Síða 1 af 1

[Leyst] Vandamál með hljóð í sjónvarps-korta-forriti

Sent: Fim 23. Des 2004 19:34
af ErectuZ
Jæja, nú liggur í því! Ég fæ ekkert hljóð í sjónvarpinu í tölvunni. Ég er með Pinnacle PCTV sjónvarpskort. Ég er búinn að róta alveg helling í öllum stillingum og allt og er ég alveg ráðþrota. Hefur einhver annar lent í þessu? Eða veit kannski einvher bara svarið við þessu? Takk fyrir!

Edit: Jæja, fann út úr þessu. Þarf víst bara að tengja sjónvarpskortið við hljóðkortið :lol: Þá er bara að finna kapalinn :?