Síða 1 af 1

Uppsetning á router - Síminn

Sent: Lau 30. Des 2017 20:19
af Tappi
Ég var að skipta yfir í Símann frá Vodafone og er með minn eiginn router Asus RT-AC68U. Þetta var ekki neitt vesen með Vodafone en þetta virðist ætla að vera eitthvað flóknara hjá Símanum en þeir vilja ekkert aðstoða mig við að setja upp nema með router frá þeim.

Ég er með screenshot hérna að neðan. Fæ villu eins og auðkenningin gangi ekki en ég er búinn að double tékka með notendanafn og lykilorð. Getur einhver hjálpað?

https://photos.google.com/share/AF1QipM ... NBenNEcE5n

Re: Uppsetning á router - Síminn

Sent: Lau 30. Des 2017 20:33
af DJOli
Fann þessar leiðbeiningar frá 2015. Vonandi hjálpa þær eitthvað.
https://www.lappari.com/2015/09/viltu-s ... a-simanum/

Re: Uppsetning á router - Síminn

Sent: Lau 30. Des 2017 22:08
af Tappi
Ég var búinn að sjá þetta en því miður ekki sama firmware og get ekki fundið þennan ISP prófíl fyrir Símann. :(
En takk samt

Re: Uppsetning á router - Síminn

Sent: Sun 31. Des 2017 01:12
af DJOli
Þar sem þú ert búinn að versla netþjónustu hjá Símanum þá held ég að þeir megi ekki lagalega séð, neita að veita þér upplýsingar um hvernig þú eigir að tengja tæki sem þú keypti sjálfur við netþjónustuna hjá þeim.

Re: Uppsetning á router - Síminn

Sent: Sun 31. Des 2017 02:14
af arons4
DJOli skrifaði:Þar sem þú ert búinn að versla netþjónustu hjá Símanum þá held ég að þeir megi ekki lagalega séð, neita að veita þér upplýsingar um hvernig þú eigir að tengja tæki sem þú keypti sjálfur við netþjónustuna hjá þeim.

Þeir eru með viðeigandi upplýsingar á síðunni hjá sér..

https://www.siminn.is/forsida/adstod/net/uppsetning

Re: Uppsetning á router - Síminn

Sent: Sun 31. Des 2017 09:54
af Tappi
Haldið þið að þessar stillingar séu í einhverju rugli hjá mér? Er að spá með þessar VID tölur?

Mynd

Re: Uppsetning á router - Síminn

Sent: Sun 31. Des 2017 11:23
af Squinchy
En að versla bara við fjarskiptafyritæki sem hefur þjónustu? Magnað hvað síminn kemst alltaf upp með að vera algjör skíthæll við sína viðskiptavini

Re: Uppsetning á router - Síminn

Sent: Mán 12. Feb 2018 19:04
af Dragoon
Ég er að lenda í því sama með RT-N56U Asus router.
Fannstu lausn á þessu?

Re: Uppsetning á router - Síminn

Sent: Mán 12. Feb 2018 19:37
af emmi
Hvernig tengingu ertu með?

Re: Uppsetning á router - Síminn

Sent: Mán 12. Feb 2018 20:47
af Dropi
Squinchy skrifaði:En að versla bara við fjarskiptafyritæki sem hefur þjónustu? Magnað hvað síminn kemst alltaf upp með að vera algjör skíthæll við sína viðskiptavini


Úr vodafone í símann, úr öskunni í eldinn :)

Re: Uppsetning á router - Síminn

Sent: Fim 15. Feb 2018 18:00
af Tappi
Fann lausnina á þessu

undir WAN->Internet connection
er stilling sem heitir "Enable VPN + DHCP Connection" sem þarf að vera í NO