Síða 1 af 1

Vafrarinn frís

Sent: Sun 20. Mar 2005 11:34
af Tyler
Sælir
Ég er að vona að þið getið hjálpað mér aðeins.

Málið er að ég var að setja upp tölvu fyrir vin minn og allt hefur gengið eins og í sögu fyrir utan að alltaf þegar ég fer á netið þá frís vafrarinn(og tölvan) eftir smástund. Það skiptir ekki máli hvort ég nota explorer eða firefox

Mér dettur ekkert í hug um hvað þetta gæti verið. Hélt fyrst að þetta gæti verið netkortið enn tölvan tengist internetinu í gegnum router en það virðist virka vel, því ég get alveg tengst annari tölvu sem er tengt við routerinn.

Vona að þetta sé skiljanlegt hjá mér. Bíð spenntur eftir svörum frá ykkur.

Kv. Tyler

Sent: Sun 20. Mar 2005 12:58
af MezzUp
Er flest annað stabílt hjá þér? Frís hún t.d. ekki í leikjum eða neinu öðru?

Sent: Sun 20. Mar 2005 13:05
af Tyler
Það er það furðulegasta Mezzup að hún er stapíl í öllu öðru, það er bara þegar ég fer á netið sem hún frís. Eftir svona hálfa mínutu á netinu frís allt og ég þarf að restarta henni.

Kv. Tyler

Sent: Sun 20. Mar 2005 15:19
af kristjanm
Ertu búinn að vírusskanna hana?

Prófaðu að vírusskanna hana með einhverri góðri vírusvörn og scannaðu hana líka með Microsoft Antispyware.

Sent: Sun 20. Mar 2005 17:41
af daremo
ertu að nota einhverja eldveggi eða forrit sem takmarka bandvídd?
þú getur prófað að slökkva á þeim og athugað hvort þetta batni eitthvað.

Sent: Sun 20. Mar 2005 18:14
af Tyler
Ég er búin að vírusskanna hana og er líka búin að prufa að slökkva á vírusvörninni og eldveggnum en það virðist ekki skipta máli. Mér finnst þetta alveg stórfurðulegt mál. Er bara engan veginn að átta mig á þessu.

En endilega haldið áfram að koma með hugmyndir....

Kv. Tyler

Sent: Sun 20. Mar 2005 18:57
af Dust
Getur þetta ekki verið einhver bad/ónýt codec sem þú hefur sett inn í tölvuna, og þegar vafrinn reynir að opna einhvað á netinu sem þarf þetta codec þá frís allt. Vinur minn var með svipað vandarmál, explorerinn var alltaf að frjósa hjá honum þegar maður fór inn í möppur sem voru stiltar á thumbnails og innihélt vidoe fæla (ekki iexplorerinn reyndar) og þegar maður sendi error report þá sagði hann Bill Gates kær vinur minn að það væru einhver bad codecs or some sem væru að skemmileggja.

Bara svona datt þetta í hug, þó svo þetta hljómi nú ekki neitt voða eins, þá er í lagi að athuga :D

Sent: Mán 21. Mar 2005 15:06
af emmi
Innbyggt netkort eða kort í PCI rauf?

Sent: Þri 22. Mar 2005 19:21
af Tyler
Þetta endaði bara með því að ég fór með hana í viðgerð. Þeir gátu ekki fundið hvað var að henni heldur en héldu að þetta væri móðurborðið sem væri eitthvað að klikka, svona eins og ég hélt.

Svo núna er stefnan hjá vini mínum bara að kaupa nýja og er hann að spá í að láta þá í Tölvuvirkni setja saman eina shuttle vél. Specs kom seinna frá mér, því ég vil endilega heyra álit ykkar.

Takk fyrir alla aðstoðina annars.

Kv. Tyler