Síða 1 af 1

windows .net

Sent: Fim 01. Jan 1970 00:00
af Xiao
hefur einhver herna heyrt um / profað windows .net
vinur minn sagði mer frá því og það ætti að vera mjög gott

Sent: Fim 01. Jan 1970 00:00
af kemiztry
Windows.Net er ennþá í beta þannig það getur varla verið svo gott :wink:

Púff....no more betas....

Sent: Fim 01. Jan 1970 00:00
af GuðjónR
Ég er búinn að fá minn skerf af windows-beta-junki...það eru sko ofá formöttin og krössin gegnum tíðina eftir tilraunir með þessi stýrikerfi.

Meira að segja í marga mánuði eftir að þau koma á markað þá eru þau meingölluð, win2000-sp3 er núna fyrst að verða eins og það átti upphaflega að vera og það löngu eftir að winXP kom á markað.

Ef maður heftur brennandi áhuga á stýrikerfum og forvitnin er að drepa mann þá er sniðugast að vera með sérstaka tölvu fyrir svona test.

Sent: Fim 01. Jan 1970 00:00
af Xiao
Ok takk :) ég ætla ekkert að fara að fikta i minni bara best að biða ;)

Sent: Fim 01. Jan 1970 00:00
af MezzUp
Segiði mér eitt
Eina ástæðan fyrir því að ég er ekki búinn að skipta yfir í w2k er compatibility problems (aðallega software)
Hafa einhverjir lent í problemi með það?
Bætia SP'arnir compatilbilty?
Ef að hluturinn virkar í XP virkar hann þá í 2000? þ.e. er hægt að nota XP driver'a fyrir Win2000?

Sent: Fim 01. Jan 1970 00:00
af GuðjónR
Ég hef ekki lent í neinum vandræðum með forrit í w2k, en ég hef lent í vandræðum með forrit í winXP.
Service pakkarnir innihalda safn af driverum og smá forritum sem gera stýrikerfið öruggara betra og stöðugra.
Ég lenti í vandræðum með brennarann í winXP fyrst eftir að winXP kom út, en ef ég installera winXP með sp1 núna þá virkar brennarinn fínt.

Sent: Mán 14. Okt 2002 15:25
af sneaker
Windows .NET serverinn er löngu kominn úr beta version í RC1. Sótti hann frá Microsoft og prófaði, virkar helvíti vel. Eina sem ég hef lent í veseni með er Windows Media Encoder 9, enda beta útgáfa.

Default uppsettningin á .NET servernum er mun öruggari en á Win2K servernum. T.d. er IIS ekki installaður by default og everyone er ekki með les réttindi á harða diska.

Bættur configure your server wizard í .NET serverunum gerir meðal Jóni auðveldlega kleyft að setja upp sem dæmi vefþjón. Svo er hjálpin fyrir allt mjög ýtarleg og góð.

Það er búið að bæta við nokkrum fídusum, einn af þeim er Shadow copy sem gerir notendum kleyft að nálgast gögn aftur í tímann. Command line tól eru orðin fleiri og öflugri.

Þeir sem hafa áhuga á Microsoft serverum ættu ekki að hika við að skoða þetta product ef þeir hafa vél í það. Mæli hins vegar ekki með því að nota þetta sem stýrikerfi á vinnuvél.

Sent: Mán 14. Okt 2002 15:54
af GuðjónR
Þetta hljómar mög spennandi, veistu hvenær þetta kemur á markað? :spin

Sent: Þri 27. Maí 2003 11:37
af einzi
Windows.NET er algjör snilld ..

Sent: Þri 27. Maí 2003 18:03
af gumol
MezzUp skrifaði:Ef að hluturinn virkar í XP virkar hann þá í 2000? þ.e. er hægt að nota XP driver'a fyrir Win2000?

Það er allavega hægt öfugt, þ.e. að nota 2000 drivera með XP með smá breitingum.
Microsoft ákvað að netkortið í eini vélinni hérna væri orðið það gamalt að ég skildi fá mér nýtt en ég fann einhvern driver fyrir Windows 2000 á netinu sem hægt var að nota í XP.

Sent: Þri 27. Maí 2003 18:16
af Castrate
hmm... dlaðiru windows.net? er þetta frítt apparat eða?

Sent: Þri 27. Maí 2003 22:48
af Voffinn
Castrate skrifaði:hmm... dlaðiru windows.net? er þetta frítt apparat eða?


Microsoft og frítt fara yfirleitt ekki vel saman í setningu....

Sent: Mið 28. Maí 2003 13:09
af Castrate
hehe það er satt. Annars misskildi ég það sem hann sagði. :D

Sent: Mið 28. Maí 2003 14:33
af elv
Þeir eru nú að bjóða að prufa win 2003 server frítt í 180 daga

Sent: Fös 30. Maí 2003 16:08
af skrimsli
Ég er búinn að keyra Windows 2003 server RC2 (hann mun ekki heita .NET server) í 2 mánuði stanslaust núna og krukka í öllum fítusum. Rock solid stuff þarna á ferð.

Sent: Fös 30. Maí 2003 17:39
af elv
Hvaða software Keyrir EKKI hjá þér á W2003 SERVER