Sælir.
Konan mín er að vinna talsvert með Exel og þegar mynd er "Insert" í exel þá er allt í lagi og lítur eðlilega út á skjá en þegar farið er í print prewiew þá sést að myndin hefur aðeins bjagast á þann veg að hún pressist saman eða víkkar, erfitt að segja hvort (hlutir virðast lægri og breiðari. Þetta kemur líka út í prentun, það er myndin er aðeins aflöguð.
Erum búin að prófa þetta í Office xp og Office 2003 á aðskyldum vélum og er það allveg sama. Einnig er búið að fara yfir og prufa flestar stillingar í Format picture til dæmis í size og properties og einnig í margins í print prewiew, en mynd sem Insertuð verður alltaf bjöguð (digital ljósmynd í fullum gæðum)
Nú veit ég ósköp vel að exel er ekki myndvinnslu forrit en hentar hins vegar ákaflega vel í þetta verkefni og því fúlt að forritið skuli aðeins aflaga mynd í prentun. Þetta er ekki mikið en þegar maður er mjög smámunasamur eins og konan mín er erfitt að láta þetta frá sér fara svona

Dálkar í kring um myndina virðast ekkert breytast.
Hafiði hugmynd um hvort hægt er að laga þetta?
Það er náttúrulega hægt með því að mjókka hana örlítið manual fyrir prentun til þess að myndin verði eðlileg í útprentun en það er nú hálfgert skítmix.
