálfur fjótlega upp CloudKey til að geta komist inn á kerfið hvaðan sem er og til að geta verið með App í símanum.

Re: Ubiquiti - Unify ?

Sent: Mið 17. Okt 2018 10:54
af Blues-
Ég er að keyra Controllerinn á Raspberry Pi hjá mér ..
Sá enga ástæðu að kaupa Cloud Key þegar þetta keyrir fínt á Pi-inu ..

Re: Ubiquiti - Unify ?

Sent: Mið 17. Okt 2018 10:57
af Kristján Gerhard
Getur líka keyrt controllerinn í VM eða Docker ef þú ert svo útbúinn.

Re: Ubiquiti - Unify ?

Sent: Mið 17. Okt 2018 11:00
af svavaroe
Ok's cool.
Er með nóg af vm svæði ef þess þarf. En þarf ég semsagt Cloud Key ef ég ætla að stússast eithvað í Appinu í símanum?

Re: Ubiquiti - Unify ?

Sent: Mið 17. Okt 2018 11:01
af svavaroe
Blues- skrifaði:Ég er að keyra Controllerinn á Raspberry Pi hjá mér ..
Sá enga ástæðu að kaupa Cloud Key þegar þetta keyrir fínt á Pi-inu ..

Geggjað, vissi ekki að það væri hægt að keyra upp af ARM...

Re: Ubiquiti - Unify ?

Sent: Mið 17. Okt 2018 11:08
af Kristján Gerhard
svavaroe skrifaði:Ok's cool.
Er með nóg af vm svæði ef þess þarf. En þarf ég semsagt Cloud Key ef ég ætla að stússast eithvað í Appinu í símanum?


Nei, þú þarft ekki Cloud Key. Það er döngullinn þeirra. CK keyrir hinsvegar instance af Controller hugbúnaðinum. Þú þarft þennan hugbúnað til að gera breytingar eða fá út gögn. Gerir ekkert án hans. Hann er, eins og fram hefur komið hægt að keyra á local vél, VM, Docker og RPi.

Getur síðan notað sama Controllerinn til að stjórna fleiri en einu 'Site'.

K.

Re: Ubiquiti - Unify ?

Sent: Mið 17. Okt 2018 11:17
af svavaroe
Glæsilegt. Takk fyrir þetta kærlega.
Skelli mér á nokkra nanoHD og skipti þessu helvítis openmesh drasli út...

Re: Ubiquiti - Unify ?

Sent: Fim 18. Okt 2018 10:59
af svavaroe
Eitt enn. Hvaða sendingarmáta hafið þið verið að nota?
UPS? virðist ódýrast frá þeim, kemur það upp að dyrum er það ekki ?

Þarf að panta þetta en verð sjálfur persónulega ekki á landinu í næstu viku, vill helst að þetta sé komið þegar ég kem til baka.

Re: Ubiquiti - Unify ?

Sent: Fim 18. Okt 2018 11:45
af Cascade
Hef verið að nota

UPS World Wide Saver

Hefur minnir mig alltaf verið ódýrast og fljótast

Svo hringja þeir oft í mig og spyrja hvort ég vilji þetta heim eða vinnuna, ég fæ þetta svo alltaf í vinnuna
Losna við vesenið að þetta sé að koma heim þegar enginn er heima.
Ekkert mál að vera í símasambandi við UPS á íslandi daginn sem þetta er að koma, mjög þægilegt

Re: Ubiquiti - Unify ?

Sent: Fim 18. Okt 2018 11:51
af svavaroe
Takk fyrir kærlega. :)

Re: Ubiquiti - Unify ?

Sent: Fim 18. Okt 2018 17:32
af kelirina
eða fá þér edgerouter og notast við UNMS sjá: https://unms.com/

þarft þá ekki cloud key