skipio skrifaði:Þetta á ekki að koma. Þetta þýðir að Windows á í vandræðum með að slökkva á einhverju forriti og þarf að grípa til brute-force aðferð til að gera það.
Nei nei, þetta eru bara forrit sem eru lengi að slökkva á sér. Windowsið hjá mér notar amk. aldrei "brute-force aðferðina" nema ég segi henni að gera það. Ef glugginn hverfur þá hefur Windows tekist að slökkva á forritinu á réttan hátt. (það hefur kannski verið að slökkva á einhverskonar búnaði tengdum tölvunni)
Ég er ekki viss um að þetta sé rétt hjá mér en svona hef ég skilið þetta.