Síða 1 af 1

íslykill - rafræn skilríki

Sent: Mán 30. Apr 2018 14:21
af OddBall
Hvernig í fj&%$#%& geta rafræn skilríki verið öruggari en íslykill þegar þú getur tekið síma einhvers annars, slegið inn símanúmerið hans og komist inn á allt hjá viðkomandi í gegnum símann? Ef fólk er með síma og tölvur ólæstar hafa flestir vit á því að save-a ekki passwordin inn á heimabankann hjá sér í símanum eða á tölvunni ef það er á annað borð í boði. Reyndar reynir síminn að geyma passwordið í Samsung Pass inn á nýja Landsbankaappinu og ég get ekki valið að fá ekki gluggann aftur svo að ég þarf að afþakka í hvert einasta skipti. Ég bara skil þetta ekki. ](*,)

Re: íslykill - rafræn skilríki

Sent: Mán 30. Apr 2018 14:28
af JReykdal
Það er nú PIN með rafrænum skilríkjum sem er smá öruggara.

En aðalmálið hjá bönkunum er að koma ábyrgðinni yfir á notandann. Ef notast er við rafræn skilríki fer auðkenningin fram á tæki notandans og því ekkert "bankamegin" sem getur verið hakkað. Bankinn er því ábyrgðarlaus.

Ég er samt ósáttur við að það skuli ekki vera user/pass+rafræn skilríki. Það eykur öryggisfaktorinn umtalsvert.

Re: íslykill - rafræn skilríki

Sent: Mán 30. Apr 2018 17:06
af arons4
Setur góða læsingu á lockscreenið í símanum og svo er pin á rafrænu auðkenningunni. Setur svo pin á SIM kortið(sem er ekki sama og pinnið á símann) ef það skyldi vera tekið og þá er þetta talsvert öruggt.

Einnig taka flestir eftir því fyrr ef síminn er horfinn heldur en ef brotist er inn á heimabankann, og geta þá jafnveg brugðist fyrr við.

Re: íslykill - rafræn skilríki

Sent: Mán 30. Apr 2018 21:35
af OddBall
Ég skil hvað þú ert að fara en 3 pin... í viðbót við öll hin pin númerin sem maður þarf að muna... er mjög óeðlilegt að maður eigi í erfiðleikum með að muna þetta allt saman?

Re: íslykill - rafræn skilríki

Sent: Mán 30. Apr 2018 22:35
af hagur
Security og convenience fara sjaldnast saman.

Re: íslykill - rafræn skilríki

Sent: Mán 30. Apr 2018 23:11
af Starman
En ruglið að fjarskiptafyrirtækin ætla að fara rukka fyrir hvert skipti sem þú notar þessu rafrænu skilríki á SIM kortinu.
Hvernig er það eiginlega réttlætt ?
Hvaða kostnaður er þetta fyrir þau nema við upphaflegu útgáfu skilríkja á SIM kortið ?

Re: íslykill - rafræn skilríki

Sent: Mán 30. Apr 2018 23:20
af Viktor
Starman skrifaði:En ruglið að fjarskiptafyrirtækin ætla að fara rukka fyrir hvert skipti sem þú notar þessu rafrænu skilríki á SIM kortinu.
Hvernig er það eiginlega réttlætt ?
Hvaða kostnaður er þetta fyrir þau nema við upphaflegu útgáfu skilríkja á SIM kortið ?


Er þetta grín?

Það er ekki ókeypis að reka fjarskiptakerfi. Auðkenni notar GSM kerfið.

Re: íslykill - rafræn skilríki

Sent: Mán 30. Apr 2018 23:38
af Starman
Geri mér alveg grein fyrir því, en hvernig er þessi umferð eitthvað öðruvísi en önnur gagnaumferð sem réttlætir að það sé rukkað sérstaklega fyrir ?

Re: íslykill - rafræn skilríki

Sent: Mán 30. Apr 2018 23:42
af Revenant
Starman skrifaði:Geri mér alveg grein fyrir því, en hvernig er þessi umferð eitthvað öðruvísi en önnur gagnaumferð sem réttlætir að það sé rukkað sérstaklega fyrir ?

Rafræn skilríki eru byggð á SMS skilaboðum (þ.e. SMS request kemur inn sem er síðan sign-að og sent með SMS-i til baka)

Re: íslykill - rafræn skilríki

Sent: Mán 30. Apr 2018 23:47
af arons4
Revenant skrifaði:
Starman skrifaði:Geri mér alveg grein fyrir því, en hvernig er þessi umferð eitthvað öðruvísi en önnur gagnaumferð sem réttlætir að það sé rukkað sérstaklega fyrir ?

Rafræn skilríki eru byggð á SMS skilaboðum (þ.e. SMS request kemur inn sem er síðan sign-að og sent með SMS-i til baka)

Eru ekki allir með endalaust sms innanlands í dag?

Re: íslykill - rafræn skilríki

Sent: Þri 01. Maí 2018 02:44
af DJOli
Ég er að borga 5þús á mánuði hjá Símanum fyrir endalausar mínútur og einhver 5 eða 10gb af gagnamagni á mánuði. Það er enginn að fara að réttlæta fyrir mér aukalega rukkun á umferð vegna rafrænna skilríkja. Fuck That.

Re: íslykill - rafræn skilríki

Sent: Þri 01. Maí 2018 11:00
af GuðjónR
Er byrjað að rukka fyrir rafræn skilríki?

Re: íslykill - rafræn skilríki

Sent: Þri 01. Maí 2018 11:29
af Revenant
Kostnaður við rafræn skilríki eru pínu flókin.

Kostnaður símafyrirtækisins er sá að hann þarf að reka fjarskiptakerfið og kaupa dýrari SIM kort því þau verða að styðja rafræn skilríki. Einnig þarf símafyrirtækið að sjá um afhendingu á SMS skilaboðum í rauntíma þegar verið er að auðkenna. Símafyrirtækið þarf einnig að sjá um alla umsjón með útgáfu skilríkjana (pappírsvinna, þjálfun starfsfólk, annar sérhæfður búnaður o.s.frm.).

Þá er það kostnaður Auðkennis sem gefur út sjálft skilríki. Auðkenni rukkar ekki fyrir útgáfu skilríkjana á SIM kortum en rukkar fyrir athugun hvort að skilríkið sé virkt þegar það er notað.

Þar að auki er það kostnaður fyrirtækisins sem integrerar á móti þessari auðkenningarleið.

Re: íslykill - rafræn skilríki

Sent: Þri 01. Maí 2018 12:34
af arons4
GuðjónR skrifaði:Er byrjað að rukka fyrir rafræn skilríki?

Hringdu gerir það amk ekki, held ekki nova heldur þó ekki viss.

Re: íslykill - rafræn skilríki

Sent: Þri 01. Maí 2018 13:06
af kjartanbj
DJOli skrifaði:Ég er að borga 5þús á mánuði hjá Símanum fyrir endalausar mínútur og einhver 5 eða 10gb af gagnamagni á mánuði. Það er enginn að fara að réttlæta fyrir mér aukalega rukkun á umferð vegna rafrænna skilríkja. Fuck That.


djöfull ertu að borga mikið á mánuði fyrir símann.. ég borga 1990kr hjá Hringdu fyrir ótakmarkað og 100Gb af gagnamagni , reyndar fylgir þeim pakka að maður þarf að vera með netið hjá þeim og ótakmarkað gagnamagn

Re: íslykill - rafræn skilríki

Sent: Þri 01. Maí 2018 23:58
af DJOli
kjartanbj skrifaði:
DJOli skrifaði:Ég er að borga 5þús á mánuði hjá Símanum fyrir endalausar mínútur og einhver 5 eða 10gb af gagnamagni á mánuði. Það er enginn að fara að réttlæta fyrir mér aukalega rukkun á umferð vegna rafrænna skilríkja. Fuck That.


djöfull ertu að borga mikið á mánuði fyrir símann.. ég borga 1990kr hjá Hringdu fyrir ótakmarkað og 100Gb af gagnamagni , reyndar fylgir þeim pakka að maður þarf að vera með netið hjá þeim og ótakmarkað gagnamagn


Kem til Hringdu í sömu viku og ég fæ ljósleiðara.