Síða 1 af 1

Er lan G1 gott

Sent: Fös 28. Jan 2005 00:46
af Pork
Er lan G1 gott? Ég veit að það er 1gb lan en er það einhvað hratt, ég er nefninlega með þannig.

[Lagað til af stjórnanda. skoðaðu reglurnar á FAQ borðinu]

Sent: Fös 28. Jan 2005 02:04
af natti
<flame>
Hvað lagaði stjórnandinn í þessum þræði?
Getur einhver lagað lagfæringuna svo hún verði skiljanleg
</flame>

Sent: Fös 28. Jan 2005 02:17
af gumol
Ég lagaði titlinn, setti inn stóra upphafsstafi, setti inn spurningamerki, punkta og kommur og lagaði eitt eða tvö orð.

Edit: lagaði eitt orð í viðbót

Ég er ekki búinn að lesa "Huglestur yfir internetið" nógu vel, en það sem ég gat lagað lagaði ég.

Sent: Fös 28. Jan 2005 14:11
af natti
hehe oks :D
Datt í hug að þú hefðir kannski skilið hvað gaurinn var að segja :)
Kannski að pork segi bara hvað hann á við :)

Re: Er lan G1 gott

Sent: Fös 28. Jan 2005 14:19
af Stutturdreki
Pork skrifaði:Er lan G1 gott? Ég veit að það er 1gb lan en er það einhvað hratt, ég er nefninlega með þannig.

[Lagað til af stjórnanda. skoðaðu reglurnar á FAQ borðinu]


1Gb net (þar sem b stendur fyrir bits en ekki bytes, réttur rit háttur á byte er B..) er þá 1.000.000 bits/s hratt. Eða um tíu sinnum hraðari heldur en 100Mb net.

Eini gallinn er að þetta er fræðilegt hámark og þú nærð þessu sennilega ekki með núverandi hardware. Td. er ég með tvær tölvur tengdar með Crossover á 1Gb netkortum og næ mest 25% nýtingu eða um 250Mb/sek.

Sent: Fös 28. Jan 2005 14:24
af Dust
Myndi svona 7200 ide diskar ekki líka hægja hellingans helling á því, geta þeir tekið við svona miklu magni á svona stuttum tíma? Og eru SATA einhvað hraðvirkari þegar það kemur að því að hala inn efni á þá...veit að þeir eru hraðvirkari, en þegar það kemur að svona 1g lan?

Sent: Fös 28. Jan 2005 14:26
af Pandemic
Ide 133MB og SATA 150MB ef mig minnir rétt og 1gb lan er 100MB
right or wrong?

Sent: Fös 28. Jan 2005 14:29
af Dust
Þannig bæði ræður vel við 1g lan if your right :D

Sent: Fös 28. Jan 2005 14:32
af Pandemic
Breyttir örruglega einhverju til eða frá þar sem þetta sem gefið er upp er yfirleitt peak.

Sent: Fös 28. Jan 2005 14:39
af gnarr
ATA 133 er 133MBps in theory og SATA150 150MBps in theory, og þar eru BARA interface-in. hraðinn á diskunum sjálfum skiptir mun meira máli. 7200sn SATA150 diskar eru að ná mest um 60MBps í sequental hraða. sem er um 480Mbps.

Sent: Fös 28. Jan 2005 15:03
af Stutturdreki
Pandemic skrifaði:Ide 133MB og SATA 150MB ef mig minnir rétt og 1gb lan er 100MB
right or wrong?


Wrong!

1Gb lan er 1.000.000 bits/sek. 1 byte er 8 bits.. þannig að 1Gb lan er í raun 122MB/sek.. ef ég reikna það rétt.

Sent: Fös 28. Jan 2005 15:23
af tms
Stutturdreki skrifaði:
Pandemic skrifaði:Ide 133MB og SATA 150MB ef mig minnir rétt og 1gb lan er 100MB
right or wrong?


Wrong!

1Gb lan er 1.000.000 bits/sek. 1 byte er 8 bits.. þannig að 1Gb lan er í raun 122MB/sek.. ef ég reikna það rétt.

125MB/s.. svo aðrir hlutir sem spila inn í en bara hraðinn á harðadiskinum t.d. ræður stýrikerfið/forritið við að nýta allan hraðann, er netkortið í raun og veru nógu gott til að geta sent og tekið á mót 125MB/s (netkortið þarf að gera slatta eins og að validata IPtölur or CRC stimpla pakka (minnir mig))
Kapallinn getur haft áhrif..

Sent: Fös 28. Jan 2005 17:00
af natti
diskurinn er líklega sá factor sem spilar mest inn í að hægja á netinu. Auk þess að þú ert aldrei að ná fræðilegu hámarki.
Ég er með að ná um 700Mb hraða á milli tveggja véla á netinu hjá mér, án þess að skrifa/lesa af diskunum. En ef ég gæti, þá ætti það að vera að skila sér í ca. 87MB/sec.
However, þá er diskurinn sem ég er með núna bara að skila 33MB/sec í lestri(read) í annarri vélinni. (Er að keyra annað OS á hinni, ekki með eins tól þar.)
sata diskurinn heima er bara að skila 51MB/sec, en vélin mín heima er ekki á 1GB tengingu...

Sent: Fös 28. Jan 2005 18:57
af Pandemic
Stuttdreki hraði ég sagði nú bara einhvað í hringum 100MB hraða þar sem yfirleitt ná flest netkort ekki tilætluðum hraða nema með verulega góðan tengibúnað og annað sem þarf að vera í topp stand.