Símafélagið. Overpriced rusl eða stálið?


Höfundur
biggi1
spjallið.is
Póstar: 440
Skráði sig: Mið 01. Des 2004 00:33
Reputation: 3
Staðsetning: Brh..
Staða: Ótengdur

Símafélagið. Overpriced rusl eða stálið?

Pósturaf biggi1 » Fös 28. Ágú 2015 14:20

Daginn.

Af einhverjum ástæðum er Símafélagið að rukka tíu sinnum meira fyrir ljósleiðara en vodafone, og ekki get ég skilið afhverju.
Getur einhver skýrt út fyrir mér afhverju fyrirtæki taka þetta frekar en venjulegann heimilisljósleiðara og router?.
Erum með cisco router frá símafélaginu, sem tengist í tvo svissa, einn 8 porta og einn 16, og þaðan inná skrifstofunar.

http://www.simafelagid.is/fyrirtaeki/net/ljosleidari/

Í hverju fellst verðmismunurinn?

kveðja, einn ráðvilltur. :-k



Skjámynd

gardar
Besserwisser
Póstar: 3111
Skráði sig: Mán 11. Ágú 2008 02:49
Reputation: 12
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Símafélagið. Overpriced rusl eða stálið?

Pósturaf gardar » Fös 28. Ágú 2015 14:26

Þú ert að skoða fyrirtækja tengingarnar hjá símafélaginu.

Skoðaðu verðskrána fyrir einstaklinga
http://www.simafelagid.is/einstaklingar ... osleidari/




Höfundur
biggi1
spjallið.is
Póstar: 440
Skráði sig: Mið 01. Des 2004 00:33
Reputation: 3
Staðsetning: Brh..
Staða: Ótengdur

Re: Símafélagið. Overpriced rusl eða stálið?

Pósturaf biggi1 » Fös 28. Ágú 2015 14:55

Spurningin er, afhverju er þetta svona mikið dýrara fyrir fyrirtæki? Getum við ekki fengið internet fyrir heimili inná skrifstofu? Hver er eginlega munurinn?



Skjámynd

gardar
Besserwisser
Póstar: 3111
Skráði sig: Mán 11. Ágú 2008 02:49
Reputation: 12
Staðsetning: ::1
Staða: Ótengdur

Re: Símafélagið. Overpriced rusl eða stálið?

Pósturaf gardar » Fös 28. Ágú 2015 15:18

Eins og mér skilst að þetta sé þá liggur munurinn í því að það eru aðeins aðrir möguleikar á fyrirtækja tengingum en einstaklings og fyrirtækja tengingarnar eiga að vera öruggari og stöðugari.

Ég veit jafnframt að í atvinnu húsnæði þar sem komin er inn ljósleiðari frá gagnaveitunni sem flokkaður er sem "fyrirtækja tenging", þá er ekki möguleiki á að fá einstaklings tengingu skráða á það.

Hvort þetta réttlæti þennan verðmun er svo allt annað mál.

Ég er annars með tvær einstaklings tengingar frá símafélaginu og er mjög ánægður með þær.



Skjámynd

depill
Stjórnandi
Póstar: 1548
Skráði sig: Mán 04. Júl 2005 17:09
Reputation: 215
Staðsetning: Reykjavík, Iceland
Staða: Ótengdur

Re: Símafélagið. Overpriced rusl eða stálið?

Pósturaf depill » Fös 28. Ágú 2015 15:19

Það er rosalega blurruð lína.

1. Þú getur ekki fengið "ljósleiðara" tengingu fyrir einstaklinga yfirleitt inn til fyrirtækja. GR neitar að tengja fyrirtæki við lausnina ( og yfirleitt fyrirtækjahús ).
2. Þú getur alveg fengið VDSL + ADSL tengingar inn til þín ekkert mál

Þú þarft soldið að ákveða hraðan sem þú vilt fá, latencyið og annað hvort það sé þess virði. Það eru líka til SHDSL, VDSL+ og ADSL+ tengingar.

Þetta er yfirleitt svona sambland af stöðugleika + fídusum ( rútuð net, tryggð bandbreidd, forgangur o.s.frv sem er í fyrirtækjatengingunum ). En þessi lína verður alltaf sífellt óskýrari og skýrari.



Skjámynd

Fletch
Stjórnandi
Póstar: 1312
Skráði sig: Sun 22. Des 2002 00:14
Reputation: 103
Staðsetning: MHz=MHz+1
Staða: Ótengdur

Re: Símafélagið. Overpriced rusl eða stálið?

Pósturaf Fletch » Fös 28. Ágú 2015 15:23

off topic en Símfélagið byrjaði nýlega að rukka fyrir caching servera (youtube t.d.) án þess að tilkynna það.
ég hélt það væri búið að hakka netið hjá mér þegar gagnamagnið rauk upp án aukinnar notkunnar og eyddi tíma í að leita að því.

Vodafone var bustað fyrir sama, en þeir (reyndar tilneyddir) stækkuðu gagnapakkana töluvert sem Símfélagði er ekki búið að gera svo ég viti


AMD Ryzen 3900XT * Nvidia GTX 4080s * Asus TUF mATX * 64GB DDR4
Jensbo D31* Corsair PSU1000w * Alienware 34" OLED AW3423DWF


arons4
vélbúnaðarpervert
Póstar: 938
Skráði sig: Mið 27. Apr 2011 20:40
Reputation: 126
Staða: Ótengdur

Re: Símafélagið. Overpriced rusl eða stálið?

Pósturaf arons4 » Fös 28. Ágú 2015 17:31

Geri líka ráð fyrir að þeir þjónusti þennan cisco búnað sem þeir leigja með tengingunni og að það sé innifalið í verðinu(án þess þó að ég viti neitt um það)




Leviathan
spjallið.is
Póstar: 437
Skráði sig: Mán 20. Júl 2009 04:25
Reputation: 2
Staðsetning: Keflavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Símafélagið. Overpriced rusl eða stálið?

Pósturaf Leviathan » Fös 28. Ágú 2015 20:00

Er búinn að vera viðskiptavinur Netsamskipta frá upphafi nánast og alltaf verið mjög sáttur, en eftir þessa sameiningu er ég að hugsa um að færa mig annað. Downtime hjá Netsamskiptum í þessi 10+ ár var nánast enginn en frá sameiningunni hefur netið dottið töluvert oft út hjá mér.


AMD PHENOM II X4 955 @ 3.52GHz - Tacens Gelus III Pro - ASRock M3A770DE - 4GB DDR3 (Dual Channel) - ATI Radeon HD5770 - Tacens Radix III 520W - Windows 7 Ultimate (64bit) - 2TB

Skjámynd

nidur
/dev/null
Póstar: 1363
Skráði sig: Fim 18. Ágú 2011 16:50
Reputation: 193
Staðsetning: In the forest
Staða: Ótengdur

Re: Símafélagið. Overpriced rusl eða stálið?

Pósturaf nidur » Fös 28. Ágú 2015 21:21

stálið!


Everyone knows the phrases "time is money" and "money is power". That naturally concludes that time is also power. Time gives you the ability to learn how to do things, but people don't want the power in today's world. They want their time and money.


gutti
Bara að hanga
Póstar: 1589
Skráði sig: Lau 19. Apr 2003 22:56
Reputation: 44
Staðsetning: REYKJAVIK
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Símafélagið. Overpriced rusl eða stálið?

Pósturaf gutti » Lau 29. Ágú 2015 00:18

Fletch þú átt rétt að fá tilkynningu þeim er skyld gera ef ekki kvarta við þá