Lenovo IdeaPad - ekkert hljóð úr sjónvarpi (tengt gegnum HDMI)


Höfundur
geiri42
Græningi
Póstar: 25
Skráði sig: Mið 19. Jún 2013 23:22
Reputation: 6
Staða: Ótengdur

Lenovo IdeaPad - ekkert hljóð úr sjónvarpi (tengt gegnum HDMI)

Pósturaf geiri42 » Mið 11. Nóv 2015 00:09

Var að líta á Lenovo IdeaPad sem er tengd við TV með HDMI-snúru. Myndin kemur eðlilega, en hljóðið kemur bara úr tölvunni, ekki sjónvarpinu.

Man ekki týpunúmerið, en hún er með i7 + 8GB og Windows 8.

Ég var að skoða þetta áðan (er ekki á staðnum núna) en fann ekkert út í fljótu bragði.
- Sama snúra virkar frá afruglara yfir í TV
- Fann engar líklegar stillingar í menu á TV
- Hljóð spilast eðlilega úr hátalaranum á tölvunni.

Þekki hvorki Win8+ né HDMI sérlega vel, þannig að þetta gæti verið eitthvað mjög augljóst sem mér er að yfirsjást. :sleezyjoe

Einhver sem getur gefið ráð?



Skjámynd

Hrotti
Geek
Póstar: 812
Skráði sig: Mán 22. Mar 2010 20:05
Reputation: 127
Staðsetning: Reykjanesbær
Staða: Ótengdur

Re: Lenovo IdeaPad - ekkert hljóð úr sjónvarpi (tengt gegnum HDMI)

Pósturaf Hrotti » Mið 11. Nóv 2015 00:14

þarftu ekki bara að velja hdmi undir playback devices?


Verðlöggur alltaf velkomnar.

Skjámynd

fallen
ÜberAdmin
Póstar: 1320
Skráði sig: Fös 06. Feb 2004 13:09
Reputation: 8
Staðsetning: eyjar
Staða: Ótengdur

Re: Lenovo IdeaPad - ekkert hljóð úr sjónvarpi (tengt gegnum HDMI)

Pósturaf fallen » Mið 11. Nóv 2015 00:17

Control panel -> sound -> hægrismella á HDMI tækið og velja "set as default device".

Mynd


Gaming: Intel i5-4670K @ 4.4GHz | Gigabyte G1.Sniper M5 | Gigabyte GTX 970 4GB | 16GB Crucial BallistiX DDR3 | Samsung 840 EVO 120GB | Corsair 350D | Corsair AX760 | Corsair H100i | BenQ XL2411T 144Hz
unRAID: Intel Xeon E3-1275 v6 | Supermicro X11SSL-CF | 32GB DDR4 ECC | 6x10TB IronWolfs | Samsung 850 Pro 512GB & 256GB | Fractal Node 804 | Corsair SF750 | APC Back-UPS Pro 900


Höfundur
geiri42
Græningi
Póstar: 25
Skráði sig: Mið 19. Jún 2013 23:22
Reputation: 6
Staða: Ótengdur

Re: Lenovo IdeaPad - ekkert hljóð úr sjónvarpi (tengt gegnum HDMI)

Pósturaf geiri42 » Mið 11. Nóv 2015 00:31

Takk fyrir þessar ábendingar - ætla að skoða þetta á morgun. :-)

Var eitthvað búinn að fara inn í Sound stillingarnar. Minnir að ég hafi séð þar innbyggðu hátalarana líklegast (voru tvö device - prófaði að setja hitt sem default, þá datt hljóðið úr tölvunni en ekkert meira). Finnst eins og ég hafi ekki séð sjálft sjónvarpið sem device þarna.

Ein vangavelta - ef ég stilli TV-ið sem Default Playback Device, hættir þá að koma hljóð úr tölvuhátalaranum eða er hægt að láta koma frá báðum stöðum?