Síða 1 af 1

Router

Sent: Fim 05. Okt 2017 19:08
af Skari
Nú var vinur minn að fá ljósleiðara og við erum að hugsa hvaða router ætli sé bestur fyrir hann

Hann er hjá 365 og það er einhver zyxel vdsl/ethernet router sem fylgdi og þetta er víst algjört drasl, hann er alltaf að lenda í einhverju bufferi/loading og öðru veseni með þetta (detta út og fl) þannig að við erum að skoða um að skipta út routernum

Þetta er 70fm íbúð og er í frekar opnu rými en inn í herbergin þó færi signalið amk í gegnum 2-3 veggi

Hef séð menn vera að benda á eurodk.com með að fá búnaðinn ódýrari til landsins svo hvaða router myndiði mæla með ?

Re: Router

Sent: Fim 05. Okt 2017 20:23
af hagur
Ubiquiti EdgeRouter X og eitt stk Ubiquiti Unifi access point. Solid setup, en kannski ekki alveg eins plug and play og dummy proof og all-in-one græjurnar sem ISParnir láta fólk hafa.

Re: Router

Sent: Fim 05. Okt 2017 20:42
af Skari
Líst vel á það setup en hann er ekki alveg til í það mikið útgjöld strax þar sem hann flytur innan árs.

Vorum að hugsa um https://www.tl.is/product/rt-ac68u-broa ... gh-perform hvort þessi yrði fínn til að byrja með

Eða einhver betri router á svipuðan pening erlendis sem við gætum pantað frá

Re: Router

Sent: Fim 05. Okt 2017 21:09
af mercury
ég hef verið með 3 stk asus routera síðustu 5 árin. "allir i góðu lagi enþá og 2 i notkun" virkilega einfaldir og það sem er stærsti kosturinn að mig fynnst er að ég héf aldrei þurft svo mikið sem að restarta þeim. Eru bara í gangi og vinna sína vinnu :happy . hef aldrei skilið fólk sem leigir router #-o

Re: Router

Sent: Fös 06. Okt 2017 10:07
af Eiiki
Amplify HD Mesh Router er mjög solid græja. Hægt síðan að plug'n play-a Amplify HD Meshpoint hvar sem er í rafmagn og framlengja þannig þráðlausa netið í íbúðinni/húsinu. Mjög þægilegt og einfalt og eitthvað sem ég mæli með að skoða

Re: Router

Sent: Fös 06. Okt 2017 10:25
af Hallipalli
Hringdu eru með Netgear R6400 fyrir gigabyte tengingu á 24.000kr. Mæliði með öðrum router í þessum verðflokki eða er þessi alveg fínn?

Re: Router

Sent: Fös 06. Okt 2017 21:32
af Tiger
hagur skrifaði:Ubiquiti EdgeRouter X og eitt stk Ubiquiti Unifi access point. Solid setup, en kannski ekki alveg eins plug and play og dummy proof og all-in-one græjurnar sem ISParnir láta fólk hafa.


Nei ekk eins plug og play, en þú þarft bara að koma þessu í gang og ekki hugsa um þetta meira, engar endurræsingar ofl ofl eins og ISP routeranir.

Er með þetta setup and love it.

Re: Router

Sent: Fös 06. Okt 2017 22:11
af hagur
Tiger skrifaði:
hagur skrifaði:Ubiquiti EdgeRouter X og eitt stk Ubiquiti Unifi access point. Solid setup, en kannski ekki alveg eins plug and play og dummy proof og all-in-one græjurnar sem ISParnir láta fólk hafa.


Nei ekk eins plug og play, en þú þarft bara að koma þessu í gang og ekki hugsa um þetta meira, engar endurræsingar ofl ofl eins og ISP routeranir.

Er með þetta setup and love it.


Nákvæmlega. Á meðan þessar græjur fá rafmagn og ISPinn er í lagi þá bara virkar þetta.

Re: Router

Sent: Fös 06. Okt 2017 23:06
af reyniraron
Elko er að selja Netgear Nighthawk R7000 á 21.995 kr. Hann kemur mjög vel út úr prófunum. Ég keypti svona um síðustu helgi og það hefur bara gengið vel með hann. Að vísu er ég ekki að nota Wi-Fi á honum heldur er ég með AirPort Extreme sem sér um það. Það á hins vegar að vera alveg fínt.
Svo mæli ég með að prófa bæði 2.4 og 5GHz net. Í íbúðinni hjá mér var netið alltaf frekar leiðinlegt á 2.4GHz, dreif ekki neitt sérstaklega langt og tapaði sér mikið eftir því sem maður fjarlægðist routerinn. Hins vegar er það ekkert mál á 5GHz. ZyXEL routerinn frá 365 styður trúlega ekki 5GHz en Netgearinn gerir það allavega.
https://elko.is/netgear-nighthawk-ac1900-wifi-router