Síða 1 af 1

Finna Windows 10 Product Key

Sent: Þri 22. Nóv 2016 15:22
af Sam
Ég er einn af þeim sem þáði fríu Windows 10 uppfærsluna á sínum tíma, núna þurfti ég að setja stýrikerfið upp aftur og vantaði því lykilinn.

Gramsaði aðeins á google og fann þetta forrit hjá Nirsoft http://www.nirsoft.net/utils/product_cd_key_viewer.html
Ég er búinn að prófa það og setja tölvuna upp aftur, svínvirkar.
Hér eru Youtube leiðbeiningar https://www.youtube.com/watch?v=tfCMlxTQKY8

Sé ekki að ég sé að brjóta nein lög þar sem Microsoft gaf mér jú forritið og þetta er jú minn lykill.

Re: Finna Windows 10 Product Key

Sent: Þri 22. Nóv 2016 15:26
af Hizzman
Belarc Advisor

Re: Finna Windows 10 Product Key

Sent: Þri 22. Nóv 2016 15:30
af steiniofur
Ef þú ert bara að endur uppsetja win 10 á vél sem búið er að activate-a það á fyrir að þá er hægt að velja skip þegar uppsettningin byður um serial key og eftir uppsetningu á win 10 að activate-ast sjálfkrafa - hef gert þetta marg oft og aldrei klikkað.

Re: Finna Windows 10 Product Key

Sent: Þri 22. Nóv 2016 15:33
af emmi

Re: Finna Windows 10 Product Key

Sent: Þri 22. Nóv 2016 15:35
af Sam
steiniofur skrifaði:Ef þú ert bara að endur uppsetja win 10 á vél sem búið er að activate-a það á fyrir að þá er hægt að velja skip þegar uppsettningin byður um serial key og eftir uppsetningu á win 10 að activate-ast sjálfkrafa - hef gert þetta marg oft og aldrei klikkað.


Ég setti nýjan harðan disk í vélina, þar með fór allur grunnur.

Re: Finna Windows 10 Product Key

Sent: Þri 22. Nóv 2016 15:45
af steiniofur
Hef oft einmitt verið að skipta út diskum og ekki þurft product key, bara gert skip á þeim lið og síðan hefur win 10 activateast sjálfkrafa. Mig minnir að þú þurfir bara þennan key þegar þú skiptir út móðurborði. Hélt einmitt sjálfur að ef ég væri að skipta út disk væru allar upplýsingar um legit win farið verður og vind en hef aldrei lent í veseni með þetta.

Re: Finna Windows 10 Product Key

Sent: Þri 22. Nóv 2016 16:06
af playman
Lykillinn er bundinn móðurborðinu, ef þú þarft að skipta um móðurborð þá gætirðu lent í veseni og þurft að gera phone activation osf.

Re: Finna Windows 10 Product Key

Sent: Þri 22. Nóv 2016 17:03
af rickyhien
þetta virkaði fyrir mig

http://www.thewindowsclub.com/find-windows-product-key

powershell "(Get-WmiObject -query ‘select * from SoftwareLicensingService’).OA3xOriginalProductKey"

PS: :face :face sorry hélt að þú getur loggað inn á tölvunni...

Re: Finna Windows 10 Product Key

Sent: Þri 22. Nóv 2016 18:28
af frr
Ég uppfærði frá Windows 8.
Sami lykilinn er gildur fyrir Windows 10 uppfærsluna.