Síða 1 af 1

divida tengingunni?

Sent: Sun 26. Des 2004 22:48
af zaiLex
Hæ ég er með planet ADE 4000 router og það er þannig að við erum tveir að nota tenginguna og þegar einn er að downloada þá laggar hinn. Er ekki hægt að skipta tengingunni niður þannig að hver fær 1mb (er sko með 2mb tengingu) svo að hinn laggi ekki meðan það er verið að downloada?

Sent: Sun 26. Des 2004 23:32
af ParaNoiD
vera með tölvu sem deilir bandvídd ...

Sent: Sun 26. Des 2004 23:51
af MezzUp
Ég hugsa að það sé til ókeypis forrit fyrir Linux, og e.t.v. líka fyrir Windows sem að limitar tengingar í X Mbit/s.

En ég held að það dugi ekki til. (Til þess að losna alveg við lagg) Þú þarft líklega eitthvað forrit sem að gefur leikjatraffíkinni forgang yfir download(ég held að það sé 'QoS' protocol'ið, en er ekki viss). Veit að þú getur notað Linux forritið Wondershaper til þess, en veit ekki um neitt Windows forrit sem gerir það sama.

Sent: Mán 27. Des 2004 00:13
af Andri Fannar
Ég nota NetLimiter bara...

Sent: Mán 27. Des 2004 01:03
af MezzUp
SvamLi skrifaði:Ég nota NetLimiter bara...

Hmm, það dugar ekki til þess að skipta bandvíddinni á milli tveggja tölvna er það?

En sleppurðu við lagg í tölvuleikjum á meðan þú ert að downloada ef að þú notar NetLimiter?

Sent: Mán 27. Des 2004 01:46
af vldimir
Já, maður gerir það með netlimiter, ansi sniðugt.. Ert að fara spila eitthvað á netinu, eða villt bara vafra um á réttum hraða í smástund, þá capparðu bara uploadið og downloadið svo þú missir ekki slottið ( sbr dc ) og ferð að spila ;)

Er líka mjög öflugur eldveggur í netlimiter forritinu sem virkar ansi vel, en þrátt fyrir marga möguleika í netlimiter geturðu ekki dividað tengingu í því.

Sent: Mán 27. Des 2004 02:41
af zaiLex
ég bara cappa bara firefox og dc í 100k í hinni tölvunni með netlimiter þá er þetta fínt er það ekki?

Sent: Mán 27. Des 2004 03:56
af MezzUp
vldimir skrifaði:Ert að fara spila eitthvað á netinu....þá capparðu bara uploadið og downloadið svo þú missir ekki slottið ( sbr dc ) og ferð að spila ;)

déskotans lame! :evil:

Ef að allir fylgdu þínu fordæmi væri aldrei hægt að fá slot, og skrár myndu aldrei fara á milli manna. En nei, auðvitað þarft þú ekkert að fara eftir reglunum á meðan aðrir gera það :(
Virkilega slappt maður, virkilega slappt að hugsa bara svona um eigin hag........

ps. bara ágisknum, en ekki ertu að share'a ákkúrat lágmarkinu á þeim hub sem að þú ert á?

Sent: Þri 28. Des 2004 18:48
af natti
MezzUp: Það fara flestir að hans fordæmi...
Það er aldrei hægt að fá slot á dc... :)

Annars gerði ég það bara í routernum mínum þegar ég var að leigja með félaga mínum að gefa honum minni bandvídd en mér ef ég var að gera eitthvað. Very sneddí :)

Sent: Þri 28. Des 2004 19:48
af MezzUp
natti skrifaði:Annars gerði ég það bara í routernum mínum þegar ég var að leigja með félaga mínum að gefa honum minni bandvídd en mér ef ég var að gera eitthvað. Very sneddí :)
Hvernig router varstu með?

Sent: Þri 28. Des 2004 20:24
af pjesi
vldimir skrifaði:Já, maður gerir það með netlimiter, ansi sniðugt.. Ert að fara spila eitthvað á netinu, eða villt bara vafra um á réttum hraða í smástund, þá capparðu bara uploadið og downloadið svo þú missir ekki slottið ( sbr dc ) og ferð að spila ;)


Sannur leecher hér á ferð.

Sent: Lau 01. Jan 2005 02:46
af Vilezhout
einn daginn kom undarlegur linux dvergur uppað mér og öskraði

SHARE OR GET SHARED

Sent: Lau 01. Jan 2005 05:55
af vldimir
MezzUp; Held að þú hafir svoldið misskilið þetta, og nei lágmarks shearið er 75gb og ég er að sheara yfir 320gb.. Og ég var að segja ef þú þarft að fara spila eitthvern leik á netinu, þá gæti verið fint bara að hægja á ul / dl , svo bæði þú OG hinir sem hafa náð slotti hjá þér missi það ekki með því að þú lokir bara DC, heldur hægirðu bara á hraðanum í 1-2 tíma og hækkar svo aftur.