Síða 1 af 1

Vandamál með Touchpad vill ekki safe-ast í enable.

Sent: Þri 12. Des 2017 22:44
af jardel
Ég er með Lenovo fartölvu. Ég þarf að alltaf að nota þráðlausa mús við hana, því að Touchpadið neitar að safe ast eftir restart.
Ég er búinn að sækja nýjasta driverinn frá Lenovo. Veit einhver hvað er að?
touchpad.jpg
touchpad.jpg (71.27 KiB) Skoðað 982 sinnum

Re: Vandamál með Touchpad vill ekki safe-ast í enable.

Sent: Þri 12. Des 2017 22:59
af Klemmi
Mögulega stilling í BIOS um hvort það eigi að vera enable-að eða ekki við start.

Re: Vandamál með Touchpad vill ekki safe-ast í enable.

Sent: Mið 13. Des 2017 12:00
af jardel
Klemmi skrifaði:Mögulega stilling í BIOS um hvort það eigi að vera enable-að eða ekki við start.


Er ekkert annað sem þig dettir í hug?
Er elkki stórmál að stylla þetta i bios

Re: Vandamál með Touchpad vill ekki safe-ast í enable.

Sent: Mið 13. Des 2017 12:40
af kizi86
Oft er þetta bara svona "on-off" valmöguleiki, eins og er oft með numlock, "on boot, numlock off/on"

Re: Vandamál með Touchpad vill ekki safe-ast í enable.

Sent: Mið 13. Des 2017 12:41
af asgeireg
Hefur þetta alltaf verið svona eða bara ný byrjað?

Ég hef séð þetta hjá notendum með lenovo vélar þegar þeir hafa rekist í einn af [Fn] tökkunum sem að slökkva á þesum pad, þá dugar ekkert nema að ýta á hann aftur, ég var búinn að eiða góðum tíma í debug áður en ég sá þann takka.

Eins að fara á support.lenovo.com og láta síðuna skanna vélina þína og ath með nýja drivera, bæði fyrir músina og svo Bios og chipset.

Re: Vandamál með Touchpad vill ekki safe-ast í enable.

Sent: Mið 13. Des 2017 18:21
af worghal
búinn að prufa að fara í device manager og gera uninstall á touchpadinn?
hef fengið fartölvur þar sem netkortið er fast í disable og lausnin var að uninstalla net kortinu, það setur sig svo aftur upp sjálfkrafa, gæti virkað svipað.

Re: Vandamál með Touchpad vill ekki safe-ast í enable.

Sent: Mið 13. Des 2017 19:28
af jardel
asgeireg skrifaði:Hefur þetta alltaf verið svona eða bara ný byrjað?

Ég hef séð þetta hjá notendum með lenovo vélar þegar þeir hafa rekist í einn af [Fn] tökkunum sem að slökkva á þesum pad, þá dugar ekkert nema að ýta á hann aftur, ég var búinn að eiða góðum tíma í debug áður en ég sá þann takka.

Eins að fara á support.lenovo.com og láta síðuna skanna vélina þína og ath með nýja drivera, bæði fyrir músina og svo Bios og chipset.



Þetta er f6 takkinn. ég prufaði að kveikja á honum og slökkva á honum en ekkert gerist.

Ég er ekki viss hvort að þetta hefur alltaf verið svona ég hef alltaf verið með mús.

Ég kanski prufa að uninstala touchpadinn og setja hann upp aftur

Re: Vandamál með Touchpad vill ekki safe-ast í enable.

Sent: Mið 13. Des 2017 19:33
af jardel
worghal skrifaði:búinn að prufa að fara í device manager og gera uninstall á touchpadinn?
hef fengið fartölvur þar sem netkortið er fast í disable og lausnin var að uninstalla net kortinu, það setur sig svo aftur upp sjálfkrafa, gæti virkað svipað.



worghal þú ert snillingur. Var búinn að prufa allt þetta var eina sem virkaði takk kærlega fyrir.
vil einnig þakka öllum sem fyrir góð ráð.