Síða 1 af 1

Opna port á TG789vac

Sent: Mið 14. Mar 2018 10:53
af playman
Er búinn að vera að reyna að opna port á þessum "blessaða" router, var að fá hann í hendurnar í gær og gvuð hvað ég er ekki að fíla þetta nýja viðmót þeirra! Það er hræðilegt!
Allavegana á gamla routernum var ég með viss port opin og ætlaði að setja upp sömu portin á þessum nýa router en þau virðast öll vera lokuð.
router.png
router.png (9.96 KiB) Skoðað 2133 sinnum

Og auðvitað vill/getur síminn ekki aðstoða með þetta, og benda bara á portforward sem eru ekki með þennan router með homeware, eða
benda á upplísingar á síminn.is sem segja mér ekkert.
Hvað er ég að gera vitlaust?

Re: Opna port á TG789vac

Sent: Mið 14. Mar 2018 12:10
af njordur
Þetta er ekki besta viðmót í heimi, en frekar einfalt og straight forward.

Miðað við skjáskotið þá er vandamálið hjá þér að þú ert líklegast að reyna forward-a port range 26900-26902, þú hefur hinsvegar sett þetta á að forwarda ytri port 26900 á innri port 26902.

Þarft að breyta þessu og setja 26900:26902 í báða port reitina.

Re: Opna port á TG789vac

Sent: Mið 14. Mar 2018 12:46
af playman
Langar að fara og skalla vegg.... svo einfalt, að manni skuli ekki hafa dottið þetta í hug ](*,) ](*,) ](*,) ](*,)
Svo er ekki neinstaðar minst á þetta, ef að einhver frá símanum sér þetta má hann alveg setja þetta í leiðbeiningarnar.
Takk kærlega fyrir, þetta er komið. :happy

Re: Opna port á TG789vac

Sent: Mið 14. Mar 2018 12:50
af brain
Ef þú "hoverar" yfir PORT merkjunum sést það.

Re: Opna port á TG789vac

Sent: Mið 14. Mar 2018 12:59
af playman
brain skrifaði:Ef þú "hoverar" yfir PORT merkjunum sést það.

Nope, kemur ekkert upp.

Re: Opna port á TG789vac

Sent: Mið 14. Mar 2018 13:57
af wicket
Ég er einmitt miklu ánægðari með þetta nýja firmware og GUI en það sem var áður.

Finnst einfaldara að setja upp þessar 10-14 port reglur og UPNP virkar eins og í sögu sem var ekki alltaf raunin með gamla dótið.

Re: Opna port á TG789vac

Sent: Mið 14. Mar 2018 15:29
af playman
Kannski á það eftir að venjast, er allavegana þæginlegt að sjá statusin á honum án þess að þurfa að skrá sig inná hann.

Re: Opna port á TG789vac

Sent: Mið 14. Mar 2018 15:48
af brain
Svona sé ég þetta:


Mynd

Re: Opna port á TG789vac

Sent: Mið 14. Mar 2018 16:09
af playman
Ég fæ þetta bara upp þegar að ég sleppi því að setja tölu í port gluggana, annars ekki.
Ég gerði aldrei villu þannig að ég fékk aldrei þennan glugga upp.

Re: Opna port á TG789vac

Sent: Mið 14. Mar 2018 16:23
af brain
brain skrifaði:Ef þú "hoverar" yfir PORT merkjunum sést það.



Vissi ekki hvernig ég ætti að segja það öðruvísi.

Sorrý....

Re: Opna port á TG789vac

Sent: Fim 15. Mar 2018 11:55
af siminn
Daginn.

Við höfum uppfært leiðbeiningarnar hjá okkur fyrir Homeware stýrikerfið þannig að þetta sé skiljanlegra.
Tókum okkur það bessaleyfi að nota port tölurnar sem playman var í vandræðum með og notuðum í leiðbeiningarnar.

Kveðja
Síminn

Re: Opna port á TG789vac

Sent: Fim 15. Mar 2018 14:29
af OverSigg
Mynd
Er að elska þessi reglu heiti