gutti á öðrum þræði skrifaði:ég veit að íslenska hjá mér ekki góð það verðu bara hafa það
Nei, málið er nefnilega að það verður ekkert bara að hafa það, hann getur vandað sig og farið yfir einsog aðrir hérna.
Ég man nú ekki hvort að hann var einn af þónokkrum hérna með lesblindu, en þótt að ég þekki lítið til lesblindu er ég nokkuð viss um hún lýsi sér ekki svona:
gutti skrifaði:Ég hef vera með vesen netið hjá mér síðan að ég fékk netið hjá hive búinn vera að fara að skoða um netið og flakka um en netið dettur út af og til.................
Hann á nú að geta orðað bréfið á mannamáli þrátt fyrir að vera með námsörðuleika, er það ekki?
Annars er þetta góður punktur hjá ErectuZ, svona tröllaskapur er óþarfi. Ef að einhver veit hvað gutti var að meina þá má viðkomandi endilega veita honum aðstoð, ekki láta okkur styggja þig.
Ég er svona harður afþví að mér er mjög annt um þetta spjall, en síðan í vor hef ég tekið eftir því að því er farið að hraka. Spjallið hefur farið meira og meira að líkjast
Huga með minna og minna af alvöru tölvu
umræðum og meira og meira af ósjálfbjarga #"$&" sem fylla Vaktina af spurningum um næstu uppfærslu eða næsta skjákort án þess að hafa nokkra rænu á því að kanna málið aðeins sjálfir, eða bara lesa eldri pósta. Einnig hef ég tekið meira og meira eftir mönnum sem eru í raun latir og nenna ekki að lesa yfir póstana sína, en bera fyrir sig einhverja námsörðuleika. (ekkert sérstaklega beint til gutta þar sem ég þekki hann ekki)
Það er nokkuð síðan ég sá að þetta myndi gerast og reyndi ég því strax að „klípa í rassinn á því“, en ég held að ég sé orðinn of seinn núna, og fá úrræði eftir
