Síða 1 af 1

Tölvubilun

Sent: Fös 17. Des 2004 01:21
af Pirate^
Sælir. Ég á við tölvuvandamál að stríða. Það er þannig að þegar ég spila einhverja leiki, eða eitthvað svoleiðis þá kemur oft bluescreen og tölvan restartast, eða ég dett útúr leiknum stundum með errori, stundum ekki. Ég er búinn að prufa að skipta um skjákort, minni, er með nýtt móðurborð (þetta var áður en ég fékk nýtt) og ég er orðinn soldið mikið pirraður á þessu :twisted: Ef þið vitið eitthvað hvað gæti verið að, endilega svarið.

Sent: Fös 17. Des 2004 02:51
af Zaphod
Endilega koma með nánari lýsingu á vélinni þinni .


Annars getur þetta verið ýmislegt

Sent: Fös 17. Des 2004 03:05
af Pirate^
Hún er samansett. Ég er með geforce2 64mb, 512 ddr minni, 60gb og 80gb hd. AMD Athlon XP 1700+ örgjörva. AC´97 hljóðkort.

Sent: Fös 17. Des 2004 07:53
af gnarr
ertu enþá með "gamla" kassann þinn? þetta hljómar mikið eins og og lítið PSU.

Sent: Fös 17. Des 2004 09:11
af einarsig
það sem gnarr sagði :)

Re: Tölvubilun

Sent: Fös 17. Des 2004 09:35
af arnarj
Pirate^ skrifaði:Ég er búinn að prufa að skipta um skjákort, minni, er með nýtt móðurborð (þetta var áður en ég fékk nýtt)


99% líkur á að þetta sé eins og þeir segja aflgjafinn að klikka, þú ert jú búin að skipta um hina líklega orsakavaldana, þ.e. minni, skjákort og móðurborð.

Sent: Fös 17. Des 2004 11:49
af Pirate^
Ég gleymdi að segja að ég er með nýjan tölvukassa og frekar nýjan aflgjafa veit samt ekki hversu öflugur hann er. :roll:

Sent: Fös 17. Des 2004 12:11
af arnarj
eru allar viftur að snúast hjá þér? Þarft að tékka á því. Ef eiithvað er að ofhitna gæti það valdið þessu.

Sent: Fös 17. Des 2004 12:28
af Pirate^
Það er ekkert að ofhitna held ég, hún er 40-48° heit. :shock:

Sent: Fös 17. Des 2004 13:43
af kristjanm
Skoðaðu inn í tölvukassann hjá þér og staðfestu að allar viftur séu í gangi, þ.e. viftan á aflgjafanum, örgjörvanum og norðurbrúnni(ef það er vifta þar).

Þú getur einnig prófað að fara í BIOSinn og athugað hvort það sé eitthvað sem heitir CPU Shutdown Temperature sem er kannski stillt á eitthvað lágt. Þá geturðu hækkað það en það er sennilega ekkert of sniðugt. Kannski þarftu að skipta um kælikrem eða bara fá þér nýja kælingu.

Það eru líka nokkrir hlutir sem gætu verið að ofhitna hjá þér, getur kannski komist að því með því að downloada forriti sem sýnir hitann á hinum ýmsu hlutum eins og aflgjafa, örgjörva og móðurborðinu. Ég mæli með SpeedFan.

Sent: Fös 17. Des 2004 14:42
af Pirate^
Cpu shutdown tempature er 75°. Svo eru hitastigin sona: Temp1: 39°, Temp2: 47°, Temp3: 28°, HD0: 33°

Sent: Fös 17. Des 2004 14:56
af kristjanm
Prófaðu að keyra prime95 torture test. Finnur það á http://www.mersenne.org . Fylgstu með hitanum í SpeedFan. Ef það kemur upp villa án þess að það sé mjög mikill hiti þá er örgjörvinn óstöðugur og þá þarftu líklega að hækka spennuna á hann í BIOS.

Sent: Lau 18. Des 2004 01:20
af Pirate^
Ég kann ekkert á þetta Prime95 :? en allavega þá er hitinn ekki mikill, og ég dett samt út. Kemur alltaf þegar ég spila t.d. War3:

This application has encountered a critical error:
FATAL ERROR!
Program: c:\program files\warcraft iii\war3.exe
Exception 0xc0000005 (ACCESS_VILOLATION) at 001B:6F1B86AC
The instruction at '0x6F1B86AC' referenced menory at '0x00000290'.
The memory could not be 'written'.
Press OK to terminate the application

Sent: Lau 18. Des 2004 11:48
af gnarr
náðu í speed fan, taktu screenshot af aðalskjánum og sendu hingað.

Sent: Lau 18. Des 2004 17:20
af Pirate^
Ég held að ég sé búinn að finna hvað var að. Nýrri minniskubburinn var ónýtur, allavega er tölvan ekkert búin að klikka eftir að ég tók hann úr.

Sent: Lau 18. Des 2004 19:36
af arnarj
whut, það fyrsta sem maður hugsar þegar svona gerist er að minnið sé að klikka, en þú sagðist vera búin að skipta því út. Voru sem sagt bæði upphaflega minnið og það sem þú notaðir til að skipta því út biluð? :shock: