Síða 1 af 1

Tregur hægri músa smellur

Sent: Mán 08. Ágú 2016 12:26
af Heliowin
Þetta er búið að vera vandamál frá því fyrr á árinu að hægri músa smellur sé tregur og tala nú ekki um þegar ég þarf að líma einhverju inn með músinni.

Skipti yfir í debian testing síðastliðið vor í nokkra mánuði og þar var þetta allt öðruvísi því þá var músin eins og hríðskotabyssa með alltof næma takka og eru þetta engar ýkjur.

Fór síðan aftur í Windows 10 og því næst í nýja tölvu (með sömu mús) og er þetta vandamál frá því fyrr á árinu komið aftur (treg mús). Var að uppfæra í Windows 10 anniversary update um helgina og er þetta ekkert skárra.

Músin er annars tengd með USB og finnst mér stundum að það hjálpi dálítið að taka tengið úr og stinga inn aftur.

Re: Tregur hægri músa smellur

Sent: Mán 08. Ágú 2016 18:36
af agust1337
Hvernig mús er þetta?

Re: Tregur hægri músa smellur

Sent: Mán 08. Ágú 2016 18:49
af Revenant
Búinn að prófa að breyta þessum stillingum?

Mynd

Re: Tregur hægri músa smellur

Sent: Mán 08. Ágú 2016 20:28
af Heliowin
agust1337 skrifaði:Hvernig mús er þetta?


Þetta er GIGABYTE combo set KM6150 lyklaborð og mús sem kostaði lítið á sínum tíma.

Revenant skrifaði:Búinn að prófa að breyta þessum stillingum?

Mynd


Ég sé ekki hvaða stillingar þarna gætu hjálpað nema þá kannski pointer speed sem ég breytti frá miðju og í 8 af 10 eins og strikin sýna.

Re: Tregur hægri músa smellur

Sent: Mán 08. Ágú 2016 22:47
af agust1337
Samkvæmt mörgum reviews á netinu virðist þetta vera mjög algengt með þessa mús, enda er þetta mun ódýrt drasl

Re: Tregur hægri músa smellur

Sent: Mán 08. Ágú 2016 22:50
af jonsig
Oft er þetta mekanískt vandamál með snerturnar undir músatökkunum, það er frekar auðvelt og skemmtilegt að skipta um þessa micro rofa ef þú hefur ljóðbolta við hendina og tinborða/sugu.