Síða 1 af 1

ARCH linux, svartur skjár eftir bootið

Sent: Fim 12. Nóv 2015 10:24
af hfwf
Sumsé í gær fraus tölvan í raun og veru, get ekki kveikt á skjánum, reboota henni, og allt virkar fínt í nokkrar mín , þá aftur black screen og frosin, það virkar sumsé að reboota henni en hun "frýs" alltaf eftir 1-2-3 mín til 40 mín eftir því sem ég hef prufað í gær. Ég er engu nær hvað gæti verið að,
einhver hér með hugmyndir?

Re: ARCH linux, svartur skjár eftir bootið

Sent: Fim 12. Nóv 2015 11:18
af Klara
Hverju breyttirðu nýlega?

Kernel uppfærsla?

Hvaða íhlutir eru í tölvunni?

Re: ARCH linux, svartur skjár eftir bootið

Sent: Fim 12. Nóv 2015 11:27
af hfwf
Engin kernel uppfærsla, því sem ég breytti nýlegast var að setja upp lm_sensors.
í tölvunni er 4gb minni plús 4 hdd.

Re: ARCH linux, svartur skjár eftir bootið

Sent: Fim 12. Nóv 2015 11:51
af Klara
Eitthvað skjákort ?

Re: ARCH linux, svartur skjár eftir bootið

Sent: Fim 12. Nóv 2015 11:52
af hfwf
Innbyggt nForce

Re: ARCH linux, svartur skjár eftir bootið

Sent: Fim 12. Nóv 2015 12:11
af Klara
Til að útiloka vélbúnaðinn ættirðu kannski að ræsa hana live og sjá hvort og hversu lengi hún lifir.

Kannski keyra memtest líka?

Ef þetta væri kernel panic þá fengirðu samt skilaboð um hvað crashaði er það ekki?

Re: ARCH linux, svartur skjár eftir bootið

Sent: Fim 12. Nóv 2015 12:16
af hfwf
Geri það eftir vinnu einmitt. Þakka hjálpina.

Re: ARCH linux, svartur skjár eftir bootið

Sent: Fim 12. Nóv 2015 13:14
af hfwf
Ætli SSD sé eitthvað vandamál fyrir linux server sem er í keyrslu allan daginn. á móti HDD