Síða 1 af 1

Edgerouter X vs Edgerouter Lite, Fyrir ljósleiðara.

Sent: Fim 20. Júl 2017 12:57
af andribolla
EdgeRouter Lite, 3 RJ-45 Gigabit
29.900 kr.
https://www.netverslun.is/Mi%C3%B0l%C3%A6gur-b%C3%BAna%C3%B0ur/Netb%C3%BAna%C3%B0ur/Netbeinar---router/Ubiquiti-Networks/EdgeRouter-Lite%2C-3-RJ-45-Gigabit/ERLITE-3/2_9541.action

EdgeRouter X , 5 RJ-45 Gigabit 1xPoE Out
15.900 kr.
https://www.netverslun.is/Mi%C3%B0l%C3%A6gur-b%C3%BAna%C3%B0ur/Netb%C3%BAna%C3%B0ur/Netbeinar---router/Ubiquiti-Networks/EdgeRouter-X-%2C-5-RJ-45-Gigabit-1xPoE-Out/ER-X/2_9539.action

Ég er semsagt að fá mér nýjan router við ljósleiðara tengingu.
er að sækjast eftir sem stöðugustu interneti og besta hraðann upp og niður.
líst mjög vel á þessa edgeroutera en er ekki alveg að fatta hver er munurinn á þessum tvem

ég fann þessa töflu á netinu
https://help.ubnt.com/hc/en-us/articles/219652227--EdgeRouter-Which-EdgeRouter-Should-I-Use-

Mynd


Með hvorum routernum mælið þið ?

kv. Andri

Re: Edgerouter X vs Edgerouter Lite, Fyrir ljósleiðara.

Sent: Fim 20. Júl 2017 13:57
af Nariur
Ég hef verið að nota EdgeRouter X síðustu 5 mánuði og með hardware offload á tekur hann 1Gb auðveldlega. Lite á samt að höndla meiri hraða. Þetta er gull af router, þó það geti verið vesen að config-a hann ef maður veit ekki hvað maður er að gera.

Ég get ekki notað minn ER-X lengur (ég vildi að ég gæti það). Ef þú vilt hann á góðu verði, sendu mér PM.

Re: Edgerouter X vs Edgerouter Lite, Fyrir ljósleiðara.

Sent: Fim 20. Júl 2017 15:34
af chaplin
Er líka með ER-X, 1Gb ljós og það hefur verið æði frá fyrsta degi. Þú ert auðvita að skoða hálfgerða fyrirtækjalausnir, ER-X er miklu meira en nóg fyrir stórt (risa stórt) heimili. :)

Re: Edgerouter X vs Edgerouter Lite, Fyrir ljósleiðara.

Sent: Fim 20. Júl 2017 18:19
af andribolla
Þannig að ER-X er alveg nóg fyrir ljósleiðaratengingu og 5 tölvur.
Sá samt að með ER-L er í boði að vera með tvær Wan tengingar ef Aðal-tenginginn dettur út, get ég verið með aðra til vara. 2x Wan.
önnur ástæða fyrir því að mig langar að fara í Edgerouter þó han sé kanski hálfgerð fyrirtækjalausn er að ég er mjög hrifinn af unifi wifi diskunum og langar að læra aðeins inn á edgeinn ;)

Re: Edgerouter X vs Edgerouter Lite, Fyrir ljósleiðara.

Sent: Fim 20. Júl 2017 20:09
af hagur
Er líka með Edgerouter X og hann hefur ekki slegið feilpúst. Höndlar 1Gbps þegar búið er að virkja hardware offloading á NAT. Það er mjög auðvelt að configura hann fyrir ljósið hjá GR, bara next, next, finish. En til að eiga við advanced stuff eins og að virkja hardware offloading á NAT o.þ.h þarf að keyra skipanir í gegnum SSH, a.m.k síðast þegar ég gerði þetta. Það eru þó alltaf að bætast við fídusar í grafíska GUI-ið, kannski er hægt að gera þetta allt þar núna.

Svo setti ég upp IPSec VPN server í routernum líka, sem er snilld. Það er ótrúlegt hvað þetta litla box getur gert.

Re: Edgerouter X vs Edgerouter Lite, Fyrir ljósleiðara.

Sent: Fös 21. Júl 2017 10:17
af Blues-
Sama saga hér .. EdgeRouter X á 1Gbps ljósi GR, virkar líka fínt hjá Mílu þegar ég prófaði að færa mig tímabundið til þeirra.
Topphraði, þessi router er snilld.

Re: Edgerouter X vs Edgerouter Lite, Fyrir ljósleiðara.

Sent: Sun 30. Júl 2017 21:16
af andribolla
þið sem hafið sett upp Edgerouter á Ljósleiðara, lentuð þið í einhverjum vandræðum með að fá þá til þess að virka ?
eftir að ég er búin að fara í gegnum wizzardinn ætti þá að vera eithvað meira sem ég þarf að gera svo hann virki ?

kv. andri

Re: Edgerouter X vs Edgerouter Lite, Fyrir ljósleiðara.

Sent: Sun 30. Júl 2017 22:58
af hagur
andribolla skrifaði:þið sem hafið sett upp Edgerouter á Ljósleiðara, lentuð þið í einhverjum vandræðum með að fá þá til þess að virka ?
eftir að ég er búin að fara í gegnum wizzardinn ætti þá að vera eithvað meira sem ég þarf að gera svo hann virki ?

kv. andri


Ef þú ert á GR ljósi þá ætti wizardinn að vera nóg, þ.e WAN+2LAN/WAN+2LAN2. Svo auðvitað að skrá MAC addressuna á honum hjá GR (eða spoofa yfir í þá sem gamli routerinn þinn var með, til að halda sömu IP tölu og losna við að skrá nýja MAC addressu).