Síða 1 af 1

windows 10 stanslaust desktop refresh...

Sent: Sun 06. Mar 2016 23:56
af OddBall
ég lét mig hafa það að taka inn windows 10 svona næstum því bara til að losna við þetta stanslausa nagg frá windows. Þegar þetta var svo komið í gang þá kemur í ljós að desktopinn og taskbarið endurræsir sig á kannski hálfrar mínútu fresti, skjárinn verður svartur og þegar ég reyndi að setja inn tölvupóstinn í fína nýja startupið þá datt það jafn óðum út. Vafrinn virkar en ég horfi á taskbarinn poppa reglulega upp á meðan ég er á netinu. Ég er búinn að opna task managerinn og loka virkum forritum til að sjá hvort það séu einhverjir conflictar en það breytti engu. Það virðist vera nóg af einhverjum sem hafa lent í þessu samkvæmt Google en ég hef ekki séð neinar lausnir sem virka.

Einhverjir með hugmynd?

Re: windows 10 stanslaust desktop refresh...

Sent: Mán 07. Mar 2016 00:02
af loner
Prufaður að googla
Windows 10 Taskbar and Desktop Constantly Refreshing

M.kv. Loner.

Re: windows 10 stanslaust desktop refresh...

Sent: Mán 07. Mar 2016 00:31
af OddBall
"Það virðist vera nóg af einhverjum sem hafa lent í þessu samkvæmt Google en ég hef ekki séð neinar lausnir sem virka."

Re: windows 10 stanslaust desktop refresh...

Sent: Mán 07. Mar 2016 01:01
af loner
Gætir prufað að þrengja leitina við síðasta mánuð,
prufað að uppfæra alla drivera sem þú finnur og endurræsa tölvuna.
Eða að strauja og setja win10 upp frá grunni.