Síða 1 af 7

Lokað á deildu.net / icetracker.org

Sent: Mið 16. Sep 2015 12:55
af kfc
Sælir, hvernig kemst maður inn á þessar síður eftir þessa aðgerð?

http://www.ruv.is/frett/loka-a-deilisidur

Re: Lokað á deildu.net / icetracker.org

Sent: Mið 16. Sep 2015 13:22
af belvar
Getur googlað online proxy og notað það til þess að komast inn https://hide.me/en/proxy, https://kproxy.com/ þetta eru fyrstu 2 ef þú nennir ekki að googla

Re: Lokað á deildu.net / icetracker.org

Sent: Mið 16. Sep 2015 13:31
af AntiTrust
HMA VPNið virkar líka fínt.

Re: Lokað á deildu.net / icetracker.org

Sent: Mið 16. Sep 2015 13:48
af Blues-
Þetta er eins einfalt og það gerist ..
opnið host skránna ykkar .. c:\windows\system32\drivers\hosts ef ég man rétt á win .. /etc/hosts á linux
bætið við þessari færslu > 37.187.74.47 icetracker.org

Málið leyst ..

ps. eina sem ISP-inn þinn er að gera er að bæta við static DNS færslu á þessi lén sem er búið að blokka,
sem síðan vísar þér á rangann vefþjón (þeirra eigin með Copyright Warning í þessu tilfelli)

Re: Lokað á deildu.net / icetracker.org

Sent: Mið 16. Sep 2015 14:12
af Cikster
Jæja sé að er búið að benda á proxy leiðina og að edita hosts skránna (sem getur verið leiðindi ef þeir hoppa um server einhvertíman síðar). Einfaldasta leiðin væri að breyta stillingunni á routernum og nota dns frá öðrum en íslenskum ISP ... t.d. google sem eru 8.8.8.8 og 8.8.4.4 eða fyrir þá sem þora ekki eða kunna ekki að fikta í routernum að fastsetja ip töluna á þeirri tölvu sem þarf að komast á síðuna og nota þessa dns þar.

Re: Lokað á deildu.net / icetracker.org

Sent: Mið 16. Sep 2015 14:16
af kfc
Online proxy virkar fínt, hitt fann ég ekki í win10

Takk

Re: Lokað á deildu.net / icetracker.org

Sent: Mið 16. Sep 2015 14:50
af hagur
Þeir eru að slást við vindmyllur .... algjörlega pointless að reyna að loka á þetta.

Re: Lokað á deildu.net / icetracker.org

Sent: Mið 16. Sep 2015 14:51
af cc151

Re: Lokað á deildu.net / icetracker.org

Sent: Mið 16. Sep 2015 15:32
af Páll

Re: Lokað á deildu.net / icetracker.org

Sent: Mið 16. Sep 2015 15:41
af gardar
Nota menn virkilega ennþá DNS frá símafélögunum?

Re: Lokað á deildu.net / icetracker.org

Sent: Mið 16. Sep 2015 17:03
af kfc
Hvaða máli skiftir það að nota DNS frá símafélögunum eða einhvað annað DNS?

Re: Lokað á deildu.net / icetracker.org

Sent: Mið 16. Sep 2015 17:08
af hagur
kfc skrifaði:Hvaða máli skiftir það að nota DNS frá símafélögunum eða einhvað annað DNS?


Vegna þess að símafélögin geta krukkað í sínum DNS þjónum þannig að þegar þú ferð t.d inná icetracker.org (sem dæmi) að þá vísi það á allt aðra IP tölu, t.d server hjá þeim sjálfum, þar sem þeir birta bara "sorry, lokað blah blah".

Re: Lokað á deildu.net / icetracker.org

Sent: Mið 16. Sep 2015 17:27
af Tiger
gardar skrifaði:Nota menn virkilega ennþá DNS frá símafélögunum?


Hverju öðru mæliru með? Var með openDNS í smá tíma en þá voru download frá Apple t.d. alveg hrikalega hæg.. hvað er best í þessu?

Re: Lokað á deildu.net / icetracker.org

Sent: Mið 16. Sep 2015 17:34
af hagur
8.8.8.8 google dns

Re: Lokað á deildu.net / icetracker.org

Sent: Mið 16. Sep 2015 17:59
af kfc
Breytir maður bæði Primary DNS og Secondary DNS?
Primary DNS verður þá 8.8.8.8 og Secondary DNS 8.8.4.4?

Re: Lokað á deildu.net / icetracker.org

Sent: Mið 16. Sep 2015 18:24
af sopur
Ég kemst enn inn á icetracker.org :O

Re: Lokað á deildu.net / icetracker.org

Sent: Mið 16. Sep 2015 18:29
af beatmaster
Blues- skrifaði:Þetta er eins einfalt og það gerist ..
opnið host skránna ykkar .. c:\windows\system32\drivers\etc\hosts ef ég man rétt á win .. /etc/hosts á linux
bætið við þessari færslu > 37.187.74.47 icetracker.org

Málið leyst ..

ps. eina sem ISP-inn þinn er að gera er að bæta við static DNS færslu á þessi lén sem er búið að blokka,
sem síðan vísar þér á rangann vefþjón (þeirra eigin með Copyright Warning í þessu tilfelli)


Á Windows Vista og upp úr er best að ýta á start og skrifa Notepad, hægri smella svo á Notepad icon-ið og velja "Run as Administrator"

Þegar að Notepad hefur opnast þá skal velja File > Open... og vafra að eftirfarandi staðsetningu: C:\Windows\System32\drivers\etc og velja skrá sem heitir hosts

Neðst í skránna bætirðu við IP tölunni á vefsíðunni og gerir svo bil og skrifar í sömu linu nafnið á vefsíðunni.

Lokar svo Notepad og segir já við það hvort að þú viljir vista skránna.

Re: Lokað á deildu.net / icetracker.org

Sent: Mið 16. Sep 2015 18:48
af nidur
Flott hjá okkur að loka á þessar síður :lol:

Og auðvitað notar maður ekki dns frá símafélögunum nema að maður viti ekki hvað dns er :)

Re: Lokað á deildu.net / icetracker.org

Sent: Mið 16. Sep 2015 19:19
af Blackened
það fyrsta sem ég geri þegar ég kaupi mér Router er að setja DNS sem 8.8.8.8 og 8.8.4.4 og ég verð aldrei var við neitt svona bull :)

Lokanir eru bara fyrir þá sem að vita ekki betur!

Re: Lokað á deildu.net / icetracker.org

Sent: Mið 16. Sep 2015 19:50
af BugsyB

Re: Lokað á deildu.net / icetracker.org

Sent: Fim 17. Sep 2015 00:11
af toivido
Blackened skrifaði:það fyrsta sem ég geri þegar ég kaupi mér Router er að setja DNS sem 8.8.8.8 og 8.8.4.4 og ég verð aldrei var við neitt svona bull :)

Lokanir eru bara fyrir þá sem að vita ekki betur!


Ég er einn af þeim sem veit ekkert hvað þetta DNS er. Hvaða áhrif hefur það að breyta DNS með þessum hætti? ný spyr ég kannski eins og vitleysingur en t.d. eykst erlent niðurhal eða er eitthvað annað sem gerist. Það hlýtur eitthvað að gerast því annars væru allar routerar stilltir á 8.8.8.8, er það ekki annars? :)

Re: Lokað á deildu.net / icetracker.org

Sent: Fim 17. Sep 2015 00:11
af toivido
Hver er lausnin ef maður er með macca. Ég sá á athugasemdkerfi DV að einhver var með link á bat skrá en ég get ekkert opnað hana með mac, eða með hvaða forriti opna ég þetta?

Re: Lokað á deildu.net / icetracker.org

Sent: Fim 17. Sep 2015 00:22
af straumar
toivido skrifaði:
Blackened skrifaði:það fyrsta sem ég geri þegar ég kaupi mér Router er að setja DNS sem 8.8.8.8 og 8.8.4.4 og ég verð aldrei var við neitt svona bull :)

Lokanir eru bara fyrir þá sem að vita ekki betur!


Ég er einn af þeim sem veit ekkert hvað þetta DNS er. Hvaða áhrif hefur það að breyta DNS með þessum hætti? ný spyr ég kannski eins og vitleysingur en t.d. eykst erlent niðurhal eða er eitthvað annað sem gerist. Það hlýtur eitthvað að gerast því annars væru allar routerar stilltir á 8.8.8.8, er það ekki annars? :)


----
x2

myndi líka þiggja svar við þessu hvað gerist ef maður breytir.....

Re: Lokað á deildu.net / icetracker.org

Sent: Fim 17. Sep 2015 00:25
af Opes
toivido skrifaði:Hver er lausnin ef maður er með macca. Ég sá á athugasemdkerfi DV að einhver var með link á bat skrá en ég get ekkert opnað hana með mac, eða með hvaða forriti opna ég þetta?



Apple - System Preferences - Networks - Wi-Fi (eða Airport) - Advanced... - DNS. Tæmir "DNS Servers" reitinn. Bætir við 8.8.8.8 og 8.8.4.4.

Re: Lokað á deildu.net / icetracker.org

Sent: Fim 17. Sep 2015 00:33
af Blackened
DNS eru það sem að í "daglegu" tali eru kallaðir Nafnaþjónar.. hver þjónustuaðili er með sína eigin nafnaþjóna sem að nettengingunni þinni er beint á

Það sem að nafnaþjónn gerir í rauninni er voða einfalt.. ef að þú biður browserinn þinn um segjum http://www.mbl.is þá sendir browserinn beiðni á DNS þjóninn og spyr hvaða IP tala er á bakvið mbl.is og DNS svarar http://92.43.192.110 og browserinn þinn fer þangað

8.8.8.8 og 8.8.4.4 eru bara nafnaþjónar sem að Google eiga en ekki Vodafone eða Síminn eða hver sem er..

Einfölduð skýring er að DNS er í rauninni svolítið eins og símaskrá ;) þú sendir beiðni á DNS(símaskránna) um eitthvað nafn.. og DNSinn sendir þér símanúmerið(iptöluna) til baka og þú hringir

Þetta hefur engin áhrif á það hvaðan þú sækir dótið.. þetta er bara þjónusta sem segir þér hvaða iptala er á bakvið hvaða lén


Þessar "lokanir" hjá símafélögunum hafa slétt engin áhrif á síðurnar sjálfar.. þeir bara stilla nafnaþjónana sína til að vísa þér á einhverja tilbúna lokunarsíðu í staðinn fyrir síðuna sjálfa