Síða 1 af 1

Windowsið mitt lagaði sig sjálft með "Fresh Start"

Sent: Lau 04. Nóv 2017 21:20
af Viktor
Var í vandræðum með Windowsið mitt og vildi benda á þetta, vissi ekki af þessu.
Start menu leitin virkaði ekki, gat ekki opnað myndir vegna Registry Error, gat ekki opnað Calculator, Paint, Media Player oþh.
Mikið af veseni, líklega útaf einhverju CCleaner registry fökkup.

Í Windows 10 geturðu smellt á windows takkan og skrifað "Fresh Start" og farið í gegnum nokkur skref - og hreinsað Windowsið þitt - mjög svipað og "fresh install" á nokkrum mínútum án þess að missa gögn.

Núna tíu mínútum síðar er allt eins og það á að vera, en nota bene, þetta eyðir líka öllum forritum út svo það þarf að setja þau upp aftur(Chrome, Steam, Office oþh.)

:happy

Mynd

https://www.techrepublic.com/article/ho ... rs-update/

Re: Windowsið mitt lagaði sig sjálft með "Fresh Start"

Sent: Lau 04. Nóv 2017 21:28
af Hjaltiatla
Jebb, ert núna með hidden folder $WINDOWS.~BT á C:\ þínu. Virkar eins og windows.old mappan áður fyrr þegar þú uppfærðir stýrikerfi.
Clean install er eina leiðin sem ég treysti enn sem komið ef ég ákveð að byrja frá grunni.

Re: Windowsið mitt lagaði sig sjálft með "Fresh Start"

Sent: Lau 04. Nóv 2017 22:46
af Viktor
Þetta er miklu þægilegra og tekur töluvert styttri tíma en clean install...

Re: Windowsið mitt lagaði sig sjálft með "Fresh Start"

Sent: Lau 04. Nóv 2017 23:20
af Hjaltiatla
Sallarólegur skrifaði:Þetta er miklu þægilegra og tekur töluvert styttri tíma en clean install...

Hef prófað þennan fídus á vel grilluðum OS uppsetningum þá tók þetta nefnilega ekki styttri tíma. Þurfti á endanum að gera clean install.

Ég er svo einfaldur að ef hluturinn virkar ekki alltaf eins og ég vill þá fer ég krýsuvíkurleiðina að hlutnum og geri clean install.

Re: Windowsið mitt lagaði sig sjálft með "Fresh Start"

Sent: Sun 05. Nóv 2017 00:09
af SolidFeather
Þannig að lexían er að nota ekki CCleaner?

Re: Windowsið mitt lagaði sig sjálft með "Fresh Start"

Sent: Sun 05. Nóv 2017 00:17
af Hjaltiatla
óháð því hvort Ccleaner hafi gert þetta þá er vert að skoða aðra möguleika í ljósi þess að version 5.33 af ccleaner var að dreifa Floxif malware í rúmlega mánuð.BleachBit er mitt fyrsta val í dag.

Re: Windowsið mitt lagaði sig sjálft með "Fresh Start"

Sent: Sun 05. Nóv 2017 00:28
af Viktor
Þetta tók um 5-10 mínútur.

SolidFeather skrifaði:Þannig að lexían er að nota ekki CCleaner?


Það er ágiskun :baby

Re: Windowsið mitt lagaði sig sjálft með "Fresh Start"

Sent: Fim 17. Maí 2018 13:44
af J1nX
er mikill munur á þessu "fresh start" og "reset my pc"? þarf ég bootable usb fyrir annaðhvort?

Re: Windowsið mitt lagaði sig sjálft með "Fresh Start"

Sent: Fim 17. Maí 2018 15:50
af muslingur
Eins og CCleaner er gott þá ef því er runnað 2-3 sinnum í röð þá fer það að rugla með reg. Hversvegna veit ég ey.

Re: Windowsið mitt lagaði sig sjálft með "Fresh Start"

Sent: Fim 17. Maí 2018 21:41
af afrika
J1nX skrifaði:er mikill munur á þessu "fresh start" og "reset my pc"? þarf ég bootable usb fyrir annaðhvort?


Þarft ekki neitt fyrir það, stýrikerfið sér um þetta. En ég mæli samt alltaf me clean install. Borgar sig ALLTAF á endanum alveg sama hvað hver segir nema þú sért mögulega að reyna bjara gögnum þá gætiru reynt hitt. Fyrir utan það þá er MS með fæina leið til að búa til bootable disk fyrir þig. :happy