Síða 1 af 1
Furðulegt atvik í sambandi við IP hjá Simnet.
Sent: Sun 05. Des 2004 18:43
af Le Drum
Sælir.
Bróðir minn sagði mér í dag að fasta IP-talan á ADSL tenginunni hans hjá Simnet, hefði allt í einu breyst í dag.
Síðan þegar ég kom heim ákvað ég að athuga hvort hún hafi breyst hjá mér líka, sem var.
Þurfti að restarta routernum tvisvar til þess að fá netið til þess að virka á ný 100%.
Sent: Sun 05. Des 2004 20:49
af natti
Ef þið eruð með fasta ip tölu, og eruð að borga 500kr á mánuði aukalega fyrir það, þá á hún auðvitað ekki að breytast.
En eruði að borga 500kr á mán? Eruði með fasta ip tölu?
Eða hélduð þið bara að ip talan myndi aldrei breytast.
(Ekki misskilja, mikið af fólki heldur að ip talan hjá því breytist aldrei afþví að hún hefur ekki gert það í X langan tíma.)
Sent: Sun 05. Des 2004 21:29
af Le Drum
Erum að sjálfsögðu með fasta og erum að borga fyrir það.
Sent: Sun 05. Des 2004 23:03
af gumol
Þá myndi ég hringja í símann og krefjast þess að fá aftur gömlu ip-töluna strax. Þú ert að borga 6000 kall á ári fyrir eitthvað sem ætti að vera mjög einfalt fyrir þá, annaðhvort að fá IP töluna aftur eða fá allan peningin sem þú ert búinn að borga fyrir fasta ip frá upphafi endurgreiddan.
Sent: Mán 06. Des 2004 01:34
af Le Drum
Hehe, hún er komin aftur, rétta IP talan.
Þetta er í meira lagi stórfurðulegt.
Sent: Mán 06. Des 2004 02:07
af urban
ég er nú búin að lenda í því nokkrum sinnum í síðustu viku að netið slær út seint á nóttunni eða snemma á morgnanna... síðast núna í morgun (sunnudagsmorgun það er að segja) og þá var það meirað segja úti hjá mér í 15 - 20 mín og ég var að verða geðvekur
já btw ég er hjá simnet
Sent: Mán 06. Des 2004 22:54
af Jakob
Sama hérna, netið hefur verið að detta út milli 4-6 á morgnana hjá mér, í ca. 10 mínútur í hvert skipti.
IP talan er að vísu alltaf sú sama.
Sent: Þri 07. Des 2004 00:35
af Zaphod
Hef heyrt um fleiri sem eru að kvarta undan því sama þeas að netið detti út á morgnana en ekkert um breytingar á IP .
Sent: Þri 07. Des 2004 09:38
af einarsig
málið er að þegar þið eruð að detta út snemma á morgnana eru yfirleitt uppfærslur á adsl búnaði hjá símanum..... getið tjekkað á simnet.is og þar stendur neðst..... internet tilkynningar og getið þannig fylgst með hvort þetta hafi verið bilun eða uppfærsla

Sent: Þri 07. Des 2004 14:45
af hallihg
Ég er eigi með fasta ip tölu, en sú sama virðist haldast hjá mér á meðan ég er ekki að restarta routernum, eða þannig hefur það verið eins og lengi og ég man eftir mér hjá simnet.
Sent: Þri 07. Des 2004 15:17
af ParaNoiD
hallihg skrifaði:Ég er eigi með fasta ip tölu, en sú sama virðist haldast hjá mér á meðan ég er ekki að restarta routernum, eða þannig hefur það verið eins og lengi og ég man eftir mér hjá simnet.
þannig á það líka að vera ... það að vera ekki með fasta iptölu þýðir að þú færð nýja við hverja tengingu, ekki bara random ip töluskipti einu sinni á dag

Sent: Þri 07. Des 2004 17:48
af Jakob
einarsig skrifaði:málið er að þegar þið eruð að detta út snemma á morgnana eru yfirleitt uppfærslur á adsl búnaði hjá símanum..... getið tjekkað á simnet.is og þar stendur neðst..... internet tilkynningar og getið þannig fylgst með hvort þetta hafi verið bilun eða uppfærsla

Þeir eru ekki að uppfæra kerfið á hverjum einasta degi !
