Síða 2 af 2

Re: Hvar er ódýrast að kaupa legit Windows 10 key

Sent: Fim 07. Sep 2017 18:29
af bjartman
keypti einmitt þrjá lykla um daginn á ebay á klink, 400 krónur stykkið. Allt komið strax, gerði þrjár tölvur löglegar sem hafði verið sett ólöglega upp. Bara change product key og voila ekkert ves.

Re: Hvar er ódýrast að kaupa legit Windows 10 key

Sent: Fim 07. Sep 2017 21:10
af agust1337

Re: Hvar er ódýrast að kaupa legit Windows 10 key

Sent: Fös 08. Sep 2017 13:18
af quad
eins og aðrir hér hafa nefnt hef ég keypt 4 win 10 pro retail lykla á ebay komu í pósti á innan við 1klst, allir undir 5 USD, skipta bara um product key og voilá!

Re: Hvar er ódýrast að kaupa legit Windows 10 key

Sent: Lau 13. Apr 2019 13:17
af jonsig
lol búinn að kaupa tvo svona 2 GBP, og ekkert mail so far.

Re: Hvar er ódýrast að kaupa legit Windows 10 key

Sent: Lau 13. Apr 2019 13:37
af DJOli
Fékk Win10 Pro á á 29.500kr.- afslætti á eBay. Búið að virka fínt núna síðan rétt eftir áramót.

Re: Hvar er ódýrast að kaupa legit Windows 10 key

Sent: Sun 14. Apr 2019 21:33
af jonsig
Það meikar "0" sense að þessir windows 10 lyklar á ebay séu keyptir með stolnum kreditkortum, þar sem lyklarnir kosta 200$. Ég stór efa að einhver nenni að standa í kortaþjófnaði með því markmiði að fá milljón útúr 200milljónum+ af heildarveltu. Það þarf væntanlega líka að borga öllum þeim sem eru að stela öllum kortaupplýsingunum, hérna þurfa þeir amk að eiga fyrir flugfari til íslands og aftur til langtíburtistan.

Í einu bjána blogginu sem ég las, sagðist bloggarinn hafa keypt lykil á 5$ og ári seinna hafi lykillinn vera óvirkjaður, (um það leyti sem biluðu kms þjónarnir hjá microsoft biluðu) og kortafyrirtækin bakfært af microsoft? (tekið heilt ár), þar hafði hann sönnun þess að lykillinn hafi verið stolinn

þótt þetta séu scrap OEM lyklar og annað, þá mundi maður varla að nenna standa í þessu, nema þá kannski til að safna fyrir starfsmannasjóðinn ef maður er að safna þessu sem hluta af starfinu sínu.

Einhver nefndi endurseldir kína license lyklar, en varla,, 2.6GPB

Er einhver hérna með beyond youtube knowladge um þessa hluti ?

Re: Hvar er ódýrast að kaupa legit Windows 10 key

Sent: Mán 15. Apr 2019 03:11
af jonfr1900
Þetta er varasöm leið til að fara.

Sjá hérna, https://www.howtogeek.com/392080/cheap- ... they-work/

Re: Hvar er ódýrast að kaupa legit Windows 10 key

Sent: Mán 15. Apr 2019 07:37
af arons4
jonsig skrifaði:Það meikar "0" sense að þessir windows 10 lyklar á ebay séu keyptir með stolnum kreditkortum, þar sem lyklarnir kosta 200$. Ég stór efa að einhver nenni að standa í kortaþjófnaði með því markmiði að fá milljón útúr 200milljónum+ af heildarveltu. Það þarf væntanlega líka að borga öllum þeim sem eru að stela öllum kortaupplýsingunum, hérna þurfa þeir amk að eiga fyrir flugfari til íslands og aftur til langtíburtistan.

Í einu bjána blogginu sem ég las, sagðist bloggarinn hafa keypt lykil á 5$ og ári seinna hafi lykillinn vera óvirkjaður, (um það leyti sem biluðu kms þjónarnir hjá microsoft biluðu) og kortafyrirtækin bakfært af microsoft? (tekið heilt ár), þar hafði hann sönnun þess að lykillinn hafi verið stolinn

Ég finn bara ekki út hvernig þeir gera þetta, ég keypti áðan retail lykil til að prufa og hann virkar fullkomlega og ég er búinn að registera hann á microsoft accountinu mínu.

þótt þetta séu scrap OEM lyklar og annað, þá mundi maður varla að nenna standa í þessu, nema þá kannski til að safna fyrir starfsmannasjóðinn ef maður er að safna þessu sem hluta af starfinu sínu.

Einhver nefndi endurseldir kína license lyklar, en varla,, 2.6GPB

Er einhver hérna með beyond youtube knowladge um þessa hluti ?

Hef heyrt í þessu samhengi að fólk sé að kaupa lykla af microsoft í magninnkaupum, og kaupi fleiri lykla en þeir þurfa fyrir stærri afslátt og selja aukalyklana til að brúa bilið.

TD kaupa 100 lykla, nota 70 af þeim og selja hina 30 á nógu verði til að koma út í plús

Re: Hvar er ódýrast að kaupa legit Windows 10 key

Sent: Mán 15. Apr 2019 07:39
af Tbot
Öll stórfyrirtæki skipta heiminum upp í svæði og reyna að mjólka hvers svæði eins og þau geta.
Halda því síðan fram að það sé ólöglegt að nota slíkt milli svæða.
Minnir ansi mikið á þegar dvd diskarnir voru zone-skiptir.
Það hefur fallið dómur í Evrópu vegna sky-korta þar sem neitendum var dæmt í hag.

"Some of these keys just come from other countries where Windows licenses are cheaper. These are referred to as “gray market” keys. They may be legitimate, but they were sold for cheaper in other countries. For example, Windows keys were once much cheaper in China."

Re: Hvar er ódýrast að kaupa legit Windows 10 key

Sent: Mán 15. Apr 2019 08:33
af jonsig
Mér skilst samt að magninnkaup á WIN10 lyklum fari samt aldrei undir 25$ amk á fyrri stýrikerfum. Þannig að 2.xGPB meikar ekkert sense ennþá.

Re: Hvar er ódýrast að kaupa legit Windows 10 key

Sent: Mán 15. Apr 2019 10:05
af halipuz1
Hef keypt nokkra á þessu 2.6£ verði og ekkert vesen enn. Það er ábyggilega komið ár síðan ég notaði fyrsta lykilinn og ekkert vesen.

Bíð spenntur eftir að eitthvað gerist! Efa það samt... víst þetta virkaði nú í fyrstu...

Re: Hvar er ódýrast að kaupa legit Windows 10 key

Sent: Mán 15. Apr 2019 13:29
af Viktor
Ég held að þetta sé töluvert einfaldara en það er gefið í skyn hér, en kannski skjátlast mér.

Windows 10 hefur verið frítt upgrade í mörg ár, þó þú sért með ólöglegt Win7.

Er ekki líklegt að þetta upgrade ferli hafi einhvernvegin verið notað til að búa til full af lyklum og selja þá svo á eBay fyrir 5$ ?

Re: Hvar er ódýrast að kaupa legit Windows 10 key

Sent: Mán 15. Apr 2019 15:05
af worghal
Sallarólegur skrifaði:Ég held að þetta sé töluvert einfaldara en það er gefið í skyn hér, en kannski skjátlast mér.

Windows 10 hefur verið frítt upgrade í mörg ár, þó þú sért með ólöglegt Win7.

Er ekki líklegt að þetta upgrade ferli hafi einhvernvegin verið notað til að búa til full af lyklum og selja þá svo á eBay fyrir 5$ ?

ég hef reynt að uppfæra win7 tölvu nýlega og það vildi ekki taka því, en 8.1 á að ganga.

Re: Hvar er ódýrast að kaupa legit Windows 10 key

Sent: Mán 15. Apr 2019 19:35
af Theraiden
Prófaði þetta sjálfur rétt í þessu á lappanum mínum sem er með Win 10 Home.
Fór á ebay og keypti Win 10 Pro lykil á 5$. Fékk hann sendann strax í maili.
Byrjaði á því að setja "default" win 10 pro lykilinn (VK7JG-NPHTM-C97JM-9MPGT-3V66T) í change product key, tölvan uppfærði kerfið í Pro.
Fór svo aftur í change product key og setti inn lykilinn sem ég keypti, activate'aðist strax, nokkuð sáttur :)

Er nokkuð viss um að þetta séu VLK (Volume Licence Key) sem er verið að selja þarna. Litlar líkur á því að þeir verði de-activated þar sem þetta eru líklegast MAK lyklar sem virka nákvæmlega eins og retail lyklar. Ef þeir færu að deactivat'a þessa lykla þá eru MS mögulega að fá yfir sig hausverk af því að það gæti þýtt að allar tölvur í einhverri stofnun yrðu skyndilega de-activateaðar með tilheyrandi vesen og kostnaði. Líklegt að þeir láti þetta bara slide'a....

Re: Hvar er ódýrast að kaupa legit Windows 10 key

Sent: Mán 15. Apr 2019 20:05
af Theraiden
Mynd

Staðfest, þetta er VLK lykill sem ég var að kaupa :)

Re: Hvar er ódýrast að kaupa legit Windows 10 key

Sent: Mán 15. Apr 2019 22:21
af jonsig
Mynd

Re: Hvar er ódýrast að kaupa legit Windows 10 key

Sent: Mán 15. Apr 2019 22:38
af jonsig
Ég skil ekki hvernig menn nenna að standa í þessu, ætli ebay taki ekki 0.75$+ paypal? í þóknun.