Síða 2 af 2

Re: Linux distro - könnun

Sent: Mið 24. Apr 2019 23:08
af daremo
Ég nota yfirleitt þessi LTS distro, Redhat/Centos eða Ubuntu. Ég vinn við að halda þessu gangandi, þannig að ég vel eitthvað sem er hægt að treysta á.

Þetta er allt orðið svo keimlíkt í dag eftir að systemd fór að yfirtaka allt, þannig að það skiptir eiginlega engu málið hvaða distro maður notar, ja allavega ef maður notar Linux bara fyrir terminalið.
Fyrir mér er það bara terminal. Desktop á Linux hefur alltaf verið leiðinleg upplifun, og það er ekkert að fara að breytast. Ég er með Ubuntu 18.10 uppsett sem ég nota af og til reyndar, en yfirleitt nota ég bara Macos eða Windows.

Fyrsta distroið mitt var annars Slackware. Keypti þennan geisladisk í BT þegar það hét Bónus Tölvur, árið 1998.

Mynd

Re: Linux distro - könnun

Sent: Mið 24. Apr 2019 23:40
af Hjaltiatla
daremo skrifaði:Fyrir mér er það bara terminal. Desktop á Linux hefur alltaf verið leiðinleg upplifun, og það er ekkert að fara að breytast. Ég er með Ubuntu 18.10 uppsett sem ég nota af og til reyndar, en yfirleitt nota ég bara Macos eða Windows.


Var á sömu bls fyrir ekki svo löngu síðan, hins vegar er Hardware supportið orðið mun betra í dag en það var áður fyrr (fyrir utan Nvidia að vera alveg sér á báti en maður kemst alveg af með AMD grafík kort eða Intel HD Graphics etc... ).Container vinna locally á Linux distro er mun þæginlegri en á Windows og ef maður þarf í þau örfáu skipti að nota Windows þá keyrir maður einfaldlega upp VM í Virtualbox. Öryggið er jú mun betra og maður hefur leyfi til að gera hvað sem er (ekki settur í kassa).
Server meginn RHEL/Centos LTS fyrir eitthvað mission critical ekki spurning en alltaf gaman að spinna upp Ubuntu server fyrir eitthvað einfalt og fljótlegt og vera aðeins inní þeirri menningu.
Windows eru reyndar byrjaðir að supporta Openssh í powershell maður þarf einfaldlega að installa module og maður getur einnig installað Basic Linux distro ofaná Windows10 (persónulega þá finnst mér einfaldara að keyra upp Windows 10 VM en ef ég neyðist til að nota Windows t.d í domain joined umhverfum sem maður þarf nota Windows þá fer maður þá leið)

Re: Linux distro - könnun

Sent: Fös 26. Apr 2019 11:52
af gnarr
Ég er búinn að keyra Ubuntu á vinnu tölvunni frá 17.10 og ég verð að segja að ég er mjög ánægður með það og lýst alveg sérstaklega vel á 19.04.

Re: Linux distro - könnun

Sent: Fös 26. Apr 2019 14:28
af Hjaltiatla
gnarr skrifaði:Ég er búinn að keyra Ubuntu á vinnu tölvunni frá 17.10 og ég verð að segja að ég er mjög ánægður með það og lýst alveg sérstaklega vel á 19.04.


Pro tip:
í stað þess að eltast við langar man pages þá er mjög þæginlegt að keyra "curl cheat.sh/CommandName"

t.d "curl cheat.sh/ls" listar upp eftirfarandi upplýsingar

Kóði: Velja allt

#
# ls
#
# List directory contents.
#
# List files one per line:
  ls -1
#
# List all files, including hidden files:
  ls -a
#
# Long format list (permissions, ownership, size and modification date) of all files:
  ls -la
#
# Long format list with size displayed using human readable units (KB, MB, GB):
  ls -lh
#
# Long format list sorted by size (descending):
  ls -lS
#
# Long format list of all files, sorted by modification date (oldest first):
  ls -ltr
#
#


https://github.com/chubin/cheat.sh
https://cheat.sh/

Re: Linux distro - könnun

Sent: Mið 22. Maí 2019 20:18
af Hjaltiatla
Þessir tveir sem nota Antergos Þurfa greinilega að skipta yfir í annað Distro
https://antergos.com/blog/antergos-linux-project-ends/

FYI fyrir þá sem nota Gnome: Guake er byrjað að bjóða split screen í Terminal :) Þurfti sjálfur alltaf að nota Terminator áður.

Mynd

Re: Linux distro - könnun

Sent: Fim 23. Maí 2019 15:47
af Dropi
PopOS var það eina sem hagaði sér með Nvidia/Intel combo á fartölvunni minni, daily driver nema þegar ég þarf að komast í vinnuforrit á fartölvunni í Windows, þá er gott að lappinn tekur tvo nvme diska :) Frábærlega gott ubuntu based distro fyrir nvidia fartölvur.

Varðandi nvidia á linux þá var mín upplifun ömurleg þangað til ég komst í popos.

https://system76.com/pop


Re: Linux distro - könnun

Sent: Fim 23. Maí 2019 16:38
af Hjaltiatla
Dropi skrifaði:PopOS var það eina sem hagaði sér með Nvidia/Intel combo á fartölvunni minni, daily driver nema þegar ég þarf að komast í vinnuforrit á fartölvunni í Windows, þá er gott að lappinn tekur tvo nvme diska :) Frábærlega gott ubuntu based distro fyrir nvidia fartölvur.

Varðandi nvidia á linux þá var mín upplifun ömurleg þangað til ég komst í popos.

https://system76.com/pop


Gott að vita :)
Hef einnig heyrt að Nvidia spilar með Linux based vélum sem notast við Nvidia quadro GPU (Markhópur sem þeir geta ekki ignore-að)
"Quadro is Nvidia's brand for graphics cards intended for use in workstations running professional computer-aided design (CAD), computer-generated imagery (CGI), digital content creation (DCC) applications[when?], scientific calculations and machine learning"

Edit: Ef þú reddar mér Pop Os límmiða fyrir lappann minn þá skal ég skoða það að skipta yfir :lol:
Mynd

Re: Linux distro - könnun

Sent: Fös 24. Maí 2019 08:34
af Dropi
Hjaltiatla skrifaði:Edit: Ef þú reddar mér Pop Os límmiða fyrir lappann minn þá skal ég skoða það að skipta yfir :lol:



https://system76.com/swag/stickers

Díll! Ég er búsettur í englandi og myndi redda þessu ef ég væri þar núna, en er staddur í svíþjóð yfir sumarið, þú lætur bara senda þetta á þig heima \:D/

Re: Linux distro - könnun

Sent: Fös 24. Maí 2019 10:38
af Hjaltiatla
Dropi skrifaði:https://system76.com/swag/stickers
Díll! Ég er búsettur í englandi og myndi redda þessu ef ég væri þar núna, en er staddur í svíþjóð yfir sumarið, þú lætur bara senda þetta á þig heima \:D/


Oh man.. ég sem ætlaði að vera voða sniðugur :crying Held eg verði að standa við mitt og gefa Pop Os séns í allavegana 2 vikur.
Hef verið lengi að spá í að versla mér Fartölvu með minni skjá (er að nota 17" skjá í dag) og tek eftir að System76 er að bjóða uppá lyklaborð með UK layouti. Þannig að ef mér líkar Pop OS þá gæti það verið hentugt.

Re: Linux distro - könnun

Sent: Sun 26. Maí 2019 15:30
af daremo
Hjaltiatla skrifaði:FYI fyrir þá sem nota Gnome: Guake er byrjað að bjóða split screen í Terminal :) Þurfti sjálfur alltaf að nota Terminator áður.


Hefurðu skoðað tmux? Getur fengið split screen í hvaða terminal sem er með því.

Re: Linux distro - könnun

Sent: Sun 26. Maí 2019 15:59
af Hjaltiatla
daremo skrifaði:Hefurðu skoðað tmux? Getur fengið split screen í hvaða terminal sem er með því.


Hmmm.. Hef eingöngu verið að skoða attach eða detach fídusinn t.d þegar maður þarf að keyra langa scriptu/process t.d á server.
Heyrði af þessu þegar ég fór í gegnum Comptia linux + nám á Linux academy. Þyrfti líklega að skoða Tmux betur því mér heyrist
á því að ansi margir Linux notendur noti Tmux miðað við það sem ég les á r/sysadmin.

Ætla að gefa Tmux meiri athygli :happy

Re: Linux distro - könnun

Sent: Sun 26. Maí 2019 19:34
af Blues-
Ef þú vilt keyra eitthvað áfram ... Td. að keyra scriptu .. sem tekur langan tíma en vill ekki þurfa að hafa session opið ... Þá nota ég "screen"

Re: Linux distro - könnun

Sent: Sun 26. Maí 2019 23:10
af Hjaltiatla
Blues- skrifaði:Ef þú vilt keyra eitthvað áfram ... Td. að keyra scriptu .. sem tekur langan tíma en vill ekki þurfa að hafa session opið ... Þá nota ég "screen"

Gaur
Þetta er svokallað binary ástand, annaðhvort er hluturinn réttur eða rangur.
Maður notar ekki screen heldur Tmux \:D/
Kv.Gæinn sem notaði ekki Tmux neitt af viti nema fyrir sirka 4 klst