ethernet >100m


Höfundur
dodzy
has spoken...
Póstar: 183
Skráði sig: Þri 19. Okt 2010 19:22
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

ethernet >100m

Pósturaf dodzy » Fös 03. Apr 2015 22:01

Sælir, nú er ~140m rör hérna heima milli húsa og það er pæling að koma mögulega interneti þar á milli, er ljósleiðari það eina sem er 100% tryggt að virki fyrir svona vegalengdir?




Skari
spjallið.is
Póstar: 482
Skráði sig: Fim 31. Mar 2005 11:35
Reputation: 18
Staða: Ótengdur

Re: ethernet >100m

Pósturaf Skari » Fös 03. Apr 2015 22:12

Já því miður, það er talað um að komi tap eftir 100metra en þá verðuru að gera ráð fyrir að t.d. frá tengil í tölvu getur verið nokkrir metrar svo þú ættir aldrei að leggja meira en kannski svona 95metra eða svo.

Held því miður að þú verðir að fá þér switcha í sitthvoru húsinu og tengja þá saman með ljósleiðara, verður dýrt en held það sé það eina í stöðunni



Skjámynd

snaeji
Tölvutryllir
Póstar: 614
Skráði sig: Fös 05. Mar 2010 01:39
Reputation: 27
Staða: Ótengdur

Re: ethernet >100m

Pósturaf snaeji » Fös 03. Apr 2015 22:32

Mér dettur í hug að það sé hægt að redda "interneti" yfir þráðlaust með directional antenna ódýrara ef þetta er í sjónlínu.
Nærð líklegast 10Mbps yfir með ~150 metra cat kapal. Dugar í létt internetráp
En ljósleiðarinn er auðvitað solid 100% lausn.



Skjámynd

nidur
/dev/null
Póstar: 1370
Skráði sig: Fim 18. Ágú 2011 16:50
Reputation: 193
Staðsetning: In the forest
Staða: Tengdur

Re: ethernet >100m

Pósturaf nidur » Fös 03. Apr 2015 23:36

Getur prufað að leggja 140m kapal á milli til að athuga hvort að hann virki, ef hann virkar skella honum í rörið, það gæti verið í lagi og gæti ekki verið í lagi.


Everyone knows the phrases "time is money" and "money is power". That naturally concludes that time is also power. Time gives you the ability to learn how to do things, but people don't want the power in today's world. They want their time and money.

Skjámynd

CendenZ
Stjórnandi
Póstar: 2831
Skráði sig: Fös 04. Apr 2003 08:54
Reputation: 211
Staðsetning: Á þessu spjalli
Staða: Ótengdur

Re: ethernet >100m

Pósturaf CendenZ » Lau 04. Apr 2015 00:31

Um leið og cat5/6 fer yfir 120 metrana kemur timeout á protocolinn, þ.e. það er merki sent fram og tilbaka. Þannig verður gífurlegt packetloss og algjört rugl að fara gera eitthvað sem skiptir máli. Netið verður alltaf að detta út og stöðugt lagg

Geturu sett sviss eða router mitt á milli ? Fiber er mjög dýr lausn :) Ég myndi skoða poe keyrðan sviss

edit:

Fiber er dýr því þú þarft kunnáttu og tækin í þetta, hann er ekki dýr sem slíkur ;)




Varg
Fiktari
Póstar: 80
Skráði sig: Fim 24. Mar 2011 20:17
Reputation: 3
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: ethernet >100m

Pósturaf Varg » Lau 04. Apr 2015 00:44



Corsair Carbite 200R Gigabyte G1 Sniper Z97 Intel I7 4790K @ 4.0 GHz Cooler Master V8 GTS Crucial BallistiX Sport 16GB DDR3 1600MHz Gigabyte GTX 970 G1 Gaming 4Gb Samsung EVO 250 Gb 2TB Seagate 7200 HDD


Skari
spjallið.is
Póstar: 482
Skráði sig: Fim 31. Mar 2005 11:35
Reputation: 18
Staða: Ótengdur

Re: ethernet >100m

Pósturaf Skari » Lau 04. Apr 2015 01:22

til að halda kostnaðinum niðri, ætti þá ekki að vera möguleiki að kaupa 140-150m af ljósleiðara og fá eitthvað fyritæki sem sérhæfir sig í þessu að splæsa tengjum á?

myndi halda að þú ættir að ná að draga ljósleiðarann í gegnum rörið þótt það sé tengi á honum.




arons4
vélbúnaðarpervert
Póstar: 946
Skráði sig: Mið 27. Apr 2011 20:40
Reputation: 126
Staða: Ótengdur

Re: ethernet >100m

Pósturaf arons4 » Lau 04. Apr 2015 02:59

Skari skrifaði:til að halda kostnaðinum niðri, ætti þá ekki að vera möguleiki að kaupa 140-150m af ljósleiðara og fá eitthvað fyritæki sem sérhæfir sig í þessu að splæsa tengjum á?

myndi halda að þú ættir að ná að draga ljósleiðarann í gegnum rörið þótt það sé tengi á honum.

Ljósleiðari er brothættur og þótt að tengið passi í rörið geturðu aldrei nokkurntímann dregið hann á því 20m hvað þá 140m. Auk þess er það ekki ljósleiðarinn sjálfur sem er svo agalega dýr, það er endabúnaðurinn og ljósbreyturnar sem eru dýrar(Og leiga á manni sem á og kann á verkfærin).

Hef séð þetta gert yfir símalínur((1 twisted pair)gegnum sdsl held ég alveg örugglega) og örbylgju, spurning hvort hentar betur.



Skjámynd

depill
Stjórnandi
Póstar: 1550
Skráði sig: Mán 04. Júl 2005 17:09
Reputation: 217
Staðsetning: Reykjavík, Iceland
Staða: Ótengdur

Re: ethernet >100m

Pósturaf depill » Lau 04. Apr 2015 09:06

Hentu bara CAT í rörið. VDSL point to point á milli og þú nærð svona basicly sem þú vilt. Zhone selur modem sem geta verið point to point fyrir um 74 dollara, StarTech selur extender lausnir ( sem virka eins ) sem kostar á newegg 239 fyrir báða endana. Þú velur bara.




Höfundur
dodzy
has spoken...
Póstar: 183
Skráði sig: Þri 19. Okt 2010 19:22
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Re: ethernet >100m

Pósturaf dodzy » Lau 04. Apr 2015 11:12

depill skrifaði:Hentu bara CAT í rörið. VDSL point to point á milli og þú nærð svona basicly sem þú vilt. Zhone selur modem sem geta verið point to point fyrir um 74 dollara, StarTech selur extender lausnir ( sem virka eins ) sem kostar á newegg 239 fyrir báða endana. Þú velur bara.

já þetta er besta lausnin í þessu tilviki, þakka aðstoðina :)




bigggan
spjallið.is
Póstar: 452
Skráði sig: Fim 05. Maí 2011 17:43
Reputation: 34
Staða: Tengdur

Re: ethernet >100m

Pósturaf bigggan » Lau 04. Apr 2015 17:39

Wifi með directional loftnet er með drægni uppá 10 km. Folk eru að seigja það virkar fint á þannig vegalengdir. Og það er ekki svo dyrt

Annað er að nota coaxial þau leyfa hærri hraði á lengri vegalengdir
Síðast breytt af bigggan á Lau 04. Apr 2015 17:53, breytt samtals 1 sinni.



Skjámynd

nidur
/dev/null
Póstar: 1370
Skráði sig: Fim 18. Ágú 2011 16:50
Reputation: 193
Staðsetning: In the forest
Staða: Tengdur

Re: ethernet >100m

Pósturaf nidur » Lau 04. Apr 2015 17:49

Já lifehacker var með skemmtilega grein um einn sem breytti usb wifi í svona directional með sigti og glerkrukku náði niður alla götuna út í kaffihús.

http://lifehacker.com/build-a-direction ... 1686173362


Everyone knows the phrases "time is money" and "money is power". That naturally concludes that time is also power. Time gives you the ability to learn how to do things, but people don't want the power in today's world. They want their time and money.

Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 5020
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 895
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: ethernet >100m

Pósturaf jonsig » Lau 04. Apr 2015 20:34

par af endabúnaði fyrir ljósleiðara eru 44$ á ebay . Og þar sem ljósleiðarinn er þetta stuttur á efast ég um að frágangurinn þurfi að vera eitthvað mega fancy. Hann hlýtur að geta reddað á þetta einhverju patent pluggum á þetta og látið þetta virka.




einarth
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 346
Skráði sig: Þri 26. Okt 2010 15:01
Reputation: 41
Staða: Ótengdur

Re: ethernet >100m

Pósturaf einarth » Sun 05. Apr 2015 21:40

Hann getur jafnvel keypt 150m fiber patch snúru (með endunum á) og dregið hana í gegn ef þetta rör er sæmilega rúmt...




Höfundur
dodzy
has spoken...
Póstar: 183
Skráði sig: Þri 19. Okt 2010 19:22
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Re: ethernet >100m

Pósturaf dodzy » Sun 05. Apr 2015 22:53

einarth skrifaði:Hann getur jafnvel keypt 150m fiber patch snúru (með endunum á) og dregið hana í gegn ef þetta rör er sæmilega rúmt...


Ég vissi ekki að það væri hægt að fá þær svona langar, rörið er 26mm að utanmáli og mjög grannt, hef þetta í huga




einarth
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 346
Skráði sig: Þri 26. Okt 2010 15:01
Reputation: 41
Staða: Ótengdur

Re: ethernet >100m

Pósturaf einarth » Mán 06. Apr 2015 00:55





arons4
vélbúnaðarpervert
Póstar: 946
Skráði sig: Mið 27. Apr 2011 20:40
Reputation: 126
Staða: Ótengdur

Re: ethernet >100m

Pósturaf arons4 » Mán 06. Apr 2015 01:25

einarth skrifaði:fann þetta t.d. http://www.bestlinknetware.com/Product/102994

Þarft ljósbreyturnar og sviss eða annan endabúnað sem styður þær.



Skjámynd

snaeji
Tölvutryllir
Póstar: 614
Skráði sig: Fös 05. Mar 2010 01:39
Reputation: 27
Staða: Ótengdur

Re: ethernet >100m

Pósturaf snaeji » Mán 06. Apr 2015 05:23

Hugmynd sem hefur ekki heyrst enþá... hvað með að skella rafmagnskapal í rörið og nota powerline ?



Skjámynd

ponzer
Kerfisstjóri
Póstar: 1270
Skráði sig: Þri 07. Sep 2004 18:18
Reputation: 13
Staðsetning: Router(config)#
Staða: Ótengdur

Re: ethernet >100m

Pósturaf ponzer » Mán 06. Apr 2015 16:23

Ef þú nærð að draga multimode ljósleiðara í rörið þá ertu góður. Getur meirisegja notað OM2 leiðara sem eru ódýrari og drífa "allt að" 550m fyrir 1Gpbs samband.

Getur keypt þér tvær svona ódýrar ljósbreytur - þetta þarf ekki að vera dýrt ef þú þarft ekki að láta splæsa neina leiðara saman.

Ég myndi halda að þetta hérna ætti að duga;
http://shop.fiber24.net/index.php/en/10 ... 1310-AC100


Specs: Tölva, skjár, lyklaborð, mús og internet.


Blackened
vélbúnaðarpervert
Póstar: 956
Skráði sig: Mið 29. Sep 2004 17:36
Reputation: 14
Staðsetning: Babýlon norðursins
Staða: Ótengdur

Re: ethernet >100m

Pósturaf Blackened » Mán 06. Apr 2015 20:52

Afhverju í ósköpunum að nota multimode? það er slétt ekki betra eða ódýrara :) SM er leiðin :)



Skjámynd

ponzer
Kerfisstjóri
Póstar: 1270
Skráði sig: Þri 07. Sep 2004 18:18
Reputation: 13
Staðsetning: Router(config)#
Staða: Ótengdur

Re: ethernet >100m

Pósturaf ponzer » Þri 07. Apr 2015 12:54

Allur SM endabúnaður hefur yfirleitt bara verið mikið dýrari en MM. SM er líka notað í mikið lengri vegalengdir..


Specs: Tölva, skjár, lyklaborð, mús og internet.


conzole
Græningi
Póstar: 28
Skráði sig: Fös 30. Maí 2014 23:54
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: ethernet >100m

Pósturaf conzole » Mán 13. Apr 2015 16:26

Þú getur líka farið í VDSL einfaldlega þarna á milli. Ef þú vilt bara kopar á milli. Keypt þér tvö VDSL módem sem fást á góðu verði örugglega kringum 10þ. T.d. Patton VDSL módem. Það skilar þér svo ethernet á milli yfir í búnað. Ljósið getur verið erfitt að leggja og búnaðurinn er aðeins í dýrari líklega.



Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 5020
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 895
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: ethernet >100m

Pósturaf jonsig » Mán 13. Apr 2015 23:24

Helv. Sniðugt að kaupa tilbúinn full duplex fiber og ódýrt endabúnaðsdót á ebay

Tilbúinn sc fiber 150m kostar kringum 35k innflutt og endabúnaðurinn ca 10k

Raflína kúkar á sig við þessar kringumstæður.